FESTI N1 Hf

Festi hf.: Úthlutun kauprétta

Festi hf.: Úthlutun kauprétta

Á fundi stjórnar Festi þann 30. október 2024 var tekin ákvörðun um að veita tilteknum stjórnendum samstæðunnar kauprétti að samtals 990.000 hlutum í félaginu.

Kaupréttarsamningar vegna hinna úthlutuðu hluta voru undirritaðir í dag, 31. október 2024. Eru skilmálar þeirra í samræmi við samþykkt aðalfundar Festi hinn 6. mars 2024 á kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur og lykilstarfsmenn samstæðunnar og starfskjarastefnu félagsins sem eru í viðhengi. Heildarfjöldi hluta sem heimilt er að veita kauprétt vegna á grundvelli kaupréttaráætlunarinnar er 5.500.000. Er markmið með veitingu kauprétta að tengja langtímahvatakerfi stjórnenda samstæðunnar við afkomu og langtímamarkmið félagsins og þar með langtímahagsmuni hluthafa þess.

Meginefni kaupréttarsamninganna er sem hér segir:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu kr. 230,75 fyrir hvern hlut, sem er vegið meðalverð hluta félagins síðustu tíu heilu viðskiptadaga á aðalmarkaði Nasdaq Iceland fyrir úthlutunardag. Grunnverð hækkar árlega um 5,5%, þ.e. frá gerð kaupréttarsamnings og fram að fyrsta mögulega nýtingardegi fyrir hvert nýtingartímabil. Þá skal grunnverð einnig leiðrétt (til lækkunar) fyrir framtíðar arðgreiðslum og samsvarandi úthlutun til til hluthafa af eignum félagsins.
  • Kauprétturinn ávinnst á þremur árum frá gerð kaupréttarsamninga.      
  • Að ávinnslutímabili loknu verða kaupréttir nýtanlegir í þremur áföngum, sem dreifast yfir eitt ár. Kaupréttarhafi getur frestað nýtingu áunnins kaupréttar til næsta nýtingartímabils. Að því marki sem kaupréttur er ónýttur eftir þriðja nýtingartímabil fellur kauprétturinn niður.  
  • Almennt falla kaupréttir niður ef ráðningarsambandi kaupréttarhafa við félagið er slitið fyrir lok ávinnslutíma.
  • Félaginu er óheimilt að veita lán eða ábyrgðir af nokkru tagi í tengslum við kaupréttarkerfið.

Í kjölfar úthlutunar kaupréttanna nemur heildarfjöldi útistandandi kauprétta samkvæmt kaupréttaráætlun fyrir stjórnendur samstæðunnar 5.355.000 hlutum, um 1,72% af útgefnu hlutafé félagsins, sem Festi hefur veitt til 46 stjórnenda. Er áætlaður heildarkostnaður (gjaldfærsla) vegna kaupréttarkerfisins, byggt á Black Scholes útreikningum, að fjárhæð um 127 milljónir króna sem dreifist á líftíma samninganna.

Upplýsingar um kauprétti sem veittir voru innan framkvæmdastjórnar Festi er í viðhengi.

Viðhengi



EN
31/10/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on N1 Hf

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Issuance of Bills

Festi hf.: Issuance of Bills Festi hf. has completed the sale of a new six-month bill, FESTI260922, in the nominal amount of ISK 1,020 million, at terms corresponding to a 7.875% flat interest rate. The bill is expected to be admitted to trading and listed on Nasdaq Iceland. The settlement date is scheduled for 23 March 2026. Subsequently, an application will be submitted for the bills to be admitted to trading on Nasdaq Iceland. Íslandsbanki’s securities sales managed the issuance and sale of the bills, as well as the admission of the bills to trading on the Main Market of Nasdaq Iceland...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Útgáfa á víxlum

Festi hf.: Útgáfa á víxlum Festi hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, FESTI260922 fyrir 1.020 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 7,875% flötum vöxtum, en stefnt er að víxillinn verði tekinn til viðskipta og skráður í kauphöll Nasdaq Iceland. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 23. mars 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlarnir verða teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland. Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra. Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Gru...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Results of the Annual General Meeting 5 March 2026

Festi hf.: Results of the Annual General Meeting 5 March 2026 Enclosed are the results of the Annual General Meeting of Festi hf. held today, Thursday 5 March 2026. For further information, please contact Ásta S. Fjeldsted, CEO of Festi -    Attachments

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Niðurstöður aðalfundar 5. mars 2026

Festi hf.: Niðurstöður aðalfundar 5. mars 2026 Meðfylgjandi eru niðurstöður aðalfundar Festi hf. sem haldinn var í dag, fimmtudaginn 5. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi –   Viðhengi

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Ársskýrsla 2025

Festi hf.: Ársskýrsla 2025 Ársskýrsla Festi hf. fyrir árið 2025 hefur verið birt í tengslum við aðalfund félagsins sem verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 5. mars 2026 klukkan 10.00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Í skýrslunni er einnig að finna sjálfbærniuppgjör samstæðunnar fyrir 2025. Skýrsluna má finna á meðfylgjandi slóð    Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi () 

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch