ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech birtir uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs 

Alvotech birtir uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs 

Ítarlegri tilkynning á ensku sem veitir nánari upplýsingar um fjárhag og rekstur á fjórða ársfjórðungi 2025 og árinu í heild er birt á slóðinni: .

Helstu niðurstöður

Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs 2025 

  • Heildartekjur1 voru 173 milljón dollara, sem er 13% aukning frá sama tímabili á fyrra ári
  • Aðlöguð EBITDA1 nam 69 milljónum dollara og framlegð af heildartekjum var 66%
  • Markaðsleyfi var veitt fyrir AVT05 sem hliðstæðu af Simponi® í Bretlandi og innan EES
  • Markaðsleyfi var veitt fyrir AVT03 sem hliðstæðu af Prolia® and Xgeva® innan EES
  • EMA tók til meðferðar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT23, fyrirhugaða hliðstæðu Xolair®
  • Eftir lok fjórðungsins gerði Alvotech samning um sölu og dreifingu nokkurra fyrirhugaðra líftæknilyfjahliðstæða við Sandoz, í Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálandi

Helstu niðurstöður ársins 2025

  • Heildartekjur1 voru 593 milljónir dollara, sem er 21% aukning frá fyrra ári
  • Aðlöguð EBITDA1 jókst um 27% í 137 milljónir dollara og framlegð af heildartekjum var 61%
  • Bankainnistæður námu 172 milljónum dollara í árslok
  • Teva markaðssetti á árinu aðra hliðstæðu Alvotech í Bandaríkjunum, við Stelara, undir heitinu Selarsdi
  • Þrjár nýjar hliðstæður hlutu markaðsleyfi í Japan, Bretlandi og innan EES
  • Alvotech keypti rannsóknarstarfsemi Xbrane í Svíþjóð og rekstur Ivers-Lee í Sviss
  • Bréf félagsins voru skráð á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi og félagið seldi ný hlutabréf
  • Linda Jónsdóttir gekk til liðs við Alvotech sem nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Dr. Balaji V. Prasad sem nýr framkvæmdastjóri stefnumótunar og fjárfestatengsla, Joseph McClellan færðist yfir í stöðu framkvæmdastjóra rekstrar og Anthony Maffia tók við starfi framkvæmdastjóra gæðamála auk lyfjaskráninga.

Stjórnarformaður og fráfarandi forstjóri, Róbert Wessman:

„Á síðasta ári héldum við áfram að fjárfesta í aðstöðu til rannsókna og framleiðslu, hlutum markaðsleyfi fyrir þrjár nýjar líftæknilyfjahliðstæður, færðum út kvíarnar á rannsókna- og þróunarsviði félagsins og jukum getu til samsetningar og pökkunar á vörum. Þá gerðum við nýja samstarfssamninga um markaðssetningu og sölu.

„Við höfum nú sett fimm hliðstæður á markað og njótum krafta öflugra samstarfsaðila við markaðssetningu á 90 mörkuðum um allan heim. Við erum leiðandi í rannsóknum og þróun innan greinarinnar með 30 lyf í þróun og munum halda áfram að fjölga þeim .

„Fjárhagsstaða félagsins styrktist á árinu og öflugir fjárfestar lögðu félaginu til nýtt fjármagn að fjárhæð um 300 milljónir dollara. Fénu verður varið til vöruþróunar og til að styrkja framleiðslugetuna. Við breikkuðum hluthafahópinn við skráningu á markað í Stokkhólmi og bættum aðgengi að norrænum og evrópskum fjárfestum.

„Við höfum fjárfest í endurbótum á gæða- og framleiðslukerfum og ferlum sem svar við athugasemdum Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA). Við metum það svo að Alvotech sé í góðri stöðu til að senda umsóknirnar um markaðsleyfi inn til FDA að nýju á öðrum fjórðungi þessa árs.

Við erum bjartsýn að hafa leyst úr athugasemdum FDA enda eru lykilstjórnendur félagsins í dag með áratuga reynslu úr lyfjaiðnaðinum. Áhersla okkar hefur verið á að styrkja framleiðsluaðstöðuna og mæta aukinni eftirspurn á alþjóðlegum mörkuðum.

„Skipun Lisu Graver í stöðu forstjóra eflir leiðtogateymi félagsins enn frekar. Allir lykilstjórnendur eru nú búsettir á Íslandi. Við Lisa höfum unnið saman í meira en 20 ár og hún hefur einstakan bakgrunn og getu til þess að leiða félagið á þessu stigi í sögu þess. Hún þekkir félagið afar vel, þar sem hún hefur setið í stjórn Alvotech síðan á árinu 2022 og þekkir þannig vel stefnu félagsins, reksturinn og samstarfsaðilana.

„Sem starfandi stjórnarformaður mun ég áfram taka fullan þátt í rekstri félagsins. Ég hlakka til að vinna með Lisu og leiðtogateyminu að því að gera Alvotech að leiðandi fyrirtæki í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæðna.

Afkomuspá fyrir árið 2026

Fyrri afkomuspá stendur óbreytt. Væntar heildartekjur ársins 2026 eru á bilinu 650-700 milljónir og sem jafngildir vexti um tveggja stafa prósentu. Þá er gert ráð fyrir að aðlöguð EBITDA verði á bilinu 180-220 milljónir dollara, þar sem aukin framlegð verði af sölu áður markaðssettra lyfja og nýjum hliðstæðum sem eru að koma á markað í Bretlandi, EES og Japan.

Alvotech gerir ráð fyrir að fá markaðsleyfi fyrir fjórar nýjar hliðstæður í Bandaríkjunum fyrir árslok, en að það hafi lítil áhrif á áætlaðar heildartekjur ársins. Lægri mörk afkomuspárinnar gera ráð engum tekjum af nýjum lyfjum í Bandaríkjunum á árinu 2026.

Boð á kynningu á uppgjöri fyrir fjórða ársfjórðung 2025 og árið í heild:

Stjórnendur félagsins kynna uppgjörið í beinu streymi sem hefst kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 19. mars nk.

Til þess að hlusta á beint streymi af fundinum:

Til þess að hlusta í síma (hverjum þátttakanda er úthlutað PIN):

Kynningarglærur fyrir fundinn:

Nánari upplýsingar veita:

Fyrir fjölmiðla –

Benedikt Stefansson

Sarah MacLeod

Fyrir fjárfesta -

Dr. Balaji V Prasad (US)

Patrik Ling (SE)

Benedikt Stefansson (IS)

Fjárhagsdagatal:

Uppgjör eftir hvern ársfjórðung er birt eins og sjá má í töflunni, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Uppgjörsfundur fer fram næsta dag. Dagatalið er birt með fyrirvara um mögulegar breytingar.

ÁrsfjórðungurBirting uppgjörsUppgjörsfundur
1F 20266. maí 20267. maí 2026
2F 202619. ágúst 202620. ágúst 2026
3F 202611. nóvember 202612. nóvember 2026
4F 202610. mars 202711. mars 2027

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech hefur sett fimm hliðstæður á alþjóðlegan markað. Þá vinnur félagið meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, blóðsjúkdóma og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech , á fjárfestasíðu okkar og á vefsíðu félagsins á ensku . Þá má fylgjast með Alvotech á samfélagsmiðlunum LinkedIn, Facebook, Instagram, og YouTube.


1 Tölurnar sýna tekjur, hagnað eða tap tímabilsins að teknu tilliti til einskiptis- og óreglulegra liða. Nánari upplýsingar er að finna í ítarlegri útgáfu tilkynningarinnar á ensku á vefsíðu Alvotech.



EN
18/03/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech files Annual Report with the SEC

Alvotech files Annual Report with the SEC REYKJAVIK, ICELAND (March 30, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”) has filed its Annual Report 2025 on Form 20-F for the financial year 2025 with the U.S. Securities and Exchange Commission (SEC), incorporating by reference parts of the Alvotech Annual Report 2025. The report is available on the SEC’s website, , as well as in the investor relations section of Alvotech’s website at . For further information, contact: MediaBenedikt StefanssonSarah MacLeod InvestorsDr. Balaji V Prasad (US)Patrik Ling (SE)Benedikt Stefansson (IS) About Al...

 PRESS RELEASE

Alvotech birtir ársreikning á eyðublaði 20-F

Alvotech birtir ársreikning á eyðublaði 20-F REYKJAVIK (30. mars 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði birt ársreikning fyrir fjárhagsárið 2025 á eyðublaði 20-F í samræmi við reglur Verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna (SEC). Skjalið verður aðgengilegt á vefsíðu SEC og fjárfestasíðu Alvotech . Um AlvotechAlvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði...

 PRESS RELEASE

Alvotech Publishes 2025 Annual Report

Alvotech Publishes 2025 Annual Report REYKJAVIK, ICELAND (March 30, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”) has published its Annual Report for 2025. The report is available in the investor relations section of Alvotech’s website at: and is attached to this announcement in PDF and iXBRL formats. For further information, contact: MediaBenedikt StefanssonSarah MacLeod InvestorsDr. Balaji V Prasad (US)Patrik Ling (SE)Benedikt Stefansson (IS) About AlvotechAlvotech is a biotechnology company, founded by Robert Wessman, focused solely on the development and manufacture of biosimilar...

 PRESS RELEASE

Alvotech birtir ársskýrslu fyrir árið 2025

Alvotech birtir ársskýrslu fyrir árið 2025 REYKJAVIK (30. mars 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði birt ársskýrslu fyrir árið 2025. Skýrslan er aðgengileg á fjárfestasíðu Alvotech  og fylgir í viðhengi með þessari tilkynningu á PDF-sniði og töguðu sniði samkvæmt iXBRL staðli. Um AlvotechAlvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þr...

 PRESS RELEASE

Alvotech Files Annual Report with the SEC

Alvotech Files Annual Report with the SEC REYKJAVIK, Iceland, March 30, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”) has filed its Annual Report 2025 on Form 20-F for the financial year 2025 with the U.S. Securities and Exchange Commission (SEC), incorporating by reference parts of the Alvotech Annual Report 2025. The report is available on the SEC’s website, , as well as in the investor relations section of Alvotech’s website at . For further information, contact: MediaBenedikt StefanssonSarah MacLeod InvestorsDr. Balaji V Prasad (US)Patrik Ling (SE)Benedikt Stefan...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch