Festi hf.: Endurkaup vika 28
Í 28. viku 2025 keypti Festi alls 150.000 eigin hluti fyrir 44.250.000 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
28 | 8.7.2025 | 12:12:50 | 50.000 | 294 | 14.700.000 |
28 | 9.7.2025 | 14:43:33 | 50.000 | 294 | 14.700.000 |
28 | 11.7.2025 | 11:16:45 | 50.000 | 297 | 14.850.000 |
150.000 | 44.250.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 411.226 hluti eða 0,13% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 315.000 eigin hluti fyrir 91.275.000 kr. og á í dag 561.226 hluti sem samsvarar 0,18% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 27. júní 2025 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 800 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ().
