ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech fjölgar stjórnarmönnum við skráningu á markað

Alvotech fjölgar stjórnarmönnum við skráningu á markað

  • Fjölbreyttari samsetning stjórnar með aðkomu óháðra stjórnarmanna

Alvotech (NASDAQ og First North Growth „ALVO“) tilkynnti í dag um fjölgun í stjórn fyrirtækisins, í tengslum við skráningu fyrirtækisins á hlutabréfamarkað. Lisa Graver, Árni Harðarson, Linda McGoldrick og Ann Merchant tóku ný sæti í stjórn, en Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður, Richard Davies, Tomas Ekman og Faysal Kalmoua sitja áfram. Ann, Lisa og Richard eru óháðir stjórnarmenn.

„Það er mér sönn ánægja að bjóða nýja fulltrúa velkomna í stjórn fyrirtækisins á þessum merku tímamótun í þróun þess,“ sagði Róbert Wessmann, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech. „Vísindaleg þekking, reynsla af rekstri og innsæi í fjármálamarkaði verður mikilvægt veganesti á vegferð fyrirtækisins sem er að auka sjálfbærni heilbrigðisþjónustu með bættu aðgengi að líftæknilyfjum.“

Róbert Wessman stofnaði Alvotech árið 2013 og hefur verið stjórnarformaður síðan 2019. Hann er jafnframt stjórnarformaður Alvogen og Lotus Pharmaceuticals og situr í stjórn Fuji Pharma Co. Ltd. Róbert var forstjóri Actavis og leiddi breytingu þess í alþjóðlegt samheitalyfjafyrirtæki. Hann stofnaði jafnframt Alvogen og leiddi breytingu þess í alþjóðlegt samheitalyfjafyrirtæki, auk þess sem hann gegndi stöðu forstjóra og stjórnarformanns. Hann er einn af eigendum Aztiq Group („Aztiq“). Róbert útskrifaðist með cand. oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Richard Davis er varaformaður stjórnar Alvotech og formaður starfskjaranefndar. Hann er forstjóri Auregen Bio Therapeutics, var áður forstjóri Bonesupport, yfirmaður viðskipta hjá Hospira  og gegndi ýmsum stöðum í framkvæmdastjórn Amgen. Richard útskrifaðist með BS gráðu í efnafræði frá Háskólanum í Portsmouth og með MBA gráðu frá Warwick háskóla.

Linda McGoldrick er formaður endurskoðunarnefndar. Hún hefur gengt ýmsum stjórnunarstöðum og setið í stjórnum alþjóðlegra fyrirtækja á sviði heilbrigðis- og lífvísinda. Þar á meðal eru Marsh-MMC Companies, Veos, Kaiser Permanente, Compass Pathways og Zillion. Hún stofnaði og gegnir stöðu stjórnarformanns og forstjóra Financial Health Associates International og er forstjóri 2EnableHealth. Linda var árið 2012 útnefnd einn af 100 hæfustu stjórnarmönnum á sviði starfskjaramála í stærstu fyrirtækjum heims af dagblaðinu Financial Times. Hún útskrifaðist með MSW próf í heilsugæslufræðum frá Háskólanum í Pennsylvaníu og MBA gráðu frá Wharton skólanum.

Thomas Ekman hefur setið í stjórn Alvotech frá árinu 2019. Hann er einn af meðeigendum CVC Capital Partners og hluti af framkvæmdastjórn CVC á Norðurlöndum. Thomas var áður einn af eigendum og framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins 3i Group. Hann er með MS gráðu frá Háskólanum í Strathclyde og Chalmers tækniháskólanum, auk MBA gráðu frá IMD í Sviss.

Lisa Graver hefur gengt ýmsum stjórnunarstörfum við Alvogen frá árinu 2010 og hefur verið forstjóri Alvogen U.S. frá 2015. Áður en hún gekk til liðs við Alvogen var Lisa yfirmaður einkaleyfismála hjá Actavis. Hún er með BS gráðu í líffræði frá Lakehead háskóla og Juris Doctor í lögfræði frá lagadeild Case Western háskólans.

Árni Harðarson er einn af eigendum Aztiq. Hann gegndi áður stöðu aðstoðarforstjóra og yfirlögfræðings Alvogen og var einn af stjórnendum fyrirtækisins frá árinu 2009. Áður en Árni gekk til liðs við Aztiq og Alvogen var hann yfirmaður skattamála hjá Actavis og yfirmaður skatta- og lögfræðiþjónustu Deloitte. Árni útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands.

Faysal Kalmoua hefur setið í stjórn Alvotech síðan 2020 og er einn af eigendum Aztiq. Hann hefur síðust ár gengt ýmsum lykilstöðum hjá Alvogen Iceland ehf. og Alvogen Inc.  Þá var hann einn af framkvæmdastjórum Synthon. Hann er með meistarapróf í efnafræði frá Radboud háskólanum í Nijmegen og MBA gráðu frá Insead.

Ann Merchant hefur setið í framkvæmdastjórn MorphoSys frá árinu 2018, og gengt stöðu yfirmanns aðfangakeðju frá árinu 2019. Áður en hún gekk til liðs við MorphoSys var Ann æðsti stjórnandi Schreiner Medpharm og gegndi ýmsum stöðum í framkvæmdastjórn Amgen, þar á meðal sem yfirmaður aðfangakeðju. Ann útskrifaðist með MBA gráðu frá viðskiptadeild Henley háskóla og BS gráðu í tungumálum frá Georgetown háskólanum.

Hlutabréf Alvotech voru skráð á Nasdaq markaðinn í New York 16. júní s.l. Þá var fyrirtækið einnig skráð á Nasdaq First North Growth markaðinn á Íslandi 23. júní s.l. og varð þar með fyrsta íslenska fyrirtækið skráð jafnhliða á Íslandi og í Bandaríkjunum.

Frá því að Alvotech var stofnað fyrir áratug hefur fyrirtækið byggt upp fullkomna aðstöðu til þróunar og framleiðslu á líftæknihliðstæðulyfjum á stórum skala, en þau bjóða upp á sömu klínísku virkni og líftæknilyf sem verða sífellt mikilvægari í meðferð við ýmsum sjúkdómum. Líftæknihliðstæðulyf eru ódýrari en upprunalega líftæknilyfið. Alvotech leitast við að verða í forystu á sviði líftæknihliðstæðulyfja og hefur byggt upp alhliða getu til rannsókna og þróunar. Allir þættir framleiðslunnar eru í höndum fyrirtækisins til að tryggja gæði og lægri tilkostnað.

Alvotech fjárfestatengsl

Alvotech almannatengsl



EN
14/07/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech Successfully Places USD 108 Million Senior Unsecured Converti...

Alvotech Successfully Places USD 108 Million Senior Unsecured Convertible Bonds in a Significantly Oversubscribed Offering THIS PRESS RELEASE MAY NOT BE DISTRIBUTED, RELEASED, OR PUBLISHED, DIRECTLY OR INDIRECTLY, IN OR INTO AUSTRALIA, BELARUS, CANADA, HONG KONG, JAPAN, NEW ZEALAND, RUSSIA, SWITZERLAND, SINGAPORE, SOUTH AFRICA, SOUTH KOREA, THE UNITED STATES OF AMERICA OR ANY OTHER JURISDICTION IN WHICH SUCH ACTIONS, WHOLLY OR IN PART, WOULD BE UNLAWFUL OR DEMAND ADDITIONAL REGISTRATION OR OTHER MEASURES. PLEASE REFER TO “IMPORTANT INFORMATION” IN THE END OF THIS PRESS RELEASE. REYKJAVIK, ...

 PRESS RELEASE

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breyt...

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breytanlegra skuldabréfum að fjárhæð 108 milljónir dollara REYKJAVÍK (17. DESEMBER 2025) - Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði selt breytanleg skuldabréf að fjárhæð 108 milljónir bandaríkjadala til hóps um 20 alþjóðlegra fjárfesta í lokuðu útboði. Mikil umframeftirspurn var eftir bréfum í útboðinu. Fjármögnunin styður við fjárfestingu félagsins í þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, sem áætlað er að verði um 250 milljónir bandaríkjadala á næsta ári. Félagið er nú að þróa 30 hliðstæður líftækn...

 PRESS RELEASE

Alvotech Launches $100 Million Senior Unsecured Convertible Bond Offer...

Alvotech Launches $100 Million Senior Unsecured Convertible Bond Offering to Continue Strong Investment in R&D, Support Manufacturing, Global Product Launches and Enhance Liquidity Position, reaffirms 2025 outlook and provides 2026 guidance THIS PRESS RELEASE MAY NOT BE DISTRIBUTED, RELEASED, OR PUBLISHED, DIRECTLY OR INDIRECTLY, IN OR INTO AUSTRALIA, BELARUS, CANADA, HONG KONG, JAPAN, NEW ZEALAND, RUSSIA, SWITZERLAND, SINGAPORE, SOUTH AFRICA, SOUTH KOREA, THE UNITED STATES OF AMERICA OR ANY OTHER JURISDICTION IN WHICH SUCH ACTIONS, WHOLLY OR IN PART, WOULD BE UNLAWFUL OR DEMAND ADDITIONAL ...

 PRESS RELEASE

Alvotech býður út breytanleg skuldabréf að fjárhæð 100 milljónir banda...

Alvotech býður út breytanleg skuldabréf að fjárhæð 100 milljónir bandaríkjadala til að viðhalda fjárfestingu í lyfjaþróun, framleiðslu, markaðssetningu og styrkja lausafjárstöðu, staðfestir afkomuspá 2025 og birtir afkomuspá ársins 2026 REYKJAVÍK - (16. DESEMBER 2025) Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið efni til útboðs á breytanlegum skuldabréfum að fjárhæð 100 milljónir dollara með gjalddaga á árinu 2030. Fjármögnuninni er ætlað að styðja við áframhaldandi fjárfestingu félagsins í þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, sem áætluð er að verði 250 milljónir bandar...

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Approval of AVT03, a Biosimilar to Prolia® and Xgev...

Alvotech Announces Approval of AVT03, a Biosimilar to Prolia® and Xgeva® (denosumab) in the European Economic Area REYKJAVIK, Iceland, Nov. 24, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that the European Commission (EC) has approved AVT03 as a biosimilar to Prolia® and Xgeva® (denosumab). The European denosumab market is currently valued at approximately US$1.2 billion across all indications, based on originator sales in the last 12 months inclu...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch