Heimar hf.: Breytt auðkenni – Reginn er nú Heimar
Í samræmi við ákvörðun hluthafafundar þann 29. maí sl. hefur Reginn hf. breytt um nafn og heitir nú Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“). Í samræmi við það hefur Heimar sótt um að breyta auðkenni hlutabréfa og skuldabréfa félagsins úr „Reginn“ í „Heimar“.
Sótt var um að þessi breyting yrði gerð á bréfum og skuldabréfum skráðum hjá Nasdaq Iceland og samhliða hjá Nasdaq CSD.
Breytingarnar taka gildi í dag, 3. júní 2024, sbr. markaðstilkynningu Nasdaq Iceland hf. dags. 30. maí sl.
Finna má nánari upplýsingar um nýtt heiti félagsins á vefsíðu félagsins:
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., sími: 821 0001
