ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Jákvæð niðurstaða úr klínískri rannsókn fyrir fyrirhugaða hliðstæðu Alvotech við líftæknilyfið Xolair

Jákvæð niðurstaða úr klínískri rannsókn fyrir fyrirhugaða hliðstæðu Alvotech við líftæknilyfið Xolair

Alvotech (NASDAQ: ALVO) og samstarfsaðilar félagsins, Kashiv Biosciences og Advanz Pharma, kynntu í dag að jákvæð niðurstaða hefði náðst í klínískri rannsókn sem bar saman virkni AVT23, fyrirhugaðrar hliðstæðu líftæknilyfsins Xolair (omalizumab), og virkni frumlyfsins. Xolair er lyf sem gefið er við ofnæmisastma og fleiri skyldum sjúkdómum. Kashiv Biosciences er líftæknifyrirtæki með höfuðstöðvar í New Jersey í Bandaríkjunum. Advanz Pharma er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum. Það er með höfuðstöðvar í Bretlandi.

„Þessi jákvæða niðurstaða er mikilvægur áfangi í þróun hliðstæðunnar við Xolair. Við erum full tilhlökkunar að geta aukið aðgengi sjúklinga um allan heim að lyfinu,“ sagði Joseph McClellan, framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá Alvotech.

„Þetta er mikilvægt skref í lyfjaþróun Kashiv. Við erum spennt að vinna áfram með heilbrigðisyfirvöldum að því að koma lyfinu sem fyrst í hendur sjúklinga,“ sagði Dr. Sandeep Athalye, forstjóri Kashiv Biosciences.

„Með þessari niðurstöðu hefur Advanz Pharma náð mikilvægum áfanga í að auka aðgengi að stungu- og innrennslislyfjum á helstu markaðssvæðum okkar sem eru Evrópa, Kanada og Ástralía,“ sagði Nick Warwick, framkvæmdastjóri rannsókna fyrir Advanz Pharma.

Alvotech er í samstarfi við Kashiv Biosciences um þróun hliðstæðunnar en Advanz Pharma hefur samið við Alvotech um rétt til markaðssetningar hennar á Evrópska efnahagssvæðinu, í Bretlandi, Sviss, Kanada, Ástralíu og á Nýja Sjálandi.

Rannsóknin var tvíblind með slembiröðun. Borin var saman virkni, öryggi og ónæmingarverkun AVT23 og Xolair í sjúklingum sem greinst hafa með langvinnan ofsakláða af óþekktum toga og höfðu ekki svarað meðferð með andhistamíni. Niðurstöðurnar sýna að virkni, öryggi og ónæmingarverkun hliðstæðunnar og frumlyfsins er sambærileg.

Lyfjastofnun Bretlands (MHRA) samþykkti fyrr á þessu ári að taka til umsagnar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT23. Stefnt er að því að sækja einnig um markaðsleyfi til Lyfjastofnunar Evrópu síðar á árinu.

Um AVT23

ATV23 er fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Xolair (omalizumab). Omalizumab er einstofna mótefni sem binst ónæmisglóbúlín E(IgE) og er meðal annars notað til meðferðar við ofnæmisastma og langvinnri nef- og skútabólgu með sepageri í nefi. AVT23 er lyf í þróun og leyfi til markaðssetningar hefur hvergi verið veitt. Þá liggur niðurstaða eftirlitsaðila ekki fyrir um notkun lyfsins sem líftæknilyfjahliðstæðu. Alvotech er í samstarfi við Kashiv Biosciences um þróun hliðstæðunnar við Xolair. Hún nefnist AVT23 hjá Alvotech en ADL-018 hjá Kashiv Biosciences.

Notkun vörumerkja

Xolair er skráð vörumerki Novartis AG.

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæðna fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknilyfjahliðstæðna. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæðna sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd. (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja-Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja-Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indónesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Mið-Austurlönd og Norður-Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA, Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Frekari upplýsingar er að finna á , og almennri . Fylgjast má með starfsemi Alvotech á , , og .

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson forstöðumaður



EN
25/06/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch