OLGERD OLGERDIN EGILL SKALLAGRIMSSON HF.

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Úthlutun kauprétta

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Úthlutun kauprétta

Á fundi stjórnar Ölgerðarinnar þann 21. apríl 2023 tók stjórn ákvörðun um að veita stjórnendum og tilteknum lykilstarfsmönnum kauprétti að samtals 59.500.000 hlutum í félaginu, eða sem samsvarar um 2,1% af hlutafé Ölgerðarinnar. Ákvörðunin byggir á samþykkt aðalfundar frá maí 2021. Kaupréttirnir voru veittir framkvæmdastjórn og tilteknum lykilstarfsmönnum. Þar af var forstjóra og meðlimum framkvæmdastjórnar veittur kaupréttur að samtals 31.500.000 hlutum, sem skiptast jafnt milli umræddra starfsmanna.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar þeirra eru í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Ölgerðarinnar hinn 19. maí 2022.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu ISK 11,90 per hlut, sem var dagslokagengi hluta í Ölgerðinni eins og það er skráð á aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 19. apríl 2023.
  • Kauprétturinn ávinnst á þremur árum frá úthlutun (e. vesting time). Fyrsta nýtingartímabil hefst þegar að ávinnslutímabili líkur og er kauprétturinn nýtanlegur í áföngum hinn 21. apríl ár hvert á árunum 2026-2028. Hafi ársreikningur félagsins ekki verið birtur á fyrirhuguðum nýtingardegi færist nýtingardagurinn það ár til næsta virka dags eftir birtingu ársreiknings. Kaupréttarhafi getur hverju sinni frestað nýtingu áunnins kaupréttar til næsta nýtingartímabils. Að því marki sem kaupréttur er ónýttur eftir 21. apríl 2028 fellur kauprétturinn niður.   
  • Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Ölgerðinni eða dótturfélögum Ölgerðarinnar á nýtingardegi. Komi starfslok kaupréttarhafa til vegna atvika sem kaupréttarhafa verður ekki um kennt skal hann þó eiga hlutfallslegan kauprétt að hlutunum miðað við þann tíma sem liðinn er af kaupréttartímabilinu og skal þá heimilt að neyta áunnins kaupréttar síns samkvæmt ákveðnum reglum.
  • Komi til þess að félagið verði afskráð úr kauphöll verður kauprétthafa heimilt að nýta allan áunninn kauprétt áður en slík afskráning kemur til framkvæmda.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Ölgerðin hefur veitt starfsfólki sínu nemur nú 136.375.000 hluta, eða um 4,9% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessa nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna út nýtingartímann er áætlaður um 162 milljónir og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Í viðhengi má finna gildandi starfskjarastefnu Ölgerðarinnar.

Viðhengi



EN
21/04/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OLGERDIN EGILL SKALLAGRIMSSON HF.

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Ársreikningur fyrir 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026

Bera hf.: Ársreikningur fyrir 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026 Vísað er til afkomutilkynningar sem Bera birti þann 26. mars síðastliðinn, með helstu niðurstöðum stjórnendauppgjörs fyrir fjórða ársfjórðungs og alls fjárhagsársins 2025. Á stjórnarfundi þann 16. apríl 2026 samþykktu stjórn og forstjóri ársreikning samstæðu Beru fyrir tímabilið 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026. Ársreikningurinn er viðhengdur. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Fjárfestakynning

Bera hf.: Fjárfestakynning Meðfylgjandi er fjárfestakynning vegna afkomutilkynningar fjórða ársfjórðungs og tímabilsins 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026, samkvæmt stjórnendauppgjöri. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Afkomutilkynning fyrir 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026 sa...

Bera hf.: Afkomutilkynning fyrir 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026 samkvæmt stjórnendauppgjöri Helstu niðurstöður stjórnendauppgjörs fyrir fjórða ársfjórðung fjárhagsársins 2025 (Q4) eru: Gæðabakstur og Kjarnavörur bættust við samstæðuna þann 1. desember og eru því hluti af rekstri samstæðunnar allan fjórða ársfjórðung fjárhagsársins.Vörusala samstæðunnar jókst um 17,8% miðað við sama tímabil á síðasta ári. EBITDA ársfjórðungsins var 1.166 millj. kr. samanborið við 1.169 millj. kr. árið áður.Hagnaður eftir skatta var 314 millj. kr. og lækkaði um 140 millj. kr. Helstu niðurstöður stjórn...

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs fyrir tímabilið 1. mars 202...

Bera hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs fyrir tímabilið 1. mars 2025 – 28. febrúar 2026 Bera hf. mun birta afkomutilkynningu fyrir tímabilið 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026 eftir lokun markaða þann 26. mars 2026.  Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 26. mars 2026, klukkan 16:30. Á fundinum kynna stjórnendur drög að ársreikningi fjárhagsársins 2025, áætlun fjárhagsársins 2026 og svara spurningum. Fundurinn verður haldinn í húsnæði félagsins að Grjóthálsi 7-10, 110 Reykjavík. Fundinum verður einnig streymt. Ársreikningur fjárhagsársins 2025 sem lauk ...

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru

Bera hf.: Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Óskar Ingi Magnússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri Beru hf. Óskar hefur starfað hjá Ölgerðinni í 10 ár og á þeim tíma komið að fjölbreyttum verkefnum, nú síðast í lykilhlutverki á fjármálasviði þar sem hann stýrði bæði hagdeild og stafrænni tækni. Áður starfaði Óskar hjá WOW air sem sérfræðingur í hagdeild, þar sem hann vann að áætlanagerð og greiningum. Óskar er með M.Sc. gráðu í Management Science and Engineering frá Columbia háskóla í New York og B.Sc.í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Framundan eru spennandi tímar hjá Beru þar ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch