Festi hf.: Tilkynning frá Íslandsbanka samkvæmt samningi um viðskiptavakt
Þann 12. mars sl. birti Festi tilkynningu frá Íslandsbanka banka um að bankinn myndi beita heimild í samningi um viðskiptavakt sem heimilar að víkja frá skilyrðum samningsins í óviðráðanlegum aðstæðum.
Íslandsbanki hefur nú tilkynnt Festi að samkvæmt mati bankans sé ekki lengur fyrir hendi þörf á að beita ákvæði samningsins um frestun á skyldum vegna óviðráðanlegra atvika og gilda því ákvæði hans um verðbil og fjárhæðir nú að nýju.
Nánari upplýsingar veitir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi ( ) og Magnús Kr. Ingason framkvæmdastjóri fjármálasviðs Festi ( ).