ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Sarah Tanksley ráðin framkvæmdastjóri gæðaeftirlits hjá Alvotech

Sarah Tanksley ráðin framkvæmdastjóri gæðaeftirlits hjá Alvotech

Alvotech (NASDAQ First North:ALVO) tilkynnti í dag að Sarah Tanksley hafi verið ráðin framkvæmdastjóri gæðaeftirlits hjá Alvotech en hún tekur við af Reem Malki, sem beðist hefur lausnar af persónulegum ástæðum. Sarah Tanksley mun hefja störf þann 14. október n.k.

„Sarah hefur um nokkurt skeið unnið náið með Alvotech sem ráðgjafi og við erum afar ánægð að bjóða hana velkomna í nýtt hlutverk,“ sagði Mark Levick, forstjóri Alvotech. “Þekking hennar á starfsemi Alvotech mun auðvelda þessa breytingu. Við fögnum því að geta nýtt okkur þekkingu hennar á lyfjaeftirliti og af góðum framleiðsluháttum í lyfjaframleiðslu (GMP). Sarah býr að afar hagnýtri þekkingu á þessu sviði, úr fyrri störfum fyrir bandaríska eftirlitsaðila og innan lyfjaiðnaðarins. Ég vil einnig þakka Reem fyrir framlag hennar til Alvotech, þar sem við höfum byggt upp framúrskarandi aðstöðu til þróunar og framleiðslu, auk þess að markaðssetja fyrsta líftæknihliðstæðulyf okkar í Evrópu og Kanada.“

Sarah Tanksley hefur yfir 20 ára reynslu af störfum fyrir bandarískar eftirlits- og rannsóknarstofnanir og sem ráðgjafi í eftirlitsmálum fyrir lyfjaiðnaðinn. Hún er aðjúnkt við læknadeild Georgetownháskóla og við Johns Hopkins háskólann, þar sem hún kennir nemendum í meistara- og doktorsnámi góða framleiðsluhætti og um lyfjaeftirlit. Áður gegndi hún stöðum við Bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA) og Bandarísku heilbrigðisstofnunina (NIH). Sarah er með MS gráðu í lyfjaeftirliti með áherslu á líftæknilyf frá Johns Hopkins háskólanum og MS gráðu í lífefnafræði og sameindalíffræði frá læknadeild Georgetownháskóla.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson



EN
11/10/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Bi...

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Biosimilar to Eylea® According to the settlement agreement, the proposed biosimilar to Eylea® (aflibercept) can be marketed in the U.S., if approved by the FDA, in the fourth quarter of 2026, or earlier under certain circumstances REYKJAVIK, Iceland and TEL AVIV, Israel and PARSIPPANY, N.J., Dec. 19, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, and Teva Pharmaceuticals, a U.S. affiliate of Teva P...

 PRESS RELEASE

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Bi...

Alvotech and Teva Secure U.S. Settlement Date for AVT06, a Proposed Biosimilar to Eylea® According to the settlement agreement, the proposed biosimilar to Eylea® (aflibercept) can be marketed in the U.S., if approved by the FDA, in the fourth quarter of 2026, or earlier under certain circumstances  REYKJAVIK, ICELAND & TEL AVIV, ISRAEL & PARSIPPANY, NJ (December 19, 2025) — Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, and Teva Pharmaceuticals, a U.S. affiliate of Teva Pharmaceutical Indust...

 PRESS RELEASE

Alvotech og Teva ná samningi um að sala AVT06 hliðstæðunnar við Eylea ...

Alvotech og Teva ná samningi um að sala AVT06 hliðstæðunnar við Eylea má hefjast í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi 2026 Alvotech (NASDAQ: ALVO) og Teva Pharmaceuticals, bandarískt dótturfyrirtæki Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (NYSE and TASE: TEVA), hafa náð samningi við Regeneron Pharmaceuticals sem veitir Alvotech og Teva heimild til að markaðssetja AVT06, hliðstæðu við líftæknilyfið Eylea (aflibercept), í Bandaríkjunum. Samkvæmt samningnum getur sala hliðstæðunnar hafist í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi 2026, eða fyrr að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. „Við höfum nýlega hlo...

 PRESS RELEASE

Alvotech Successfully Places USD 108 Million Senior Unsecured Converti...

Alvotech Successfully Places USD 108 Million Senior Unsecured Convertible Bonds in a Significantly Oversubscribed Offering THIS PRESS RELEASE MAY NOT BE DISTRIBUTED, RELEASED, OR PUBLISHED, DIRECTLY OR INDIRECTLY, IN OR INTO AUSTRALIA, BELARUS, CANADA, HONG KONG, JAPAN, NEW ZEALAND, RUSSIA, SWITZERLAND, SINGAPORE, SOUTH AFRICA, SOUTH KOREA, THE UNITED STATES OF AMERICA OR ANY OTHER JURISDICTION IN WHICH SUCH ACTIONS, WHOLLY OR IN PART, WOULD BE UNLAWFUL OR DEMAND ADDITIONAL REGISTRATION OR OTHER MEASURES. PLEASE REFER TO “IMPORTANT INFORMATION” IN THE END OF THIS PRESS RELEASE. REYKJAVIK, ...

 PRESS RELEASE

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breyt...

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breytanlegra skuldabréfum að fjárhæð 108 milljónir dollara REYKJAVÍK (17. DESEMBER 2025) - Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði selt breytanleg skuldabréf að fjárhæð 108 milljónir bandaríkjadala til hóps um 20 alþjóðlegra fjárfesta í lokuðu útboði. Mikil umframeftirspurn var eftir bréfum í útboðinu. Fjármögnunin styður við fjárfestingu félagsins í þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, sem áætlað er að verði um 250 milljónir bandaríkjadala á næsta ári. Félagið er nú að þróa 30 hliðstæður líftækn...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch