ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech kynnir uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2022 og skýrir frá helstu áföngum í rekstri

Alvotech kynnir uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2022 og skýrir frá helstu áföngum í rekstri

  • Tekjur fyrstu níu mánuði ársins voru 8,7 milljarðar króna samanborið við 291 milljón króna á sama tímabili í fyrra
  • Viðræður héldu áfram við Bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA) um meðferð beggja umsókna um markaðsleyfi fyrir AVT02 (adalimumab) líftæknilyfjahliðstæðuna; enn stefnt að markaðssetningu í Bandaríkjunum 1. júlí 2023 að fengnu samþykki; fleiri lönd veittu markaðsleyfi á ársfjórðungnum
  • Góður gangur í lyfjaþróun og lagðar hafa verið inn umsóknir um markaðsleyfi fyrir AVT04, líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara, á stórum mörkuðum þar á meðal í Bandaríkjunum og Evrópu
  • Uppgjörsfundur sem streymt er á vefnum verður haldinn kl. 13 miðvikudaginn 16. nóvember.

Alvotech (First North: ALVO) kynnti í dag óendurskoðaða reikninga fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2022 og jafnframt yfirlit yfir nýlega áfanga í starfsemi fyrirtækisins.

„Með því að leggja inn fleiri umsóknir um markaðsleyfi, tryggja markaðsleyfi á nýjum mörkuðum og undirrita stærri samninga við samstarfsaðila okkar, höldum við áfram að sýna glöggt hnitmiðaða sýn á markaðinn fyrir líftæknilyfjahliðstæður og getu Alvotech til að grípa þau stóru tækifæri sem þar eru í boði,“ sagði Róbert Wessman, starfandi stjórnarformaður og stofnandi Alvotech. „Við erum í viðræðum við FDA um að klára það sem út af stendur í úttekt á framleiðsluaðstöðunni og við gerum ráð fyrir að verða tilbúin að setja hliðstæðu okkar við Humira á markað í Bandaríkjunum 1. júlí 2023. Allt bendir til að hún verði fyrsta útskiptilega líftæknilyfjahliðstæðan í háum styrk.“

Helstu áfangar í lyfjaþróun og samstarfssamningum.

Alvotech hélt tvær veggspjaldakynningar og fyrirlestur í úrvali bestu fræðsluerinda (Ignite Talk) þar sem gerð var grein fyrir niðurstöðum rannsóknar Alvotech á útskiptileika AVT02 við Humira (adalimumab). Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna lyfjahvörf, klíníska virkni, öryggi og þolanleika í sjúklingum sem skiptu endurtekið á milli skammta af AVT02 og Humira. Þær voru lagðar til grundvallar umsókn um markaðsleyfi fyrir útskiptanlega líftæknilyfjahliðstæðu sem samþykkt var til umsagnar af FDA í febrúar 2022.

Alvotech fékk athugasemdir frá Bandaríska lyfjaeftirlitinu (FDA) í september 2022 þar sem bent var á annmarka sem í ljós komu við úttekt FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech í Reykjavík. Fyrirtækið hefur haldið áfram virku samtali við eftirlitið til að bregðast við athugasemdunum til þess að ljúka úttektinni.

Alvotech gerði viðbótarsamkomulag við JAMP Pharma um markaðssamstarf í Kanada og bætast tvær nýjar fyrirhugaðar líftæknilyfjahliðstæður Alvotech við núverandi samstarf fyrirtækjanna: AVT16, líftæknilyfjahliðstæða fyrir sjúklinga með sjálfsofnæmissjúkdóma og AVT33, líftæknilyfjahliðstæða fyrir sjúklinga með krabbamein.

Fuji Pharma Co. Ltd., samstarfsaðili Alvotech um markaðssetningu í Japan, lagði inn umsókn um markaðsleyfi til japanska heilbrigðis-, atvinnu- og velferðarráðuneytisins vegna AVT04, líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara (ustekinumab) sem þróuð var samkvæmt sérleyfissamningi fyrirtækjanna.  

Alvotech og STADA tilkynntu að Hukyndra (adalimumab) líftæknilyfjahliðstæða við Humira væri komin á markað í Sviss. Hukyndra hefur þegar verið markaðsett í fjölda Evrópuríkja. STADA styður við markaðssetningu í hverju landi með útgáfu fræðsluefnis og sérstakri stuðningsþjónustu við sjúklinga sem taka lyfið.

Samstarfsaðila Alvotech, Cipla Limited, var veitt markaðsleyfi í Ástralíu fyrir Ciptunek / Aralicip (adalimumab), líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við Humira.  

Markaðsleyfi fyrir Simlandi (adalimumab) veitt í Sádi-Arabíu: Markaðsleyfi var veitt fyrir AVT02 (adalimumab) líftæknilyfjahliðstæðu við Humira í Sádí-Arabíu undir heitinu Simlandi. Samstarfsaðili Alvotech í Sádí-Arabíu er YAS Holding LCC í gegnum dótturfyrirtæki sitt Bioventure.

Áfangar í þróun fyrirtækisins.

:  Sarah Tanksley tók við sem framkvæmdastjóri gæðaeftirlits frá og með 14. október s.l. Sarah hefur 20 ára reynslu af störfum fyrir eftirlitsstofnanir með lyfjaþróun í Bandaríkjunum, hjá Bandaríska lyfjaeftirlitinu (FDA) og Bandarísku heilbrigðisstofnuninni (NIH).

Afkoma fyrstu níu mánuði ársins 2022.

Ítarlegri umfjöllun um rekstur og afkomu félagsins má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar. Íslenska útgáfan veitir yfirlit yfir helstu áfanga í sögu fyrirtækisins undanfarna mánuði til að auka aðgengi innlendra fjárfesta og almennings að upplýsingum um félagið.

Kynningarfundur um uppgjörið

Kynningarfundur um 9 mánaða uppgjörið fyrir markaðsaðila verður haldinn í beinu streymi miðvikudaginn 16. nóvember kl. 13 að íslenskum tíma. Fundurinn fer fram á ensku.

Beint vefstreymi af fundinum verður aðgengilegt á undir . Þar verður einnig hægt að finna upptöku af fundinum eftir að honum er lokið.

Þeir sem hyggjast taka beinan þátt í fundinum geta skráð sig með hlekk sem er aðgengilegur undir . og fá að skráningu lokinni sendar nánari upplýsingar, s.s. innhringinúmer og PIN. 

Um AVT02 (adalimumab)

AVT02 er einstofna mótefni og líftæknilyfjahliðstæða við Humira® (adalimumab). AVT02 hefur hlotið markaðsleyfi í Evrópu (Hukyndra®), Kanada og Sádí-Arabíu (Simlandi™) og Ástralíu (Ciptunec™ og Aralicip™). Umsóknir um markaðsleyfi eru til umsagnar í mörgum löndum, þar á meðal í Bandaríkjunum.

Um AVT04 (ustekinumab)

AVT04 er einstofna mótefni og fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Stelara® (ustekinumab). Ustekinumab binst tveimur frumuboðefnum í ónæmiskerfinu, IL-12 og IL-23. Þannig hefur það klíníska verkun á psoriasis, psoriasis-liðagigt, Crohns-sjúkdóminn og sáraristilbólgu með því að trufla leiðir frumuboðefna sem eru meginþættir í meinafræði þessara sjúkdóma. AVT04 er lyf í þróun og hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið.

Benedikt Stefánsson





EN
16/11/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Bi...

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Biosimilar to Eylea® According to the settlement agreement, the proposed biosimilar to Eylea® (aflibercept) can be marketed in the U.S., if approved by the FDA, in the fourth quarter of 2026, or earlier under certain circumstances REYKJAVIK, Iceland and TEL AVIV, Israel and PARSIPPANY, N.J., Dec. 19, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, and Teva Pharmaceuticals, a U.S. affiliate of Teva P...

 PRESS RELEASE

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Bi...

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Biosimilar to Eylea® According to the settlement agreement, the proposed biosimilar to Eylea® (aflibercept) can be marketed in the U.S., if approved by the FDA, in the fourth quarter of 2026, or earlier under certain circumstances  REYKJAVIK, ICELAND & TEL AVIV, ISRAEL & PARSIPPANY, NJ (December 19, 2025) — Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, and Teva Pharmaceuticals, a U.S. affiliate of Teva Pharmaceutical Indust...

 PRESS RELEASE

Alvotech og Teva ná samningi um að sala AVT06 hliðstæðunnar við Eylea ...

Alvotech og Teva ná samningi um að sala AVT06 hliðstæðunnar við Eylea má hefjast í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi 2026 Alvotech (NASDAQ: ALVO) og Teva Pharmaceuticals, bandarískt dótturfyrirtæki Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (NYSE and TASE: TEVA), hafa náð samningi við Regeneron Pharmaceuticals sem veitir Alvotech og Teva heimild til að markaðssetja AVT06, hliðstæðu við líftæknilyfið Eylea (aflibercept), í Bandaríkjunum. Samkvæmt samningnum getur sala hliðstæðunnar hafist í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi 2026, eða fyrr að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. „Við höfum nýlega hlo...

 PRESS RELEASE

Alvotech Successfully Places USD 108 Million Senior Unsecured Converti...

Alvotech Successfully Places USD 108 Million Senior Unsecured Convertible Bonds in a Significantly Oversubscribed Offering THIS PRESS RELEASE MAY NOT BE DISTRIBUTED, RELEASED, OR PUBLISHED, DIRECTLY OR INDIRECTLY, IN OR INTO AUSTRALIA, BELARUS, CANADA, HONG KONG, JAPAN, NEW ZEALAND, RUSSIA, SWITZERLAND, SINGAPORE, SOUTH AFRICA, SOUTH KOREA, THE UNITED STATES OF AMERICA OR ANY OTHER JURISDICTION IN WHICH SUCH ACTIONS, WHOLLY OR IN PART, WOULD BE UNLAWFUL OR DEMAND ADDITIONAL REGISTRATION OR OTHER MEASURES. PLEASE REFER TO “IMPORTANT INFORMATION” IN THE END OF THIS PRESS RELEASE. REYKJAVIK, ...

 PRESS RELEASE

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breyt...

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breytanlegra skuldabréfum að fjárhæð 108 milljónir dollara REYKJAVÍK (17. DESEMBER 2025) - Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði selt breytanleg skuldabréf að fjárhæð 108 milljónir bandaríkjadala til hóps um 20 alþjóðlegra fjárfesta í lokuðu útboði. Mikil umframeftirspurn var eftir bréfum í útboðinu. Fjármögnunin styður við fjárfestingu félagsins í þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, sem áætlað er að verði um 250 milljónir bandaríkjadala á næsta ári. Félagið er nú að þróa 30 hliðstæður líftækn...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch