ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Markaðsleyfi veitt fyrir AVT02 líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við Humira® í Ástralíu

Markaðsleyfi veitt fyrir AVT02 líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við Humira® í Ástralíu

  • Eykur aðgengi að hagkvæmu adalimumab í háum styrk í Ástralíu
  • Fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan í samstarfi Alvotech og Cipla, en fyrirtækin vinna einnig saman að fjórum öðrum verkefnum

Alvotech (First North: ALVO) kynnti í dag að lyfjastofnun Ástralíu hafi veitt Cipla Australia Ptyu Ltd („Cipla“) markaðsleyfi fyrir AVT02, líftæknilyfjahliðstæðu við Humira® (adalimumab) í háum styrk.

Líftæknilyfjahliðstæða Alvotech við Humira (adalimumab) er leyfð til markaðssetningar í Ástralíu í áfylltri sprautu og áfylltum lyfjapenna, sem hannaður var með þægindi sjúklinga í huga. Í Ástralíu verður líftæknilyfjahliðstæðan markaðssett undir heitunum Ciptunec og Ardalicip.

„Við erum afar ánægð að hafa hlotið markaðsleyfi í Ástralíu, eftir að lyfið hlaut markaðsleyfi og er þegar komið í sölu í fjölmörgum ríkjum Evrópu og í Kanada. Þar sem markmið okkar er að bæta aðgengi sjúklinga að hagstæðum líftæknilyfjum, fögnum við þessum áfanga,“ sagði Mark Levick, forstjóri Alvotech.

„Það er mikilvægt skref í samstarfi Cipla og Alvotech að fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan hafi nú hlotið markaðsleyfi. Við hlökkum til að geta aukið umsvif okkar á markaði fyrir líftæknilyfjahliðstæður með því að bæta aðgengi að hagkvæmu adalimumab í háum styrk fyrir sjúklinga í Ástralíu,“ sagði Nishant Saxena, forstjóri alþjóðlegrar starfsemi Cipla í Evrópu og á nýmörkuðum.

Þetta er fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan í samstarfi Cipla og Alvotech sem hlýtur markaðsleyfi, en . bættu fyrirtækin samstarfi í Suður Afríku við fyrri samning og gerðu þau viðbótarsamning um samstarf í Ástralíu og Nýja Sjálandi, sem náði til fjögurra annarra líftæknilyfjahliðstæða sem Alvotech er með í þróun og geta nýst í meðferð við sjálfsónæmis-, augn- og beinsjúkdómum auk krabbameins.  

Um AVT02 / Ciptunec / Ardalicip (adalimumab)

AVT02, sem markaðssett er sem Ciptunec / Ardalicip í Ástralíu, er einstofna mótefni og líftæknilyfjahliðstæða við Humira (adalimumab) sem binst sértækt við tumor necrosis factor. Sama líftæknilyfjahliðstæðan hefur verið samþykkt í ESB ríkjunum, Noregi, Íslandi, Lichtenstein, Bretlandi og Sviss sem Hukyndra en í Kanada og Sádí Arabíu sem Simlandi. Umsóknir um markaðsleyfi eru til umsagnar í mörgum löndum, þar á meðal Bandaríkjunum.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson,



EN
14/11/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Bi...

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Biosimilar to Eylea® According to the settlement agreement, the proposed biosimilar to Eylea® (aflibercept) can be marketed in the U.S., if approved by the FDA, in the fourth quarter of 2026, or earlier under certain circumstances REYKJAVIK, Iceland and TEL AVIV, Israel and PARSIPPANY, N.J., Dec. 19, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, and Teva Pharmaceuticals, a U.S. affiliate of Teva P...

 PRESS RELEASE

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Bi...

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Biosimilar to Eylea® According to the settlement agreement, the proposed biosimilar to Eylea® (aflibercept) can be marketed in the U.S., if approved by the FDA, in the fourth quarter of 2026, or earlier under certain circumstances  REYKJAVIK, ICELAND & TEL AVIV, ISRAEL & PARSIPPANY, NJ (December 19, 2025) — Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, and Teva Pharmaceuticals, a U.S. affiliate of Teva Pharmaceutical Indust...

 PRESS RELEASE

Alvotech og Teva ná samningi um að sala AVT06 hliðstæðunnar við Eylea ...

Alvotech og Teva ná samningi um að sala AVT06 hliðstæðunnar við Eylea má hefjast í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi 2026 Alvotech (NASDAQ: ALVO) og Teva Pharmaceuticals, bandarískt dótturfyrirtæki Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (NYSE and TASE: TEVA), hafa náð samningi við Regeneron Pharmaceuticals sem veitir Alvotech og Teva heimild til að markaðssetja AVT06, hliðstæðu við líftæknilyfið Eylea (aflibercept), í Bandaríkjunum. Samkvæmt samningnum getur sala hliðstæðunnar hafist í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi 2026, eða fyrr að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. „Við höfum nýlega hlo...

 PRESS RELEASE

Alvotech Successfully Places USD 108 Million Senior Unsecured Converti...

Alvotech Successfully Places USD 108 Million Senior Unsecured Convertible Bonds in a Significantly Oversubscribed Offering THIS PRESS RELEASE MAY NOT BE DISTRIBUTED, RELEASED, OR PUBLISHED, DIRECTLY OR INDIRECTLY, IN OR INTO AUSTRALIA, BELARUS, CANADA, HONG KONG, JAPAN, NEW ZEALAND, RUSSIA, SWITZERLAND, SINGAPORE, SOUTH AFRICA, SOUTH KOREA, THE UNITED STATES OF AMERICA OR ANY OTHER JURISDICTION IN WHICH SUCH ACTIONS, WHOLLY OR IN PART, WOULD BE UNLAWFUL OR DEMAND ADDITIONAL REGISTRATION OR OTHER MEASURES. PLEASE REFER TO “IMPORTANT INFORMATION” IN THE END OF THIS PRESS RELEASE. REYKJAVIK, ...

 PRESS RELEASE

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breyt...

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breytanlegra skuldabréfum að fjárhæð 108 milljónir dollara REYKJAVÍK (17. DESEMBER 2025) - Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði selt breytanleg skuldabréf að fjárhæð 108 milljónir bandaríkjadala til hóps um 20 alþjóðlegra fjárfesta í lokuðu útboði. Mikil umframeftirspurn var eftir bréfum í útboðinu. Fjármögnunin styður við fjárfestingu félagsins í þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, sem áætlað er að verði um 250 milljónir bandaríkjadala á næsta ári. Félagið er nú að þróa 30 hliðstæður líftækn...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch