Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 23
Í 23. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.441.000 eigin hluti að kaupverði 9.438.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
03/06/2024 | 10:26:08 | 787.000 | 3.88 | 3.053.560 |
04/06/2024 | 10:24:36 | 988.000 | 3.86 | 3.813.680 |
05/06/2024 | 10:06:23 | 666.000 | 3.86 | 2.570.760 |
Samtals | 2.441.000 | 9.438.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 14.655.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 17.096.000 hluti, eða um 0,464% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 67.202.530 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á
