ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech tilkynnir um breytingar í framkvæmdastjórn

Alvotech tilkynnir um breytingar í framkvæmdastjórn

Alvotech (NASDAQ: ALVO, „félagið“) tilkynnti í dag um breytingar í framkvæmdastjórn félagsins. Faysal Kalmoua hefur verið skipaður framkvæmdastjóri rekstrar og Hafrún Friðriksdóttir lætur af störfum. Breytingar fylgja í kjölfar þess að félagið hefur lagt inn endurnýjaða umsókn um markaðsleyfi í Bankaríkjunum fyrir AVT02, fyrirhugaða líftæknilyfjahliðstæðu með útskiptileika við Humira (adalimumab) í háum styrk.

Faysal hefur verið framkvæmdastjóri verkefnaþróunar Alvotech frá því snemma á þessu ári. Hann hefur jafnframt átt sæti í stjórn Alvotech síðan 2020. Áður gegndi hann ýmsum framkvæmdastjórnarstöðum hjá Alvogen og Synthon. Hann er með meistaragráðu í efnafræði frá Radboud Nijmegen háskólanum og MBA frá Insead.

„Það er mér sönn ánægja að bjóða Faysal velkominn í stöðu framkvæmdastóra rekstrar. Hann þekkir starfsemi félagsins auðvitað ákaflega vel,“ sagði Robert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech. „Við vorum afar þakklát Hafrúnu þegar hún féllst á að koma til starfa hjá Alvotech á síðast ári og ljá félaginu víðtæka þekkingu og reynslu úr lyfjaiðnaðinum.  Brennandi áhugi hennar á framleiðslu- og gæðamálum mun halda áfram að veita okkur innblástur.“

„Það er mikill fengur að fá að taka þátt í einstakri vegferð Alvotech,“ sagði Faysal Kalmoua. „Ég hlakka til að halda áfram að vinna með því hæfileikaríka og samhenta teymi sem Alvotech hefur á að skipa og leggja mitt af mörkum til að gera félagið leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða.“ 

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson



EN
05/09/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Increase in Number of Own Shares

Alvotech Announces Increase in Number of Own Shares REYKJAVIK, ICELAND (February 11, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, has increased the Company´s share capital by an amount of one hundred and twenty-five thousand (USD 125,000) by issuing twelve million and five-hundred thousand (12,500,000) ordinary shares. The Company’s subsidiary, Alvotech Manco ehf. (the “subsidiary”), has subscribed to all of the newly issued shares for a price of USD 5.2 per share. Th...

 PRESS RELEASE

Alvotech tilkynnir um aukningu í fjölda eigin bréfa

Alvotech tilkynnir um aukningu í fjölda eigin bréfa REYKJAVIK (11. febrúar 2026) - Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að stjórn fyrirtækisins hefði ákveðið að gefa út tólf og hálfa milljón (12.500.000) nýrra almennra hluta í félaginu. Dótturfélag Alvotech, Alvotech Manco ehf. („dótturfélagið“) kaupir öll bréfin af móðurfélaginu á genginu 5,2 bandaríkjadalir á hlut. Hlutir dótturfélagsins eru taldir til eigin hlutabréfa Alvotech og fylgir þeim því hvorki atkvæðisréttur né réttur til arðgreiðslu. Að loknum þessum viðskiptum á dótturfélagið alls 16.254.005 hluti, eða um 4,7% útgefinna hl...

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Positive Top-Line Results from Pivotal Pharmacokine...

Alvotech Announces Positive Top-Line Results from Pivotal Pharmacokinetic Study for Proposed Biosimilar to Entyvio® The study, which assessed the pharmacokinetics, safety, tolerability and immunogenicity of AVT80 compared to Entyvio® in healthy adult participants, met all its primary endpoints REYKJAVIK, ICELAND (February 5, 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced today positive top-line results from a pharmacokinetic (PK) study for AVT80, a biosimilar candidat...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir jákvæða niðurstöðu rannsóknar á lyfjahvörfum AVT80, fy...

Alvotech kynnir jákvæða niðurstöðu rannsóknar á lyfjahvörfum AVT80, fyrirhugaðrar hliðstæðu við líftæknilyfið Entyvio Allir endapunktar rannsóknarinnar voru uppfylltir, en hún bar saman lyfjahvörf, öryggi, þolanleika og ónæmingarverkun AVT80 og Entyvio í heilbrigðum einstaklingum  Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að jákvæð niðurstaða lægi fyrir úr rannsókn á lyfjahvörfum AVT80, fyrirhugaðrar hliðstæðu við líftæknilyfið Entyvio (vedolizumab). Rannsókninni var ætlað bera saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT80 og Entyvio í heilbrigðum einstaklingum og voru allir aðalen...

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Positive Top-Line Results from Pivotal Pharmacokine...

Alvotech Announces Positive Top-Line Results from Pivotal Pharmacokinetic Study for Proposed Biosimilar to Entyvio® The study, which assessed the pharmacokinetics, safety, tolerability and immunogenicity of AVT80 compared to Entyvio® in healthy adult participants, met all its primary endpoints REYKJAVIK, Iceland, Feb. 05, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced today positive top-line results from a pharmacokinetic (PK) study for AVT80, a bio...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch