Reginn hf.: Birting grunnlýsingar
Reginn hf., kt. 630109-1080, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 26. júlí 2023, staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu Regins, /fjarfestavefur/. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar.
Íslandsbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Nánari upplýsingar:
Rósa Guðmundsdóttir – Framkvæmdastjóri fjármála– – S: 844 4776
