NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova Klúbburinn hf. birtir uppgjör fjórða ársfjórðungs og ársins 2023

Nova Klúbburinn hf. birtir uppgjör fjórða ársfjórðungs og ársins 2023

Sterkur vöxtur þjónustutekna skilar sér í hækkun EBITDA, auknum hagnaði og betra sjóðstreymi

Helstu niðurstöður á fjórða ársfjórðungi:

  • Heildartekjur voru 3.327 m.kr. á fjórða ársfjórðungi 2023 samanborið við 3.354 m.kr. á  Á samanburðarári tekjufærði félagið einskiptislið að fjárhæð 39 m.kr. vegna sölu eigna, leiðrétt fyrir því er 0,05% tekjuvöxtur á milli ára
  • Þjónustutekjur námu samtals 2.424 m.kr. og vaxa um 3,4% á milli ára
  • EBITDA nam 961 m.kr. samanborið við 978 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári, EBITDA hlutfallið var 28,9% á fjórðungnum samanborið við 29,2% á fyrra ári
  • Hagnaður fjórða ársfjórðungs var 182 m.kr. og hækkar um 3,9%
  • Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum er 1.010 m.kr. samanborið við neikvætt 110 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári

Helstu niðurstöður ársins 2023:

  • Heildartekjur voru 12.993 m.kr. á árinu 2023 samanborið við 12.641 m.kr. á árinu 2022 og vaxa um 2,8% milli ára
  • Þjónustutekjur námu samtals 9.734 m.kr. og vaxa um 6,8% á milli ára
  • EBITDA nam 3.979 m.kr. og hækkar um 9,4% á milli ára, EBITDA hlutfallið var 30,6% á árinu 2023 samanborið við 28,8% á fyrra ári
  • Heildarhagnaður ársins 729 m.kr. og hækkar um 35% milli ára
  • Hagnaður á hlut var 0,19 krónur, samanborið við 0,15 krónur 2022
  • Eiginfjárhlutfall félagsins var 40,04% og eigið fé nam 9.277 m.kr. í árslok
  • Heildarfjárfestingar ársins 2023 voru 2.050 m.kr.



Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova:

„Við erum afskaplega stolt af niðurstöðu ársins 2023 og því uppgjöri sem við hjá Nova Klúbbnum erum að kynna. Við héldum áfram að fjárfesta í innviðum til að tryggja að við séum í forystu á markaðnum. Við höfum líka lagt verulega áherslu á að fjölga í hópi ánægðra viðskiptavina í farsíma- og netþjónustu, og það hefur tekist með því öfluga starfsfólki sem hjá Nova starfar.

Við sjáum þetta raungerast í ársreikningi félagsins en þjónustutekjur námu samtals 9.734 m.kr og hafa vaxið um 6.8% milli ára eða um 624 m.kr. EBITDA hækkaði um 9,4% frá fyrra ári og nam samtals 3.979 m.kr. á tímabilinu. EBITDA hlutfall tímabilsins er 30,6% samanborið við 28,8% á sama tímabili á fyrra ári. Rekstrarhagnaður (EBIT) hækkaði um 13,1% frá fyrra ári og nam samtals 1.826 m.kr. Hagnaður tímabilsins var 729 milljónir og hækkar um 190 milljónir frá fyrra ári sem nemur 35% hækkun.

Uppbygging fjarskiptainnviða er mikilvæg fyrir íslenskt samfélag og á síðasta ári voru fjölmörg mikilvæg verkefni framkvæmd. Uppbygging 5G hélt áfram og eru allir þéttbýlisstaðir yfir 400 íbúum nú með aðgang að 5G neti Nova og fjölgaði 5G sendum um 50% á árinu og voru 150 við árslok. Prófanir á 5,5G halda áfram og settum við íslandsmet í þráðlausum gagnahraða þar sem niðurhalshraði mældist 10 GÍG. Heildarfjárestingar voru yfir 2 milljarðar á árinu og teljum við að fjárfestingar muni lækka á þessu ári enda mörgum mikilvægum verkefnum lokið.

Margir aðrir sigrar hafa unnist á árinu, og eru nokkur atriði sem standa uppúr. Nova var fyrirtæki ársins í stærstu vinnustaðarannsókn á Íslandi og Nova sigraði Íslensku ánægjuvogina 15. árið í röð og er eina fyrirtækið í sögu ánægjuvogarinnar sem hefur unnið 15 ár í röð með marktækum mun. Nova liðið er lykillinn að öllum árangri félagsins. Vel heppnuð markaðssetning, góð þjónusta og forysta í innleiðingu nýjustu tækni hefur skilað Nova sterkri markaðshlutdeild og ánægðum og tryggum viðskiptavinum. Allir þessir þættir ásamt einstökum hópi starfsfólks hefur skilað félaginu miklum ávinningi og tekjuvexti undanfarin ár og er góður grunnur fyrir framtíðina.”



Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. febrúar, kl. 8:30, hjá Nova, Lágmúla 9 á 4. hæð. Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri, ásamt Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra, kynna uppgjörið og svara fyrirspurnum. Boðið verður uppá beint streymi sem hægt er að nálgast ásamt kynningarefni á heimasíðu Nova, . Hægt er að senda inn spurningar á



Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri, s. 770 1070

Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri, s. 770 1090.

Attachments



EN
27/02/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársins 2025

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársins 2025 Áframhaldandi sterkur rekstur leggur grunn að enn frekari vexti Rekstur Nova skilaði góðri afkomu á árinu 2025 og á fjórða ársfjórðungi. Heildartekjur á fjórða ársfjórðungi voru um 4,0 milljarðar og jukust um 15,25% milli ára, þjónustutekjur námu 2,8 milljörðum og hækkuðu um 3,3%. EBITDA var 1,1 milljarður og hækkaði um 3,6%, EBITDA hlutfallið var 29,8%. Hagnaður fjórðungsins var 239 milljónir og lækkaði um 2,0% milli ára. Heildartekjur ársins námu 14,3 ma.kr sem er umfram útgefið spábil í upphafi árs (13,7-14 ma.kr) EBIDTA er jaf...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársuppgjörs 2025 verðu...

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársuppgjörs 2025 verður birt eftir lokun markaða á morgun, 26. febrúar Nova Klúbburinn hf. birtir uppgjör fjórða ársfjórðungs og ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða á morgun, fimmtudaginn 26. febrúar.Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 27. febrúar, kl. 8:30, hjá Nova, Lágmúla 9, á 4. hæð. Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri, ásamt Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra, kynna uppgjör Nova Klúbbsins og svara fyrirspurnum. Boðið verður uppá beint streymi sem hægt verður að nálgast ásamt ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 – Lok endur...

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 – Lok endurkaupa Í 8. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.100.000 eigin hluti að kaupverði 9.072.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)16.2.202610:34600.0004,332.598.00017.2.202610:39600.0004,332.598.00018.2.202609:57600.0004,332.598.00019.2.202610:28300.0004,261.278.000Samtals2.100.000 9.072.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Nova Klúbburinn átti 104.400.000 eigin hluti fyrir ...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar Nova klúbburinn hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar hf. Kaupin eru liður í markvissri vaxtarstefnu Nova klúbbsins og styrkja verulega stöðu félagsins á fyrirtækjamarkaði. Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tæknibúnaðar og lausna og þjónustar um 10.000 fyrirtæki, þar á meðal langflest stærri fyrirtæki landsins. Hjá félaginu starfa um 100 sérfræðingar og býr það yfir öflugum innviðum á sviði vöru- og innkaupastýringar, vöruhúss, dreifingar og verkstæðisþjónustu. Ofar hefur áratuga reynslu af því að ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7 Í 7. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.242.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)09/02/202614:02600.0004,462.676.00010/02/20269:59600.0004,462.676.00011/02/20269:42600.0004,432.658.00012/02/202612:24600.0004,382.628.00013/02/20269:40600.0004,342.604.000Samtals3.000.000 13.242.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluni...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch