ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech tryggir aðgengi að um 20 milljarða króna fjármögnun

Alvotech tryggir aðgengi að um 20 milljarða króna fjármögnun

  • Flokkur veðskuldabréfa stækkaður um 10,2 milljarða króna með aðkomu hóps nýrra stofnanafjárfesta
  • Alvotech eignast verksmiðjubygginguna í Vatnsmýri, sem áður var leigð, og fær viðbótarfjármögnun að fjárhæð u.þ.b. 2,3 milljarða króna með endurfjármögnun fasteignalána
  • Víkjandi lán frá Alvogen veitir aðgang að 7,3 milljörðum króna til viðbótar

Alvotech (First North: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði tryggt aðgengi að nýrri fjármögnun að fjárhæð tæplega 20 milljarðar króna, miðað við núverandi gengi krónunnar (136 milljónir Bandaríkjadala). „Fjármögnuninni er ætla að auka sveigjanleika og styður við áframhaldandi vöxt í þróun fyrirhugaðra líftæknilyfjahliðstæða fyrirtækisins,“ sagði Joel Morales, fjármálastjóri Alvotech.

Alvotech hefur stækkað flokk veðskuldabréfa um 10,2 milljarða króna (70 milljónir Bandaríkjadala) með viðbótarfjárfestingu frá Farallon Capital Management, Sculptor Capital Management, Oaktree Capital Management, Lodbrok Capital og Morgan Stanley. Þessir skuldabréfaeigendur hafa einnig eignast áskriftarrétt að 2,5% af almennum hlutum í Alvotech. Áskriftarréttirnir munu falla niður ef Alvotech gerir samninga um aðra fjármögnun, í samræmi við skilmála skuldabréfanna.

Þá hefur Alvotech einnig tryggt aðgang að fjármögnun frá Alvogen, sem er einn stærsti hluthafi fyrirtækisins, með loforði um 7,3 milljarða króna víkjandi lán (50 milljónir Bandaríkjadala), sem einnig veitir rétt til að nýta áskriftarréttindi fyrir 4,0% af almennum hlutum í Alvotech. Áskriftarréttirnir falla niður ef Alvotech nýtir ekki fjármögnunina og gerir samninga um aðra fjármögnun í hennar stað, í samræmi við skilmála lánasamningsins, fyrir 15. desember n.k. 

Eignarhald á verksmiðjuhúsnæði fyrirtækisins í Vatnsmýri, sem áður var leigt, flyst til Alvotech frá dótturfélagi Aztiq, sem er einn af stærstu hluthöfum Alvotech, í skiptum fyrir breytilegt víkjandi skuldabréf að fjárhæð um 11,7 milljarðar króna (80 milljónir Bandaríkjadala). Í tengslum við kaup á fasteigninni hefur verið gerður nýr lánasamningur við Landsbankann, sem eykur fjármögnun Alvotech um u.þ.b. 2,3 milljarða króna (16 milljónir Bandaríkjadala), miðað við núverandi gengi krónunnar.

Ítarlegri upplýsingar eru í gögnum sem verða aðgengileg á vef Alvotech , þar sem einnig eru birtir sem viðhengi þeir samningar sem vísað er til hér. Fréttatilkynninguna og lýsingu á þeim samningum sem um er að ræða ber að túlka í heild í samhengi við samningana sem birtir eru.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson



EN
16/11/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch