Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 45
Í 45. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.476.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 3.11.2025 | 09:40 | 600.000 | 4,60 | 2.760.000 |
| 4.11.2025 | 09:53 | 600.000 | 4,50 | 2.700.000 |
| 5.11.2025 | 14:18 | 600.000 | 4,40 | 2.640.000 |
| 6.11.2025 | 14:34 | 600.000 | 4,48 | 2.688.000 |
| 7.11.2025 | 12:29 | 600.000 | 4,48 | 2.688.000 |
| Samtals | 3.000.000 | 13.476.000 | ||
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.
Nova Klúbburinn átti 65.400.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 68.400.000 hluti, eða um 1,92% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 332.523.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á
