OLGERD OLGERDIN EGILL SKALLAGRIMSSON HF.

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD250923

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD250923

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, OLGERD250923 fyrir 1.000 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 8,20% flötum vöxtum, en óskað verður eftir því að víxillinn verði tekinn til viðskipta og skráður í kauphöll Nasdaq Iceland.

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni. Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 27. mars n.k.

Nánari upplýsingar veitir:

Jón Þorsteinn Oddleifsson, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs í síma 820-6491 eða



EN
20/03/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OLGERDIN EGILL SKALLAGRIMSSON HF.

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Fjárfestakynning

Bera hf.: Fjárfestakynning Meðfylgjandi er fjárfestakynning vegna afkomutilkynningar fjórða ársfjórðungs og tímabilsins 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026, samkvæmt stjórnendauppgjöri. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Afkomutilkynning fyrir 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026 sa...

Bera hf.: Afkomutilkynning fyrir 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026 samkvæmt stjórnendauppgjöri Helstu niðurstöður stjórnendauppgjörs fyrir fjórða ársfjórðung fjárhagsársins 2025 (Q4) eru: Gæðabakstur og Kjarnavörur bættust við samstæðuna þann 1. desember og eru því hluti af rekstri samstæðunnar allan fjórða ársfjórðung fjárhagsársins.Vörusala samstæðunnar jókst um 17,8% miðað við sama tímabil á síðasta ári. EBITDA ársfjórðungsins var 1.166 millj. kr. samanborið við 1.169 millj. kr. árið áður.Hagnaður eftir skatta var 314 millj. kr. og lækkaði um 140 millj. kr. Helstu niðurstöður stjórn...

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs fyrir tímabilið 1. mars 202...

Bera hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs fyrir tímabilið 1. mars 2025 – 28. febrúar 2026 Bera hf. mun birta afkomutilkynningu fyrir tímabilið 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026 eftir lokun markaða þann 26. mars 2026.  Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 26. mars 2026, klukkan 16:30. Á fundinum kynna stjórnendur drög að ársreikningi fjárhagsársins 2025, áætlun fjárhagsársins 2026 og svara spurningum. Fundurinn verður haldinn í húsnæði félagsins að Grjóthálsi 7-10, 110 Reykjavík. Fundinum verður einnig streymt. Ársreikningur fjárhagsársins 2025 sem lauk ...

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru

Bera hf.: Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Óskar Ingi Magnússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri Beru hf. Óskar hefur starfað hjá Ölgerðinni í 10 ár og á þeim tíma komið að fjölbreyttum verkefnum, nú síðast í lykilhlutverki á fjármálasviði þar sem hann stýrði bæði hagdeild og stafrænni tækni. Áður starfaði Óskar hjá WOW air sem sérfræðingur í hagdeild, þar sem hann vann að áætlanagerð og greiningum. Óskar er með M.Sc. gráðu í Management Science and Engineering frá Columbia háskóla í New York og B.Sc.í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Framundan eru spennandi tímar hjá Beru þar ...

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Andri Þór skiptir um hlutverk og býður sig fram í stjórn – J...

Bera hf.: Andri Þór skiptir um hlutverk og býður sig fram í stjórn – Jón Þorsteinn og Óli Rúnar stýra Beru og Ölgerðinni Andri Þór Guðmundsson, sem sinnt hefur starfi forstjóra Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf., (nú Bera hf.) í rúmlega tvo áratugi, hefur ákveðið að skipta um hlutverk, láta af störfum sem forstjóri, bjóða sig fram til stjórnar og gefa kost á sér til stjórnarformennsku móðurfélagsins Beru. Jafnframt mun Andri Þór sinna sértækum verkefnum með áherslu á fyrirliggjandi tækifæri til vaxtar félagsins.  Þá hefur Jón Þorsteinn Oddleifsson verið ráðinn forstjóri Beru og Óli ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch