OLGERD OLGERDIN EGILL SKALLAGRIMSSON HF.

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Kaupréttaráætlun fyrir starfsfólk Ölgerðarinnar og dótturfélaga

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Kaupréttaráætlun fyrir starfsfólk Ölgerðarinnar og dótturfélaga

Í samræmi við starfskjarastefnu Ölgerðarinnar sem samþykkt var á aðalfundi þann 8. maí 2025 hefur stjórn heimild til að samþykkja kaupréttaráætlun byggða á 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og á grundvelli hennar bjóða starfsmönnum félagsins og eftir atvikum dótturfélaga þess kauprétt að hlutum í félaginu. Slík kaupréttaráætlun var samþykkt af stjórn félagsins þann 26. júní 2025 og staðfest af Skattinum þann 5. ágúst 2025.



Nú hafa verið gerðir kaupréttarsamningar við starfsfólk í samræmi við kaupréttaráætlunina. Kaupréttur samkvæmt áætluninni nær til allra fastráðinna starfsmanna félagsins og dótturfélaga þess og er markmið áætlunarinnar að tengja hagsmuni starfsmanna félagsins við afkomu og langtímamarkmið félagsins og hluthafa þess. Samkvæmt áætluninni öðlast hver kaupréttarhafi rétt til að kaupa hluti í Ölgerðinni fyrir að hámarki 750.000 krónur einu sinni á ári í þrjú ár, fyrst þann 1. september 2026, næst þann 1. september 2027 og loks þann 1. september 2028, samtals fyrir allt að 2.250.000 krónur. Ávinnsla kaupréttar er bundin því skilyrði að kaupréttarhafi starfi fyrir félagið eða dótturfélag þess, en að öðrum kosti fellur áunninn en ónýttur kaupréttur niður ef starfsmaður lætur af störfum fyrir lok ávinnigstímabils.



Kaupverð hluta er vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins síðustu tíu viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem er 31. ágúst 2025, eða kr. 18,35 hver hlutur. Alls gerðu 303 starfsmenn Ölgerðarinnar og dótturfélaga kaupréttarsamninga. Kaupréttarsamningarnir ná samtals til allt að 12.383.913 hluta á ári miðað við 100% nýtingu kauprétta. 



EN
31/08/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OLGERDIN EGILL SKALLAGRIMSSON HF.

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Andri Þór skiptir um hlutverk og býður sig fram í stjórn – J...

Bera hf.: Andri Þór skiptir um hlutverk og býður sig fram í stjórn – Jón Þorsteinn og Óli Rúnar stýra Beru og Ölgerðinni Andri Þór Guðmundsson, sem sinnt hefur starfi forstjóra Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf., (nú Bera hf.) í rúmlega tvo áratugi, hefur ákveðið að skipta um hlutverk, láta af störfum sem forstjóri, bjóða sig fram til stjórnar og gefa kost á sér til stjórnarformennsku móðurfélagsins Beru. Jafnframt mun Andri Þór sinna sértækum verkefnum með áherslu á fyrirliggjandi tækifæri til vaxtar félagsins.  Þá hefur Jón Þorsteinn Oddleifsson verið ráðinn forstjóri Beru og Óli ...

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Fjárhagsdagatal 2026

Bera hf.: Fjárhagsdagatal 2026 Bera hf. (áður Ölgerðin) mun birta tilkynningar,  árshluta- og ársuppgjör og halda aðalfund í samræmi við það sem hér segir: EfniDags. Birting ársreiknings fjárhagsársins 2025 sem lýkur 28. febrúar 2026 (Tímabilið 1. mars - 28. febrúar)  16. apríl 2026 Aðalfundur 2026  13. maí 2026   Afkomutilkynning   (Tímabilið 1. mars - 31. maí)  18. júní 2026 Birting árshlutareiknings fyrstu 6 mánaða fjárhagsársins 2026   (Tímabilið 1. mars - 31. ágúst)   8. október 2026 Afkomutilkynning  (Tímabilið 1. mars - 30. nóvember)  17. desember 2026  Birting ársreiknings fjárhagsá...

 PRESS RELEASE

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Niðurstöður hluthafafundar 26. febr...

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Niðurstöður hluthafafundar 26. febrúar 2026 Hluthafafundur í Ölgerðinni Egill Skallagrímsson hf., var haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11, Reykjavík, hinn 26. febrúar 2026, kl. 16:00. Samþykkt var tillaga stjórnar um að breyta nafni félagsins í Bera hf., og að rekstur félagsins sem tengist sölu, framleiðslu og dreifingu á drykkjarvörum yrði framseldur til dótturfélags félagsins, ÖES ehf., kt. 680126-0110. Fyrrnefnd tillaga fól í sér eftirfarandi breytingar á samþykktum félagsins: Ákvæði 1. gr. breytist og hljóðar nú svo: “Félagið er hlu...

 PRESS RELEASE

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD260831

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD260831 Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, OLGERD260831 fyrir 1.000 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 7,80% flötum vöxtum, en stefnt er að víxillinn verði tekinn til viðskipta og skráður í kauphöll Nasdaq Iceland. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 25. febrúar 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlarnir verða teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra. Grunnlýsing og viðauk...

 PRESS RELEASE

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Hluthafafundur 26. febrúar 2026

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Hluthafafundur 26. febrúar 2026 Hluthafafundur Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson hf. verður haldinn þann 26. febrúar 2026, kl. 16:00, í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11 í Reykjavík. Fundarboð með dagskrá er að finna í meðfylgjandi viðhengi. Endanleg dagskrá fundarins, tillögur stjórnar og önnur skjöl sem lögð verða fyrir hluthafafundinn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins, , sem og í höfuðstöðvum félagsins. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch