Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 5
Í 5. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.028.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 26.1.2026 | 11:23 | 600.000 | 4,63 | 2.778.000 |
| 27.1.2026 | 09:50 | 600.000 | 4,62 | 2.772.000 |
| 28.1.2026 | 09:35 | 600.000 | 4,61 | 2.766.000 |
| 30.1.2026 | 14:44 | 600.000 | 4,52 | 2.712.000 |
| Samtals | 2.400.000 | 11.028.000 | ||
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.
Nova Klúbburinn átti 96.600.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 99.000.000 hluti, eða um 2,79% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 466.839.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á
