NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova Klúbburinn hf.: EBITDA jókst um 17% milli ára

Nova Klúbburinn hf.: EBITDA jókst um 17% milli ára

Nova Klúbburinn birtir uppgjör annars ársfjórðungs

EBITDA  jókst um 17% milli ára

  • Áfram góður EBITDA vöxtur og bætt EBITDA hlutfall milli tímabila
  • Þjónustutekjur Nova vaxa um 9% á milli ára og heildartekjur um 4,7%
  • Nova hefur nú þegar hafið prófanir á næstu kynslóð 5G

Þjónustutekjur Nova námu samtals 4.810 m.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins og vaxa um samtals 398 m.kr., sem er 9,0% vöxtur á milli ára. Þessi vöxtur skýrist fyrst og fremst af áframhaldandi fjölgun viðskiptavina bæði í farsíma- og netþjónustu sem og aukningu í reikitekjum af ferðamönnum. Áfram er góður EBITDA vöxtur á milli ára, og eykst hún um 16,7% frá fyrra ári. Tekjur af vörusölu dragast saman um 142 m.kr.

Heildartekjur á fyrstu sex mánuðum ársins hækkuðu um 4,7% frá fyrra ári og námu samtals 6.411 m.kr. EBITDA nam 1.923 m.kr. samanborið við 1.642 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári og var EBITDA hlutfallið 30,0% á fyrstu sex mánuðum ársins og vex úr 26,9% á fyrra ári. Rekstrarhagnaður (EBIT) var 872 m.kr. en var 683 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári og vex um 27,7% milli ára en hagnaður tímabilsins var 280 m.kr.

Nova hefur verið leiðandi í innviðauppbyggingu farsímanets á Íslandi og uppbygging 5G er samkvæmt áætlun. Nova býður stærsta 5G þjónustusvæðið, og hefur sett upp 130 5G senda, en áætlað er að þeir verði yfir 200 í lok árs 2024.

Nova hefur nú þegar tryggt sér tilraunaleyfi hjá Fjarskiptastofu og hafið prófanir á næstu kynslóð 5G sem nefnist MMwave, eða 5G+/5.5G. Nova er með þeim fyrstu í Evrópu sem hefja tilraunir með þessa tækni.

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova:

„Árið er hálfnað, staðan í hálfleik er góð og rekstrarniðurstaða annars ársfjórðungs er samkvæmt okkar áætlun. Sem fyrr er dansinn taktfastur, viðskiptavinum fjölgar á dansgólfinu og samkeppnin er mikil um dansfélaga sem gerir leikinn enn skemmtilegri. Við viljum halda áfram að leggja okkur fram við að efna loforð okkar um að viðskiptavinir fái alltaf mest fyrir peninginn hjá Nova, bæði með því að skora á okkur sjálf og samkeppnina.

Lykillinn að ánægju viðskiptavina er ánægt starfsfólk og við hjá Nova höfum haft fjölbreytni liðsins okkar í fyrirrúmi enda erum við þeirrar skoðunar að það sé forsenda fyrir góðum árangri. Við erum ótrúlega stolt af því að hafa verið útnefnd Fyrirtæki ársins fjórða árið í röð og verið fyrirmyndarfyrirtæki af hálfu VR frá því fyrirtækið var stofnað. 

Nova vill vera fyrst inn í framtíðina með snjallar lausnir og hefur verið leiðandi í innviðauppbyggingu farsímanets á Íslandi. Við viljum þannig tryggja besta netsambandið með mikilli afkastagetu og góðri upplifun notenda. Uppbygging 5G er samkvæmt áætlun og þar ætlum við að halda áfram markvissri uppbyggingu. Við erum gríðarlega spennt fyrir næstu kynslóð 5G, en við erum meðal þeirra fyrstu í Evrópu sem hefja tilraunir á nýrri tækni.”

Í viðhengi er árshlutauppgjör Nova fyrir annan ársfjórðung 2023, auk ítarlegrar uppgjörstilkynningar. 

Nánari upplýsingar veita: 

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri, , s. 770 1070   

Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri, , s. 770 1090.  

Viðhengi



EN
24/08/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar 26. mars 2026

Nova klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar 26. mars 2026 Aðalfundur Nova klúbbsins hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 26. mars 2026. Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi: Í stjórn félagsins voru endurkjörin þau: Hrund Rudolfsdóttir  Jón Óttar Birgisson  Jóhannes Þorsteinsson  Sigríður Olgeirsdóttir Steinunn Hlíf Sigurðardóttir Stjórn hefur skipt með sér verkum og var Jón Óttar Birgisson kjörinn formaður stjórnar, og tekur því við af Sigríði Olgeirsdóttur, sem gegnt hefur stjórnarformennsku undanfarin þrjú ár. Í tilnefningarnefnd félagsins voru endurkjörin þau:   Thelma Kri...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Nova og Rafal sameina krafta sína með stofnun nýs...

Nova klúbburinn hf.: Nova og Rafal sameina krafta sína með stofnun nýs hátæknifélags Nova og Rafal stefna að því að stofna nýtt félag sem mun sameina reynslu Rafal í stafrænni þróun og öflugt fjarskiptakerfi Nova með það að markmiði að bjóða fyrirtækjum og stórnotendum framúrskarandi lausnir sem byggja á nýjustu fjarskiptatækni. Nova klúbburinn hf. og Rafal ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um stofnun nýs sameiginlegs félags sem mun sérhæfa sig í IoT-lausnum (Internet of Things), eins og snjallvöktun, orkustjórnun og gagnastýrðri þjónustu. Með fyrirvara um endanlegan frágang samninga v...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Framboð til stjórnar o...

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar Aðalfundur Nova klúbbsins hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars, kl. 16. Eftirtalin framboð bárust til setu í stjórn félagsins: Erla Ósk ÁsgeirsdóttirHaukur SkúlasonHjördís Elsa ÁsgeirsdóttirHrund RudolfsdóttirJóhannes ÞorsteinssonJón Óttar BirgissonSigríður OlgeirsdóttirSteinunn Hlíf Sigurðardóttir Framboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Nova klúbbsins hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og fer því fram stjórnarkjör á aðalf...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Endanleg dagskrá og ti...

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundur Nova klúbbsins hf. verður haldinn rafrænt og á skrifstofu félagsins að Lágmúla 9, Reykjavík, fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 16:00.Meðfylgjandi er endanleg dagskrá fundarins og tillögur stjórnar, sem er óbreytt frá fundarboðun.Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru hvattir til að skrá sig á  fyrir kl. 16:00 þann 25. mars, eða degi fyrir fundardag. Skráningu á fundinn þarf að fylgja afrit af skilríkjum og umboð, ef við á. Framboðsfrestur ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026

Nova Klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026, klukkan 16:00, að Lágmúla 9, 108 Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð, sem tiltekur dagskrá fundarins, og tillögur stjórnar sem lagðar verða fyrir fundinn. Fundargögn og allar frekari upplýsingar vegna fundarins er að finna á vef félagsins,  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch