REGINN Reginn hf

Heimar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Heimar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“) þann 12. mars 2024 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í því skyni að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.

Á grundvelli þeirrar heimildar hefur stjórn Heima tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar til kaupa á hlutum í félaginu fyrir allt að 500.000.000 kr. að kaupvirði, í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Ræðst fjöldi hluta af kaupverði hluta við framkvæmd áætlunarinnar. Í dag eiga Heimar 31.445.833 eigin hluti.

Íslandsbanki hf. („Íslandsbanki“) mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar ákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð Heimum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Þegar ákvarðanir eru teknar, og í framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar, skal fara eftir framangreindum ákvæðum, eins og við á, og gagnsæi tryggt í viðskiptum með eigin hluti tryggt við framkvæmd áætlunarinnar.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er þannig að kaup að nafnvirði hvers dags verða að hámarki 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf Heima á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup eru framkvæmd og skal hámarksverð í kaupum vera verð síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í Kauphöll Nasdaq Iceland. Íslandsbanki hefur samkvæmt samningi aðila heimild til að hefja endurkaup í dag, 20. nóvember 2024, og endurkaupaáætlunin er í gildi til aðalfundar Heima á árinu 2025 eða þar til endurkaupum að kaupvirði 500.000.000 kr. er lokið, hvort sem gerist fyrr. Heimar hafa heimild til að lækka það heildarkaupverð sem bankinn skal kaupa fyrir eða til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er fyrrgreindu tímabili.

Viðskipti Heima með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglur.

Nánari upplýsingar veitir:

Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála –



EN
20/11/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reginn hf

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Expansion of the Bond Series HEIMAR50 GB 

Heimar hf.: Expansion of the Bond Series HEIMAR50 GB  Heimar hf. (Nasdaq: HEIMAR) has completed an offering of the bond series HEIMAR50 GB.  HEIMAR50 GB is a green, inflation-linked bond series secured by the company’s general security arrangement. The series matures on 20 August 2050, with principal repayments following a 30-year annuity schedule until maturity. Interest and principal payments are made quarterly, i.e. in February, May, August, and November each year. The bond carries a nominal interest rate of 2.477%, and the current outstanding nominal amount is ISK 14,420 million.  Bid...

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB 

Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB  Heimar hf. (Nasdaq: HEIMAR) hefur lokið útboði á skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB  HEIMAR50 GB er grænn, verðtryggður flokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 20. ágúst 2050 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára jafngreiðsluferli (e. annuity) fram til lokagjalddaga. Greiðslur vaxta og höfuðstóls fara fram á þriggja mánaða fresti, þ.e. í febrúar, maí, ágúst og nóvember ár hvert. Nafnvextir bréfsins eru 2,477% og núverandi stærð er 14.420 m.kr að nafnverði.   Alls ...

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Major Shareholder Announcement - Omega fasteignir ehf.

Heimar hf.: Major Shareholder Announcement - Omega fasteignir ehf. Enclosed is a major shareholder announcement from Omega fasteignir ehf. Attachment

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Flöggun - Omega fasteignir ehf.

Heimar hf.: Flöggun - Omega fasteignir ehf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Omega fasteignum ehf. þar sem farið er yfir 10% eignarhlut í Heimum hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Acquisition of Gróska Completed

Heimar hf.: Acquisition of Gróska Completed The acquisition by Heimar hf. ("Heimar" or the "Company") of all shares in Gróska ehf. (“Gróska”) and Gróðurhúsið ehf. (“Gróðurhúsið”) (the “Transaction”), which was initially announced on 23 April this year, has now been completed.  Gróska owns the property Gróska, located at Bjargargata 1, 102 Reykjavík, an innovation hub and one of Iceland’s largest and most ambitious office buildings. The property comprises approximately 18,600 square meters of floor area and a 6,200 square meter underground car park with 205 spaces, totaling approximately 2...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch