ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech og JAMP Pharma fjölga samstarfsverkefnum til að bæta aðgengi að líftæknilyfjum í Kanada

Alvotech og JAMP Pharma fjölga samstarfsverkefnum til að bæta aðgengi að líftæknilyfjum í Kanada

  • Tveimur fyrirhuguðum líftæknilyfjahliðstæðum Alvotech fyrir sjúklinga með sjálfsofnæmissjúkdóma og krabbamein er bætt við samstarfssamninginn

Alvotech (NASDAQ First North: ALVO) og JAMP Pharma Group (JAMP Pharma), kanadískt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar í Montreal, tilkynntu í dag að þau hafi gert samkomulag um að bæta tveimur nýjum fyrirhuguðum líftæknilyfjahliðstæðum Alvotech við núverandi samstarf: AVT16, líftæknilyfjahliðstæðu fyrir sjúklinga með sjálfsofnæmissjúkdóma og AVT33, líftæknilyfjahliðstæðu fyrir sjúklinga með krabbamein.

„Við erum afar ánægð að fjölga verkefnum í samstarfinu við Alvotech, til þess að geta fært sjúklingum í Kanada fleiri ódýrari líftæknilyf,“ sagði Louis Pilon, forstjóri JAMP Pharma Group. „Við höfum þegar hafið sölu og markaðssetningu á Simlandi, líftæknilyfjahliðstæðu við Humira og munum halda áfram að efla þjónustu okkar við sjúklinga og meðferðaraðila þeirra í gegnum BIOJAMP og JAMP Care.“

„Samstarfið við JAMP Pharma getur gert okkur kleift að ná forystu á markaði fyrir líftæknilyfjahliðstæður í Kanada,“ sagði Róbert Wessman, stofnandi og starfandi stjórnarformaður Alvotech. „Markmið okkar er að auðvelda og auka aðgengi að líftæknilyfjahliðstæðum fyrir sjúklinga um allan heim.“

Alvotech mun annast þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæðanna. Í skiptum fyrir áfangagreiðslur og hluta af framtíðarsölutekjum, fær JAMP Pharma einkaleyfi til að selja og markaðssetja tiltekin lyf Alvotech í Kanada og nýtir til þess öflugt sölunet og markaðsreynslu, en eftirspurn eftir líftæknilyfjahliðstæðum í Kanada fer ört vaxandi.

JAMP Pharma tilkynnti í febrúar s.l. um stofnun BIOJAMP, sem ætlað er að festa fyrirtækið í sessi sem leiðandi aðili á markaði fyrir líftæknilyfjahliðstæður í Kanada. BIOJAMP og JAMP Care bjóða upp á þjónustu við sjúklinga og meðferðaraðila, til þess að auðvelda þeim að skipta yfir í líftæknilyfjahliðstæður, sem eru ódýrari en sambærileg líftæknilyf.     

Um Simlandi™ (adalimumab)

Simlandi™ er einstofna mótefni og líftæknilyfjahliðstæða við Humira® (adalimumab). Simlandi hefur hlotið markaðsleyfi í Kanada. Sama líftæknilyfjahliðstæða hefur einnig hlotið markaðsleyfi í Evrópusambandinu, Noregi, Lichtenstein, á Íslandi, í Bretlandi og Sviss (undir heitinu Hukyndra®). Umsóknir um markaðsleyfi eru til umfjöllunar í mörgum löndum, þar á meðal í Bandaríkjunum. 

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Um JAMP Pharma Group

JAMP Pharma Group, sem stofnað var fyrir 34 árum, er kanadískt fyrirtæki í einkaeigu og eru höfuðstöðvar þess í Montreal. Fyrirtækið starfar á öllum sviðum lyfjaiðnaðarins, frumlyfja (Orimed Pharma), samheitalyfja og líftæknilyfjahliðstæða (JAMP Pharma), náttúruvara (Wampole og Laboratoire Suisse) og snyrtivara (Cosmetic Import Ltd). Eftir öran vöxt undanfarin 10 ár býður JAMP Pharma nú upp á 300 mismunandi lyf og 180 náttúru- og snyrtivörur. JAMP Pharma leiðir lyfjamarkað í Kanada með tilliti til sölu og framboðs nýrra lyfja. Nýlega hleypti fyrirtækið af stokkunum deild sem einbeitir sér að markaðssetningu líftæknilyfjahliðstæða, BIOJAMP. Frekari upplýsingar er að finna á slóðinni /en/

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson,



EN
19/10/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Bi...

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Biosimilar to Eylea® According to the settlement agreement, the proposed biosimilar to Eylea® (aflibercept) can be marketed in the U.S., if approved by the FDA, in the fourth quarter of 2026, or earlier under certain circumstances REYKJAVIK, Iceland and TEL AVIV, Israel and PARSIPPANY, N.J., Dec. 19, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, and Teva Pharmaceuticals, a U.S. affiliate of Teva P...

 PRESS RELEASE

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Bi...

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Biosimilar to Eylea® According to the settlement agreement, the proposed biosimilar to Eylea® (aflibercept) can be marketed in the U.S., if approved by the FDA, in the fourth quarter of 2026, or earlier under certain circumstances  REYKJAVIK, ICELAND & TEL AVIV, ISRAEL & PARSIPPANY, NJ (December 19, 2025) — Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, and Teva Pharmaceuticals, a U.S. affiliate of Teva Pharmaceutical Indust...

 PRESS RELEASE

Alvotech og Teva ná samningi um að sala AVT06 hliðstæðunnar við Eylea ...

Alvotech og Teva ná samningi um að sala AVT06 hliðstæðunnar við Eylea má hefjast í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi 2026 Alvotech (NASDAQ: ALVO) og Teva Pharmaceuticals, bandarískt dótturfyrirtæki Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (NYSE and TASE: TEVA), hafa náð samningi við Regeneron Pharmaceuticals sem veitir Alvotech og Teva heimild til að markaðssetja AVT06, hliðstæðu við líftæknilyfið Eylea (aflibercept), í Bandaríkjunum. Samkvæmt samningnum getur sala hliðstæðunnar hafist í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi 2026, eða fyrr að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. „Við höfum nýlega hlo...

 PRESS RELEASE

Alvotech Successfully Places USD 108 Million Senior Unsecured Converti...

Alvotech Successfully Places USD 108 Million Senior Unsecured Convertible Bonds in a Significantly Oversubscribed Offering THIS PRESS RELEASE MAY NOT BE DISTRIBUTED, RELEASED, OR PUBLISHED, DIRECTLY OR INDIRECTLY, IN OR INTO AUSTRALIA, BELARUS, CANADA, HONG KONG, JAPAN, NEW ZEALAND, RUSSIA, SWITZERLAND, SINGAPORE, SOUTH AFRICA, SOUTH KOREA, THE UNITED STATES OF AMERICA OR ANY OTHER JURISDICTION IN WHICH SUCH ACTIONS, WHOLLY OR IN PART, WOULD BE UNLAWFUL OR DEMAND ADDITIONAL REGISTRATION OR OTHER MEASURES. PLEASE REFER TO “IMPORTANT INFORMATION” IN THE END OF THIS PRESS RELEASE. REYKJAVIK, ...

 PRESS RELEASE

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breyt...

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breytanlegra skuldabréfum að fjárhæð 108 milljónir dollara REYKJAVÍK (17. DESEMBER 2025) - Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði selt breytanleg skuldabréf að fjárhæð 108 milljónir bandaríkjadala til hóps um 20 alþjóðlegra fjárfesta í lokuðu útboði. Mikil umframeftirspurn var eftir bréfum í útboðinu. Fjármögnunin styður við fjárfestingu félagsins í þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, sem áætlað er að verði um 250 milljónir bandaríkjadala á næsta ári. Félagið er nú að þróa 30 hliðstæður líftækn...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch