ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Evrópska lyfjastofnunin samþykkir að taka fyrir leyfisumsókn fyrir fyrirhugaða hliðstæðu við Stelara® (ustekinumab)

Evrópska lyfjastofnunin samþykkir að taka fyrir leyfisumsókn fyrir fyrirhugaða hliðstæðu við Stelara® (ustekinumab)

  • Álit Evrópsku lyfjastofnunarinnar (EMA) gæti legið fyrir á síðari helmingi ársins 2023
  • Frumlyfið Stelara® (ustekinumab) er gefið sjúklingum með ýmsa bólgusjúkdóma

Alvotech (NASDAQ: ALVO) og alþjóðlega lyfjafyrirtækið STADA Arzneimittel (STADA) tilkynntu í dag að Evrópska lyfjastofnunin (EMA) hafi samþykkt að taka til umsagnar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT04, fyrirhugaða líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara® (ustekinumab). Samstarfsaðilarnir gera ráð fyrir því að afstaða EMA til veitingar markaðsleyfis geti legið fyrir á síðari helmingi ársins 2023.

„Það er ánægjulegt að færast skrefi nær því að geta veitt sjúklingum í Evrópu aðgang að AVT04,“ sagði Joseph McClellan, framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá Alvotech. „Markmið okkar er að mæta aukinni eftirspurn eftir hagstæðari líftæknilyfjum og hefur Alvotech byggt upp fullkomna aðstöðu sem gerir okkur kleift að vinna að þróun og framleiðslu margra lyfja samhliða.“

„Ákvörðun EMA að taka umsókn um markaðsleyfi til umsagnar er mikilvæg varða á þeirri leið að fjölga úrræðum í Evrópu fyrir lækna og sjúklinga sem glíma við bólgusjúkdóma,“ sagði yfirmaður sérlyfjadeildar STADA, Bryan Kim. „AVT04 yrði sterk viðbót við þær sex líftæknilyfjahliðstæður sem STADA hefur þegar sett á markað í Evrópu. Ein af þeim er adalimumab líftæknilyfjahliðstæða Alvotech með auknum styrk og sítratlausu lyfjaformi.“

Í tilkynntu Alvotech og STADA að fyrirtækin hefðu gengið til samstarfs um markaðssetningu í Evrópu á átta líftæknilyfjahliðstæðum sem Alvotech hyggst þróa og framleiða. Fyrsta lyfið í samstarfinu, Hukyndra (adalimumab) líftæknilyfjahliðstæða við Humira® kom á markað á síðasta ári og er nú selt í .

Í tilkynnti Alvotech að rannsókn á sjúklingum með miðlungsmikinn og verulegan psoriasis hefði leitt í ljós að AVT04 hafi sömu klínísku virkni og samanburðarlyfið Stelara (ustekinumab). tilkynnti Alvotech einnig að jákvæð niðurstaða hefði fengist úr klínískri rannsókn á lyfjahvörfum AVT04 í samanburði við Stelara.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni og forstjóra fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson



EN
09/02/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech Reports Results for the First Six Months of 2025 and Provides...

Alvotech Reports Results for the First Six Months of 2025 and Provides a Business Update Strong performance driven by over 200% growth in product revenues year-on-year Best quarter in Alvotech’s history in terms of operating cash flows Continued expansion of commercial partnerships for pipeline assets Alvotech listed on Nasdaq Stockholm Market Conference call and live webcast on Thursday August 14, 2025, 8:00 am ET (12:00pm GMT) REYKJAVIK, Iceland, Aug. 13, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO, or the “C...

 PRESS RELEASE

Alvotech Reports Results for the First Six Months of 2025 and Provides...

Alvotech Reports Results for the First Six Months of 2025 and Provides a Business Update Strong performance driven by over 200% growth in product revenues year-on-year Best quarter in Alvotech’s history in terms of operating cash flowsContinued expansion of commercial partnerships for pipeline assetsAlvotech listed on Nasdaq Stockholm MarketConference call and live webcast on Thursday August 14, 2025, 8:00 am ET (12:00pm GMT) REYKJAVIK, Iceland, August 13, 2025 - Alvotech (NASDAQ: ALVO, or the “Company”), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimil...

 PRESS RELEASE

Alvotech birtir uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins og kynnir nýjus...

Alvotech birtir uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins og kynnir nýjustu áfanga í rekstri félagsins Yfir 200% aukning á tekjum af sölu lyfja á fyrri helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrraAnnar ársfjórðungur sá besti í sögu félagsins hvað varðar handbært fé frá rekstri Nýir samningar um markaðsetningu endurspegla virði lyfja á fyrri stigum þróunarBréf Alvotech skráð á Nasdaq markaðinn í StokkhólmiKynning á uppgjörinu í beinu streymi fimmtudaginn 14. ágúst kl. 12 á hádegi (á ensku) REYKJAVIK, 13. ágúst 2025 - Alvotech (NASDAQ: ALVO) birtir í dag uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins og...

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Webcast to Report Financial Results for the First H...

Alvotech Announces Webcast to Report Financial Results for the First Half of 2025 on August 14, 2025, at 8:00 am EDT REYKJAVIK, ICELAND (August 6, 2025) – Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specialized in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced today that it will release financial results for the first half of the year ended June 30, 2025, after U.S. markets close on Wednesday, August 13, 2025.  Alvotech will also conduct a conference call to present the financial results and recent business highlights on Thursday August 14, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör fyrri helmings ársins 2025 þann 14. ágúst nk. ...

Alvotech kynnir uppgjör fyrri helmings ársins 2025 þann 14. ágúst nk. kl. 12 á hádegi REYKJAVÍK (6. ágúst 2025) Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun senda út tilkynningu með uppgjöri fyrir fyrri helming ársins 2025 eftir lokun markaða í Bandaríkjunum, miðvikudaginn 13. ágúst nk. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst hann kl. 12 á hádegi, fimmtudaginn 14. ágúst nk. Streymi af uppgjörsfundinum, sem fer fram á ensku, verður aðgengilegt á fjárfestasíðu Alvotech, , á slóðinni . Þar verður einnig hægt að finna upptöku af fundinum eftir að honum er lokið, sem aðgengil...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch