NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova klúbburinn hf.: Nova hf. lýkur sölu á 4G og 5G dreifikerfi félagsins til Sendafélagsins ehf.

Nova klúbburinn hf.: Nova hf. lýkur sölu á 4G og 5G dreifikerfi félagsins til Sendafélagsins ehf.

Eins og fram kom í fyrri kauphallartilkynningu Nova hf. (hér eftir „félagið“ eða „Nova hf.“) undirrituðu Nova hf. og Sýn hf. þann 30. október 2025 samstarfssamning, sem kvað meðal annars á um fyrirhugað framsal dreifikerfa Nova hf. og Sýnar hf. til Sendafélagsins ehf., kt. 440515-1850, og hluthafasamkomulag varðandi stjórnhætti Sendafélagsins ehf., ákvarðanatöku innan þess félags o.fl. Þá kom fram í fyrri kauphallartilkynningu að þann 12. nóvember 2025 undirrituðu félagið og Sendafélagið ehf. kaupsamning um sölu þess fyrrnefnda á 4G og 5G dreifikerfi félagsins (e. Radio Access Network eða RAN) til Sendafélagsins ehf. gegn seljandaláni, en afhending búnaðarins til Sendafélagsins ehf. skyldi fara fram þann 31. desember 2025.

Í framhaldi af framangreindum samningum og á grundvelli þeirra undirrituðu félagið og Sendafélagið ehf. þjónustusamning þann 8. desember 2025 um þá þjónustu sem félagið mun kaupa af Sendafélaginu ehf.

Þann 8. desember 2025 var haldinn hluthafafundur í Sendafélaginu ehf. þar sem teknar voru ákvarðanir um hækkun hlutafjár Sendafélagsins ehf. og að Nova hf. og Sýn hf. væri heimilt að greiða fyrir hið nýja hlutafé með afhendingu fjarskiptabúnaðar til Sendafélagsins ehf. Samkvæmt ákvörðuninni skyldi fjarskiptabúnaðurinn formlega afhentur Sendafélaginu ehf. þann 31. desember 2025, en rekstur Sendafélagsins ehf. á nýjum grundvelli skyldi hefjast þann 1. janúar 2026. Á hluthafafundi Sendafélagsins ehf. voru jafnframt samþykktir kaupsamningur og lánssamningur Sendafélagsins ehf. við félagið, en slíkt samþykki var skilyrði fyrir gildistöku þeirra.

Þann 19. desember 2025 skrifaði félagið undir bindandi hlutafjárloforð (áskriftarloforð) gagnvart Sendafélaginu ehf. um afhendingu félagsins á fjarskiptabúnaði til Sendafélagsins ehf. að verðmæti kr. 999.650.000 sem endurgjald fyrir nýtt hlutafé í Sendafélaginu ehf., ýmist í Flokki A eða Flokki B, á genginu kr. 1 (ein króna) fyrir hverja krónu nafnverðs, í samræmi við framangreinda ákvörðun hluthafafundar Sendafélagsins ehf. um hækkun hlutafjár Sendafélagsins ehf.

Í dag þann 31. desember 2025 framseldi félagið allan framangreindan fjarskiptabúnað til Sendafélagsins ehf., bæði þann fjarskiptabúnað sem félagið seldi Sendafélaginu ehf. á grundvelli áðurgreinds kaupsamnings og þann fjarskiptabúnað sem er endurgjald fyrir nýtt hlutafé félagsins í Sendafélaginu ehf. Með því telur félagið sig hafa efnt framangreindan kaupsamning við Sendafélagið ehf. og framangreint hlutafjárloforð (áskriftarloforð).

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl félagsins í gegnum netfangið



EN
31/12/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 – Lok endur...

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 – Lok endurkaupa Í 8. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.100.000 eigin hluti að kaupverði 9.072.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)16.2.202610:34600.0004,332.598.00017.2.202610:39600.0004,332.598.00018.2.202609:57600.0004,332.598.00019.2.202610:28300.0004,261.278.000Samtals2.100.000 9.072.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Nova Klúbburinn átti 104.400.000 eigin hluti fyrir ...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar Nova klúbburinn hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar hf. Kaupin eru liður í markvissri vaxtarstefnu Nova klúbbsins og styrkja verulega stöðu félagsins á fyrirtækjamarkaði. Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tæknibúnaðar og lausna og þjónustar um 10.000 fyrirtæki, þar á meðal langflest stærri fyrirtæki landsins. Hjá félaginu starfa um 100 sérfræðingar og býr það yfir öflugum innviðum á sviði vöru- og innkaupastýringar, vöruhúss, dreifingar og verkstæðisþjónustu. Ofar hefur áratuga reynslu af því að ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7 Í 7. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.242.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)09/02/202614:02600.0004,462.676.00010/02/20269:59600.0004,462.676.00011/02/20269:42600.0004,432.658.00012/02/202612:24600.0004,382.628.00013/02/20269:40600.0004,342.604.000Samtals3.000.000 13.242.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluni...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Renata Blöndal lætur af störfum hjá Nova

Nova klúbburinn hf.: Renata Blöndal lætur af störfum hjá Nova Renata Blöndal, framkvæmdastjóri Upplifunar hjá Nova, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Hún gekk til liðs við félagið árið 2023 og hefur á þeim tíma veitt sviðum stefnumótunar, viðskiptaþróunar og þjónustu forystu. Renata mun veita félaginu ráðgjöf og styðja við yfirfærslu verkefna næstu mánuði. Renata er með M.Sc. gráðu í Management Science and Engineering frá Columbia háskóla í New York og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún kom til Nova frá Arctic Adventures þar sem hún var framkvæmdas...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 6

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 6 Í 6. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 10.800.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)3.2.202615:28600.0004,522.712.0004.2.202610:03600.0004,522.712.0005.2.202609:47600.0004,522.712.0006.2.202615:28600.0004,442.664.000Samtals2.400.000 10.800.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch