NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova Klúbburinn hf.: Sylvía Kristín Ólafsdóttir verður forstjóri Nova

Nova Klúbburinn hf.: Sylvía Kristín Ólafsdóttir verður forstjóri Nova

Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Nova. Hún mun taka við starfinu af Margréti Tryggvadóttur sem tilkynnti í byrjun sumars að hún hygðist láta af störfum í lok árs. Sylvía hefur störf hjá Nova með haustinu.   

Sylvía Kristín kemur til Nova frá Icelandair þar sem hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri rekstrar. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo. Sylvía starfaði einnig um árabil hjá Amazon, fyrst við rekstur og áætlanagerð og síðan við Kindle deild fyrirtækisins þar sem hún sá um viðskiptagreind og vöruþróun fyrir vefbækur auk þess að leiða greiningar- og stefnumótunarvinnu fyrir samningagerð við bókaútgefendur.

Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Sylvíu til liðs við Nova og enginn vafi á að hún er rétta manneskjan til að taka við keflinu af Margréti seinna á árinu. Sylvía býr yfir mikilli þekkingu á rekstri og markaðsmálum, auk mikilvægrar reynslu úr tækni- og hugbúnaðarheiminum, þar sem fjölbreytt, vel samsett teymi og góð innri menning skapar árangur. Þessi þekking mun koma sér vel nú þegar við tökum stefnuna á enn frekari vöxt. Nova er í afburðasterkri stöðu til að renna enn frekari stoðum undir sterkan framtíðarvöxt félagsins og við hlökkum til næsta kafla í sögu Nova með Sylvíu.“, segir Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarformaður Nova

Það er mikill heiður að fá að verða hluti af þeirri metnaðarfullu vegferð sem Nova er á og halda áfram að byggja fyrirtækið upp á þeirri sterku arfleifð sem Margrét skilur eftir sig, með því öfluga fólki sem starfar hjá Nova. Það eru mjög spennandi verkefni framundan. Nova er auðvitað traust og framsækið tækni- og innviðafyrirtæki en það er um leið alþekkt í íslensku viðskiptalífi hversu frábæra vinnustaðarmenningu og öflugt starfsfólk er að finna hjá fyrirtækinu. Þetta er í mínum huga lykillinn að árangri í rekstri góðra fyrirtækja. Ég hlakka gríðarlega til að kynnast því frábæra fólki sem starfar hjá Nova og sækja fram af krafti; horfa á tækifæri til vaxtar, sem ég held að séu mikil, og leggja áfram áherslu á að vera fyrst inn í framtíðina með snjallari lausnir.“, segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir verðandi forstjóri Nova



Sylvía er með M.Sc. próf í Operational Research frá London School of Economics og B.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt stundakennslu við verkfræðideild HÍ í rekstrarfræði, kvikum kerfislíkönum og verkefnastjórnun (MPM). Þá hefur Sylvía setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og sjóða.

Frekari upplýsingar veitir Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarformaður Nova, s. 844 2747,

Viðhengi



EN
07/07/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar Nova klúbburinn hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar hf. Kaupin eru liður í markvissri vaxtarstefnu Nova klúbbsins og styrkja verulega stöðu félagsins á fyrirtækjamarkaði. Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tæknibúnaðar og lausna og þjónustar um 10.000 fyrirtæki, þar á meðal langflest stærri fyrirtæki landsins. Hjá félaginu starfa um 100 sérfræðingar og býr það yfir öflugum innviðum á sviði vöru- og innkaupastýringar, vöruhúss, dreifingar og verkstæðisþjónustu. Ofar hefur áratuga reynslu af því að ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7 Í 7. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.242.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)09/02/202614:02600.0004,462.676.00010/02/20269:59600.0004,462.676.00011/02/20269:42600.0004,432.658.00012/02/202612:24600.0004,382.628.00013/02/20269:40600.0004,342.604.000Samtals3.000.000 13.242.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluni...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Renata Blöndal lætur af störfum hjá Nova

Nova klúbburinn hf.: Renata Blöndal lætur af störfum hjá Nova Renata Blöndal, framkvæmdastjóri Upplifunar hjá Nova, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Hún gekk til liðs við félagið árið 2023 og hefur á þeim tíma veitt sviðum stefnumótunar, viðskiptaþróunar og þjónustu forystu. Renata mun veita félaginu ráðgjöf og styðja við yfirfærslu verkefna næstu mánuði. Renata er með M.Sc. gráðu í Management Science and Engineering frá Columbia háskóla í New York og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún kom til Nova frá Arctic Adventures þar sem hún var framkvæmdas...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 6

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 6 Í 6. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 10.800.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)3.2.202615:28600.0004,522.712.0004.2.202610:03600.0004,522.712.0005.2.202609:47600.0004,522.712.0006.2.202615:28600.0004,442.664.000Samtals2.400.000 10.800.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Tilnefningarnefnd óskar eftir framboðum til stjór...

Nova klúbburinn hf.: Tilnefningarnefnd óskar eftir framboðum til stjórnar Aðalfundur Nova klúbbsins hf. verður haldinn 26. mars 2026 og óskar tilnefningarnefnd nú eftir framboðum eða tilnefningum til stjórnar félagsins.   Frestur til að skila inn framboðum eða tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til og með 12. febrúar 2026.  Tilkynningu um framboð, ásamt kynningarbréfi þar sem ástæður framboðs og rök fyrir hæfni eru rakin, auk ferilskrár, skal skilað á netfangið . Hægt er að nálgast framboðseyðublað á fjárfestasíðu félagsins, sjá .   Hlutverk tilnefningarnefnda...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch