OCS OCULIS HOLDING AG

Oculis birtir niðurstöður aðalfundar 2025

Oculis birtir niðurstöður aðalfundar 2025

ZUG, Sviss, June 05, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Oculis Holding AG (Nasdaq: OCS; XICE: OCS) („Oculis“ eða „félagið“), tilkynnti í dag niðurstöður aðalfundar 2025 sem haldinn var 4. júní 2025 á Ochsen-Zug, Kolinplatz 11, CH-6300 Zug, Sviss, klukkan 13:00 að íslenskum tíma / 15:00 CEST / 09:00 EDT.

Hluthafar félagsins samþykktu alla dagskrárliði.

Hluthafar samþykktu ársreikning ársins 2024, þar á meðal lögbundin reikningsskil og samstæðureikning 2024.

Hluthafar tóku til greina að á grundvelli lögbundinna reikningsskila var tap félagsins CHF 5.179.000 á fjárhagsárinu sem lauk þann 31. desember 2024, og ákváðu að uppsafnað tap í efnahagsreikningi að fjárhæð CHF 46.577.000 skyldi flutt yfir á næsta reikningsár.

Hluthafar félagsins samþykktu og staðfestu aðgerðir og ákvarðanir stjórnar og framkvæmdastjórnar fyrir árið 2024.

Anthony Rosenberg var endurkjörinn sem formaður stjórnar. Christina Ackermann, Lionel Carnot, Arshad M. Khanani, Martijn Kleijwegt, Geraldine O’Keeffe, Riad Sherif og Robert K. Warner voru endurkjörin sem stjórnarmenn. Christina Ackermann, Lionel Carnot og Robert K. Warner voru endurkjörin sem meðlimir starfskjaranefndar. PricewaterhouseCoopers SA (Pully) voru endurkjörin sem endurskoðendur félagsins. PST Legal AG (Zug) var kjörið sem óháður umboðsaðili (e. Independent Proxy).

Hluthafar samþykktu starfskjör þeirra stjórnarmanna sem ekki sitja í framkvæmdastjórn:

  • Hámarksfjárhæð fastrar (ekki frammistöðutengdrar) þóknunar fyrir stjórnarmenn sem ekki sitja í framkvæmdastjórn til loka aðalfundar félagsins árið 2026: Samtals USD 572.000.
  • Hámarksvirði hlutafjár- eða hlutafjártengdrar þóknunar fyrir átta stjórnarmenn sem ekki sitja í framkvæmdastjórn til loka aðalfundar félagsins árið 2026: USD 2.150.000 (að undanskildu tryggingagjaldi og lífeyrisiðgjöldum launagreiðanda).

Hluthafar samþykktu starfskjör meðlima framkvæmdastjórnar:

  • Hámarksfjárhæð fastrar (ekki frammistöðutengdrar) þóknunar fyrir þrjá meðlimi framkvæmdastjórnar fyrir almanaksárið 2026, til greiðslu á árinu 2026: Samtals USD 2.478.240.
  • Hámarksfjárhæð breytilegrar þóknunar fyrir þrjá meðlimi framkvæmdastjórnar vegna almanaksársins 2025, til greiðslu á árinu 2026: Samtals USD 1.753.760.
  • Hámarksvirði hlutafjár- eða hlutafjártengdrar þóknunar fyrir þrjá meðlimi framkvæmdastjórnar til loka almanaksársins 2026: USD 15.500.000 (að undanskildu tryggingagjaldi og lífeyrisiðgjöldum launagreiðanda).

Hluthafar samþykktu, í ráðgefandi atkvæðagreiðslu, starfskjaraskýrslu félagsins fyrir árið 2024.

Hluthafar samþykktu heimild til hlutafjárhækkunar (e. Capital Band) sem nemur 27.266.837 skráðum hlutum, sem leiðir til hækkunarheimildar frá CHF 545.336,74 til 818.005,11 og tilheyrandi breytinga á grein 3a, málsgreinum 1 til 3, í samþykktum félagsins í þeirri mynd sem birt er á vefsíðu félagsins á .

Hluthafar samþykktu skilyrta heimild til útgáfu á hlutafé fyrir starfsmenn og einstaklinga í sambærilegum stöðum, sem nemur að hámarki CHF 124.800 með útgáfu 12.480.000 skráðra hluta, og tilheyrandi breytingu á grein 3c, málsgrein 1, í samþykktum félagsins í þeirri mynd sem birt er á vefsíðu félagsins á .

Um Oculis

Oculis er alþjóðlegt líftæknifyrirtæki (Nasdaq: OCS; XICE: OCS) sem hefur það að markmiði að þróa augnlyf sem bæta sjón í alvarlegum augnsjúkdómum. Í þróun hjá félaginu eru ný augnlyf sem geta haft byltingarkennd áhrif. Þar á meðal er OCS-01, augndropar byggðir á Optireach® tækni félagsins. Klínískar rannsóknir á OCS-01 hafa sýnt verulegan árangur í meðferð á sjónhimnubjúg í sykursýki og til meðhöndlunar á bólgu og verkjum eftir augnaðgerðir. Þá er félagið með OCS-02 í klínískum prófunum en það eru augndropar sem innihalda TNF-hamlara líftæknilyf, sem verka gegn augnþurrki og bólgum í yfirborði augans. Loks má nefna OCS-05, sem bundnar eru vonir við að geti hjálpað til við meðhöndlun á hrörnun eða rýrnun taugavefs í auga sem tengist sjúkdómum svo sem sjóntaugabólgu, gláku, hrörnun í augnbotnum, sjónhimnusjúkdómi í sykursýki og hornhimnusjúkdómi vegna taugaskemmda. Höfuðstöðvar Oculis eru í Sviss og félagið er með starfsstöðvar í Bandaríkjunum og á Íslandi. Oculis stefnir að því að koma lyfjum á markað sem geta gjörbreytt og auðveldað meðhöndlun algengra augnsjúkdóma um allan heim. Stjórnendur Oculis hafa mikla reynslu á sviði lyfjaiðnaðar og hafa náð miklum árangri hver á sínu sviði. Þá standa leiðandi alþjóðlegir fjárfestingarsjóðir á sviði heilbrigðisvísinda að baki félaginu.

Frekari upplýsingar má finna á .

Tengiliðir hjá Oculis

Ms. Sylvia Cheung, CFO

Fjárfestatengsl

LifeSci Advisors

Corey Davis, Ph.D.

 

Fjölmiðlatengsl

ICR Healthcare

Amber Fennell / David Daley / Sean Leous

 



EN
05/06/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OCULIS HOLDING AG

 PRESS RELEASE

Oculis Publishes Notifications of Transactions by Persons Discharging ...

Oculis Publishes Notifications of Transactions by Persons Discharging Managerial Responsibilities and Persons Closely Associated ZUG, Switzerland, Feb. 18, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- The attached notifications relate to the vesting of earnout shares and associated removal of restrictions on these ordinary shares. Attachments

 PRESS RELEASE

Oculis Appoints Katie Kazem as Chief Legal Officer

Oculis Appoints Katie Kazem as Chief Legal Officer ZUG, Switzerland, Feb. 17, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Ms. Kazem brings extensive and global expertise in corporate governance and securities law, drawing on a distinguished track record as external legal counsel to leading life sciences companiesChief Legal Officer (CLO) appointment enhances leadership capabilities to advance three highly differentiated late-stage assets toward near-term clinical and regulatory milestones Oculis Holding AG (Nasdaq: OCS / XICE: OCS) (“Oculis”), a global biopharmaceutical company focused on breakthrough inno...

 PRESS RELEASE

Oculis Appoints Katie Kazem as Chief Legal Officer

Oculis Appoints Katie Kazem as Chief Legal Officer Ms. Kazem brings extensive and global expertise in corporate governance and securities law, drawing on a distinguished track record as external legal counsel to leading life sciences companiesChief Legal Officer (CLO) appointment enhances leadership capabilities to advance three highly differentiated late-stage assets toward near-term clinical and regulatory milestones ZUG, Switzerland, February 17, 2026 -- Oculis Holding AG (Nasdaq: OCS / XICE: OCS) (“Oculis”), a global biopharmaceutical company focused on breakthrough innovations to addr...

 PRESS RELEASE

Oculis to Showcase Transformative Late-stage Pipeline in Neuro-ophthal...

Oculis to Showcase Transformative Late-stage Pipeline in Neuro-ophthalmology and Ophthalmology at the 2026 J.P. Morgan Healthcare Conference ZUG, Switzerland, Jan. 08, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Breakthrough therapy designation granted as Company advances the PIONEER registrational program in optic neuropathies to create a potential market of $7B+ in the U.S. aloneMultiple milestones anticipated from late-stage portfolio including topline results from DIAMOND Phase 3 trials with OCS-01 eye drops in diabetic macular edema (DME) expected in Q2 2026 Riad Sherif, M.D., Chief Executive Officer, ...

 PRESS RELEASE

Oculis to Showcase Transformative Late-stage Pipeline in Neuro-ophthal...

Oculis to Showcase Transformative Late-stage Pipeline in Neuro-ophthalmology and Ophthalmology at the 2026 J.P. Morgan Healthcare Conference Breakthrough therapy designation granted as Company advances the PIONEER registrational program in optic neuropathies to create a potential market of $7B+ in the U.S. aloneMultiple milestones anticipated from late-stage portfolio including topline results from DIAMOND Phase 3 trials with OCS-01 eye drops in diabetic macular edema (DME) expected in Q2 2026 Riad Sherif, M.D., Chief Executive Officer, will present at the J.P. Morgan Healthcare Conference ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch