ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Staða umsókna Alvotech um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir AVT02, útskiptilega líftæknilyfjahliðstæðu við Humira

Staða umsókna Alvotech um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir AVT02, útskiptilega líftæknilyfjahliðstæðu við Humira

  • Bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA) hefur staðfest að frestur þess til að afgreiða umsókn um leyfi til markaðssetningar AVT02 sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira sé til 13. apríl 2023
  • FDA hefur lokið skoðun á umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT02 sem líftæknilyfjahliðstæðu með útskiptileika við Humira í háum styrk og staðfest að framlögð gögn sýni að kröfur um útskiptileika séu uppfylltar. Veiting markaðsleyfis í Bandaríkjunum er nú háð fullnægjandi niðurstöðu komandi endurúttektar á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins
  • Alvotech gerir ráð fyrir að FDA geri endurúttektina á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins á fyrsta fjórðungi ársins 2023

Bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA) hefur staðfest að umsókn Alvotech  um markaðsleyfi fyrir AVT02, sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira verði afgreidd eigi síðar en 13. apríl nk. Samþykki á umsókninni er háð fullnægjandi niðurstöðu endurúttektar á framleiðsluaðstöðu Alvotech í Reykjavík. Alvotech vinnur með FDA að því að skipuleggja úttektina á fyrsta ársfjórðungi 2023.

FDA hefur jafnframt staðfest að stofnunin geri ekki frekari athugasemdir við umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir AVT02 sem hliðstæðu með útskiptileika (e. interchangeability) við Humira í háum styrk. Meginskilyrðið sem eftir er að uppfylla fyrir veitingu leyfis til markaðssetningar með útskiptileika er því einnig fullnægjandi niðurstaða úttektarinnar.

„Það er mjög ánægjulegt að fá staðfestingu frá FDA á því að stofnunin geri ekki frekari athugasemdir við umsókn um markaðsleyfi fyrir útskiptilega líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech og að unnt verði að veita leyfið þegar Alvotech hefur uppfyllt skilyrði FDA með komandi úttekt, sem við reiknum með að muni eiga sér stað á fyrsta ársfjórðungi næsta árs,“ sagði Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech. „Við erum enn mjög spennt fyrir því að hefja markaðssetningu lyfsins í Bandaríkjunum 1. júlí 2023 og sannfærð um að líftæknilyfjahliðstæða Alvotech með útskiptileika muni auka aðgengi sjúklinga í Bandaríkjunum að þessu mikilvæga meðferðarúrræði.“

AVT02 er þegar til sölu í 17 löndum, þeirra á meðal í Kanada, Þýskalandi og Frakklandi. Markaðsleyfi hefur þegar verið veitt í 35 löndum alls. Í mars sl. tryggði Alvotech sér samþykki framleiðanda frumlyfsins fyrir því að markaðssetning AVT02 geti hafist í Bandaríkjunum 1. júlí 2023, að fengnu leyfi lyfjayfirvalda. Teva Pharmaceuticals, dótturfyrirtæki Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (NYSE og TASE: TEVA) hefur samið við Alvotech um einkarétt til markaðssetningar og sölu AVT02 í Bandaríkjunum.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson



EN
22/12/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Increase in Number of Own Shares

Alvotech Announces Increase in Number of Own Shares REYKJAVIK, ICELAND (February 11, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, has increased the Company´s share capital by an amount of one hundred and twenty-five thousand (USD 125,000) by issuing twelve million and five-hundred thousand (12,500,000) ordinary shares. The Company’s subsidiary, Alvotech Manco ehf. (the “subsidiary”), has subscribed to all of the newly issued shares for a price of USD 5.2 per share. Th...

 PRESS RELEASE

Alvotech tilkynnir um aukningu í fjölda eigin bréfa

Alvotech tilkynnir um aukningu í fjölda eigin bréfa REYKJAVIK (11. febrúar 2026) - Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að stjórn fyrirtækisins hefði ákveðið að gefa út tólf og hálfa milljón (12.500.000) nýrra almennra hluta í félaginu. Dótturfélag Alvotech, Alvotech Manco ehf. („dótturfélagið“) kaupir öll bréfin af móðurfélaginu á genginu 5,2 bandaríkjadalir á hlut. Hlutir dótturfélagsins eru taldir til eigin hlutabréfa Alvotech og fylgir þeim því hvorki atkvæðisréttur né réttur til arðgreiðslu. Að loknum þessum viðskiptum á dótturfélagið alls 16.254.005 hluti, eða um 4,7% útgefinna hl...

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Positive Top-Line Results from Pivotal Pharmacokine...

Alvotech Announces Positive Top-Line Results from Pivotal Pharmacokinetic Study for Proposed Biosimilar to Entyvio® The study, which assessed the pharmacokinetics, safety, tolerability and immunogenicity of AVT80 compared to Entyvio® in healthy adult participants, met all its primary endpoints REYKJAVIK, Iceland, Feb. 05, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced today positive top-line results from a pharmacokinetic (PK) study for AVT80, a bio...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch