Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7
Í 7. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.242.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 09/02/2026 | 14:02 | 600.000 | 4,46 | 2.676.000 |
| 10/02/2026 | 9:59 | 600.000 | 4,46 | 2.676.000 |
| 11/02/2026 | 9:42 | 600.000 | 4,43 | 2.658.000 |
| 12/02/2026 | 12:24 | 600.000 | 4,38 | 2.628.000 |
| 13/02/2026 | 9:40 | 600.000 | 4,34 | 2.604.000 |
| Samtals | 3.000.000 | 13.242.000 | ||
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.
Nova Klúbburinn átti 101.400.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 104.400.000 hluti, eða um 2,94% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 490.881.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á
