NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova Klúbburinn hf.: Uppsögn samnings um viðskiptavakt

Nova Klúbburinn hf.: Uppsögn samnings um viðskiptavakt

Nova Klúbburinn hf. sagði í dag upp samningi við Arion banka hf. um viðskiptavakt með hluti í félaginu, en Arion banki hefur verið annar af tveimur viðskiptavökum félagsins. Uppsögnin tekur gildi að 14 dögum liðnum.

Samningur Nova Klúbbsins hf. við Landsbankann um viðskiptavakt heldur gildi sínu, en hann tók gildi við skráningu félagsins á markað í júní á síðasta ári.

Samkvæmt samningnum við Landsbankann setur bankinn fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Nova Klúbbsins í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland daglega fyrir opnun markaðar. Tilboð viðskiptavaka skulu að lágmarki nema 8.000.000 kr. að markaðsvirði. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmagn sem viðskiptavaki er skuldbundinn til að kaupa eða selja á hverjum degi nemur kr. 16.000.000 að markaðsvirði.

Magnvegið hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða viðskiptavakans ákvarðast af 10 daga flökti verðs hlutabréfa Nova Klúbbsins eins og það mælist á hverjum tíma og birt er í upplýsingakerfi Bloomberg. Í þeim tilvikum sem reiknað flökt uppfærist ekki í kerfi Bloomberg gildir útreikningur viðskiptavaka. Hámarksverðbil er skv. eftirfarandi:

10 daga flökt Magnvegið verðbil
<=20% 1%
20%-35% 2%
>=35% 3%

Nánari upplýsingar veitir fjárfestatengill Nova Klúbbsins, netfang:



EN
10/02/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7 Í 7. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.242.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)09/02/202614:02600.0004,462.676.00010/02/20269:59600.0004,462.676.00011/02/20269:42600.0004,432.658.00012/02/202612:24600.0004,382.628.00013/02/20269:40600.0004,342.604.000Samtals3.000.000 13.242.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluni...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Renata Blöndal lætur af störfum hjá Nova

Nova klúbburinn hf.: Renata Blöndal lætur af störfum hjá Nova Renata Blöndal, framkvæmdastjóri Upplifunar hjá Nova, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Hún gekk til liðs við félagið árið 2023 og hefur á þeim tíma veitt sviðum stefnumótunar, viðskiptaþróunar og þjónustu forystu. Renata mun veita félaginu ráðgjöf og styðja við yfirfærslu verkefna næstu mánuði. Renata er með M.Sc. gráðu í Management Science and Engineering frá Columbia háskóla í New York og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún kom til Nova frá Arctic Adventures þar sem hún var framkvæmdas...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 6

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 6 Í 6. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 10.800.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)3.2.202615:28600.0004,522.712.0004.2.202610:03600.0004,522.712.0005.2.202609:47600.0004,522.712.0006.2.202615:28600.0004,442.664.000Samtals2.400.000 10.800.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Tilnefningarnefnd óskar eftir framboðum til stjór...

Nova klúbburinn hf.: Tilnefningarnefnd óskar eftir framboðum til stjórnar Aðalfundur Nova klúbbsins hf. verður haldinn 26. mars 2026 og óskar tilnefningarnefnd nú eftir framboðum eða tilnefningum til stjórnar félagsins.   Frestur til að skila inn framboðum eða tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til og með 12. febrúar 2026.  Tilkynningu um framboð, ásamt kynningarbréfi þar sem ástæður framboðs og rök fyrir hæfni eru rakin, auk ferilskrár, skal skilað á netfangið . Hægt er að nálgast framboðseyðublað á fjárfestasíðu félagsins, sjá .   Hlutverk tilnefningarnefnda...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 5

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 5 Í 5. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.028.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)26.1.202611:23600.0004,632.778.00027.1.202609:50600.0004,622.772.00028.1.202609:35600.0004,612.766.00030.1.202614:44600.0004,522.712.000Samtals2.400.000 11.028.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch