ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech birtir rannsókn á útskiptileika AVT02 líftæknilyfjahliðstæðu við Humira® á ráðstefnu Bandarísku gigtarlæknasamtakanna

Alvotech birtir rannsókn á útskiptileika AVT02 líftæknilyfjahliðstæðu við Humira® á ráðstefnu Bandarísku gigtarlæknasamtakanna

  • Alvotech mun halda þrjár kynningar sem tengjast rannsókn á útskiptileika AVT02
  • Rannsóknin var gerð til að kanna lyfjahvörf, klíníska virkni, öryggi og þolanleika í sjúklingum sem skiptu endurtekið á milli AVT02 og Humira
  • Alvotech er eina fyrirtækið sem vitað er að hafi þróað líftæknilyfjahliðstæðu við Humira í háum styrk og lokið rannsókn á útskiptileika lyfsins fyrir umsókn um markaðsleyfi

Alvotech (First North: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið muni kynna niðurstöður rannsóknar á útskiptileika AVT02 og Humira® á ráðstefnu Bandarísku gigtarlæknasamtakanna (American College of Rheumatology) sem fram fer í Fíladelfíuborg í Pennsylvaníufylki, 10. – 14. nóvember n.k. Fyrirlestur Alvotech var valinn í úrval áhugaverðustu fræðsluerinda á ráðstefnunni, sem nefnast „Ignite Talks“.  

Kynningarnar munu veita nánari upplýsingar um niðurstöður rannsóknar Alvotech á útskiptileika AVT02 við Humira (adalimumab). Tilgangur rannsóknar Alvotech var að kanna lyfjahvörf, klíníska virkni, öryggi og þolanleika í sjúklingum sem skiptu endurtekið á milli skammta af AVT02 og Humira.  Í Bandaríkjunum þýðir útskiptileiki að um er ræða líftæknilyfjahliðstæðu sem uppfyllir viðbótarkröfur sem settar eru fram í samkeppnislögum um lífefnalyf og nýsköpun á markaði (Biologics Price Competition and Innovation Act). Skipta má viðmiðunarlyfi út fyrir frumlyfið án þess að læknirinn sem ávísaði lyfinu taki þá ákvörðun sérstaklega.

Alvotech er eina fyrirtækið sem vitað er að hafi þróað líftæknilyfjahliðstæðu við Humira í háum styrk (100 mg/mL) og fyrir umsókn til bandaríska lyfjaeftirlitsins (FDA) um markaðsleyfi fyrir útskiptanlega líftæknilyfjahliðstæðu. FDA um markaðsleyfi fyrir útskiptanlega líftæknilyfjahliðstæðu í febrúar 2022 og er eftirlitið nú með hana til skoðunar.

Með því að sýna fram á útskiptileika er hægt að auka enn aðgengi sjúklinga að hagkvæmari líftæknilyfjum og  draga úr kostnaði heilbrigðiskerfisins af þessum meðferðarúrræðum. Alvotech hefur einnig lokið sjálfstæðri sem sýna að AVT02 er líftæknilyfjahliðstæða við Humira.

Veggspjaldakynning Alvotech sem ber titilinn „Klínísk rannsókn til að sýna útskiptileika AVT02 og Humira“ verður haldin á ráðstefnunni laugardaginn 12. nóvember.

Önnur veggspjaldakynning undir yfirskriftinni „Samanburðarrannsókn á þolanleika í þátttakendum sem taka Humira eða skipta endurtekið milli AVT02 og Humira“ verður haldin á ráðstefnunni sunnudaginn 13. nóvember.

Mánudaginn 14. nóvember mun Steve Feldman, prófessor í húðsjúkdómum við læknadeild Wake Forest háskóla, flytja „Ignite Talk“ fyrirlestur sem ber titilinn „Klínísk rannsókn til að sýna fram á útskiptileika AVT02 og adalimumab (Humira) samanburðarlyfisins.“

Meiri upplýsingar um ráðstefnuna er að finna .

Um AVT02 (adalimumab)

AVT02 er einstofna mótefni og líftæknilyfjahliðstæða við Humira (adalimumab) með markaðsleyfi í Evrópusambandinu, Bretlandi, Sviss, Noregi, Liechtenstein, á Íslandi (Hukyndra) og Kanada (Simlandi). Umsóknir um markaðsleyfi fyrir AVT02 eru til meðferðar í mörgum löndum, þar á meðal í Bandaríkjunum.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson



EN
10/11/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch