Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 31
Í 31. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.670.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
28.7.2025 | 13:34 | 600.000 | 4,90 | 2.940.000 |
29.7.2025 | 11:23 | 600.000 | 4,90 | 2.940.000 |
30.7.2025 | 10:49 | 600.000 | 4,89 | 2.934.000 |
31.7.2025 | 12:08 | 600.000 | 4,88 | 2.928.000 |
1.8.2025 | 09:34 | 600.000 | 4,88 | 2.928.000 |
Samtals | 3.000.000 | 14.670.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.
Nova Klúbburinn átti 28.800.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 31.800.000 hluti, eða um 0,89% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 153.864.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á
