ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech hefur rannsókn á lyfjahvörfum AVT03, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia® og Xgeva®

Alvotech hefur rannsókn á lyfjahvörfum AVT03, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia® og Xgeva®

  • Prolia® og Xgeva® (denosumab) eru lyf við sjúkdómum í beinum og námu tekjur af sölu þeirra um 730 milljörðum króna á síðasta ári
  • AVT03 (denosumab) er fjórða líftæknilyfjahliðstæða Alvotech sem tekin er til klínískra rannsókna

Alvotech (NASDAQ og First North Growth: ALVO) hefur hafið rannsókn á lyfjahvörfum AVT03 (denosumab), fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia® og Xgeva®. Rannsóknin mun bera saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT03 og Prolia, í heilbrigðum karlmönnum.

Prolia (denosumab) er notað til meðferðar við beinþynningu eftir tíðahvörf hjá konum og við beintapi hjá körlum og konum sem eru í aukinni hættu á beinbrotum. Xgeva (denosumab), sem er sama líftæknilyfið í öðru lyfjaformi, er gefið til að fyrirbyggja einkenni frá beinum, svo sem sjúkleg beinbrot hjá fullorðnum með langt gengna illkynja sjúkdóma sem tengjast beinum. Það er einnig gefið til að meðferðar við risafrumuæxli í beinum. Á síðasta ári námu samanlagðar tekjur af sölu Prolia og Xgeva um 730 milljörðum króna, samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda lyfjanna.

„Þessi hraði framgangur okkar í lyfjaþróun sýnir glögglega þá afkastagetu sem Alvotech hefur byggt upp á sviði líftæknilyfjahliðstæða. Nýjasta áfanginn í AVT03 verkefninu er hluti af fyrirætlunum okkar um að stuðla að bættum lífsgæðum með auknu aðgengi að hagkvæmari líftæknilyfjum,“ sagði Joseph McClellan, rannsóknarstjóri Alvotech.

Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða. Af þeim hafa fjögur lyf verið tekin til klínískra rannsókna eða eru þegar á markaði. Fyrsta lyf Alvotech og Kanada fyrr á þessu ári, AVT02 (adalimumab) sem er líftæknilyfjahliðstæða við Humira®. Í maí kynnti fyrirtækið jákvæða niðurstöðu úr og fyrir AVT04 (ustekinumab), fyrirhugaðri hliðstæðu við Stelara®. Í júlí kynnti Alvotech að hafin væri á AVT06 (aflibercept), fyrirhugaðri hliðstæðu við Eylea®. 

Um Alvotech

Alvotech sérhæfir sig í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða, til þess að bæta lífsgæði með því að auka aðgengi að hagstæðari líftæknilyfjum. Alvotech leitast við að vera í forystu í framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða og hefur byggt upp alhliða getu til rannsókna og þróunar, þar sem allir þættir framleiðslunnar eru í höndum fyrirtækisins til að tryggja gæði og lægri tilkostnað. Til að ná útbreiðslu um allan heim, hefur Alvotech gert samninga við samstarfsaðila um markaðssetningu í fleiri en 90 löndum, þar á meðal í Bandaríkjunum, Kanada, Evrópu, Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum. Alvotech vinnur að þróun átta lyfja, þar á meðal AVT02, líftæknilyfjahliðstæðu við Humira®, sem er þegar á markaði í Evrópu (Hukyndra®) og í Kanada (Simlandi®), auk sjö fyrirhugaðra líftæknilyfjahliðstæða á sviði sjálfsofnæmis-, öndunarfæra og augnsjúkdóma auk krabbameins og sjúkdóma sem tengjast beinum. Frekari upplýsingar eru á og .

Um AVT03 (denosumab)

AVT03 er einstofna mótefni og fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Prolia® og Xgeva® (denosumab). Denosumab beinist að og binst með mikilli sækni og sértækni við RANKL og kemur í veg fyrir virkjun viðtaka hans, svokallað RANK. Fyrirbygging RANKL/RANK tengingarinnar minnkar endurupptöku beina og beineyðingu af völdum krabbameins. AVT03 er lyf í þróun og hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði.

Um AVT02 (adalimumab)

AVT02 er einstofna mótefni og líftæknilyfjahliðstæða við Humira® (adalimumab) sem ætlað er til meðferðar við sjúkdómum eins og liðagigt, psoriasis, sáraristilbólgu og Chrons. AVT02 hefur hlotið markaðsleyfi í Evrópu (Hukyndra®) og Kanada (Simlandi™). Matvæla og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur samþykkt að taka umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir AVT02 til umsagnar og bíður afgreiðsla hennar niðurstöðu úttektar eftirlitsins. 

Um AVT04 (ustekinumab)

AVT04 er einstofna mótefni og fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Stelara® (ustekinumab). Ustekinumab binst tveimur frumuboðefnum í ónæmiskerfinu, IL-12 og IL-23. Þannig hefur það klíníska verkun á psoriasis, psoriasis liðagigt, Crohns sjúkdóminn og sáraristilbólgu með því að trufla leiðir frumuboðefna sem eru meginþættir í meinafræði þessara sjúkdóma. AVT04 er lyf í þróun og hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði.

Um AVT06 (aflibercept)

AVT06 er raðbrigða samrunaprótein og fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Eylea® (aflibercept). Aflibercept binst æðaþelsvaxtarþáttum (VEGF, Vascular Endothelial Growth Factors) og getur þannig hamlað bindingu og virkjun VEGF viðtaka, nýæðamyndun og æðagegndræpi. AVT06 er lyf í þróun og hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði.

Alvotech fjárfestatengsl

Alvotech samskiptasvið





EN
20/07/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch