Heimar hf.: Framboð til stjórnar
Tilnefningarnefnd Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“) auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Heima fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður þriðjudaginn 11. mars 2025.
Vakin er athygli á því að frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum til nefndarinnar er til fimmtudagsins 5. desember 2024 og skal senda þær á . Tilnefningar nefndarinnar um stjórn félagsins verða birtar samhliða birtingu fundarboðs aðalfundar, sem samkvæmt samþykktum félagsins er boðað til með skemmst þriggja vikna fyrirvara.
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins
Tilnefningarnefnd Heima hf.
