ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Stjórn Alvotech samþykkir áætlun um að undirbúa skráningu á Aðalmarkað Nasdaq á Íslandi

Stjórn Alvotech samþykkir áætlun um að undirbúa skráningu á Aðalmarkað Nasdaq á Íslandi

  • Eftir skráningu félagsins á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi hyggst Alvotech undirbúa að færa skráningu á Íslandi yfir á Aðalmarkaðinn
  • Skráning á Aðalmarkaðnum eykur sýnileika og breikkar hóp mögulegra fjárfesta auk þess að opna leið til þátttöku í innlendum og alþjóðlegum hlutabréfavísitölum.

Alvotech tilkynnti í dag að stjórn félagsins hefði samþykkt áætlun um að undirbúa skráningu á Aðalmarkað Nasdaq Iceland, en félagið er nú skráð á Nasdaq First North Growth markaðinn hér á landi. Taka bréfa í Alvotech til viðskipta á Aðalmarkaðnum er háð útkomu úr ítarlegu umsóknarferli. Með skráningu á Aðalmarkaðinn ættu hlutabréf í félaginu að ná til breiðari hóps. Þá getur skráð fyrirtæki á Aðalmarkaðnum átt möguleika á að vera valið til þátttöku í innlendum og erlendum hlutabréfavísitölum. Í september næstkomandi munu fyrirtæki skráð á Aðalmarkaðinn, sem uppfylla kröfur um veltu og fleiri þætti, eiga möguleika á að vera skráð í nokkrar nýmarkaðsvísitölur FTSE Russell. Val á íslenskum hlutabréfum til þátttöku í FTSE vísitölunum er  endurskoðað reglulega eða á sex mánaða fresti. 

Hlutabréf í Alvotech eru nú skráð á Nasdaq hlutabréfamarkaðnum í Bandaríkjunum og Nasdaq First North Growth markaðnum á Íslandi undir auðkenninu "ALVO" og hófust viðskipti með bréfin í Bandaríkjunum 16. júní s.l. og á Íslandi 23. júní s.l.

"Við erum mjög spennt fyrir því að hefja umsóknarferlið til að færa viðskipti með hlutabréf í Alvotech yfir á Aðalmarkaðinn á Íslandi, eftir að við náðum þeim áfanga að vera fyrsta íslenska fyrirtækið sem skráð er samtímis í Bandaríkjunum og á Íslandi," sagði Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech. 

Nasdaq First North Growth markaðurinn er markaðstorg með hlutabréf sem starfar eftir einfaldari reglum en Aðalmarkaður Nasdaq Iceland, auk þess sem tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um gagnsæi í tengslum við útgefendur verðbréfa (2004/109/EC) gildir ekki um viðskipti með hlutabréf á slíku markaðstorgi. Móðurfélag Alvotech er skráð hlutafélag í Lúxemborg, og ef flutningur á Aðalmarkaðinn á sér stað myndi þarlent fjármálaeftirlit, Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF), teljast eftirlitsaðili samkvæmt skilgreiningu gagnsæistilskipunarinnar.  

Alvotech þróar átta líftæknilyfjahliðstæður, sem geta nýst til meðferðar við fjölda sjúkdóma. Markaður fyrir viðmiðunarlyf þessara hliðstæða er áætlaður rúmlega 11.050 milljarðar króna (85 milljarðar Bandaríkjadala) á ári, samkvæmt greiningu EVALUATE Pharma. 

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Frekari upplýsingar veitir:

Alvotech, fjárfestatengsl



EN
12/08/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch