REGINN Reginn hf

Reginn hf.: Kynning á frumniðurstöðu samrunarannsóknar Samkeppniseftirlitsins. Andmælafrestur til 21. febrúar.

Reginn hf.: Kynning á frumniðurstöðu samrunarannsóknar Samkeppniseftirlitsins. Andmælafrestur til 21. febrúar.

Þann 8. júní 2023 tilkynnti Reginn hf. („Reginn“) um ákvörðun stjórnar um að leggja fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eik fasteignafélags hf. („Eik“) („tilboðið“). Í kjölfarið birti félagið opinbert tilboðsyfirlit, dags. 10. júlí 2023, sbr. viðauka, dags. 14. september 2023, vegna tilboðsins.

Tilboðið er meðal annars háð því skilyrði að Samkeppniseftirlitið geri ekki athugasemdir við yfirtökuna sem Reginn sættir sig ekki við. Þann 29. september 2023 skilaði félagið inn samrunaskrá til Samkeppniseftirlitsins sem hefur nú samkeppnisleg áhrif samrunans til rannsóknar.

Regin hefur borist andmælaskjal frá Samkeppniseftirlitinu sem er liður í hefðbundinni málsmeðferð þess. Andmælaskjalið er ritað í þeim tilgangi að auðvelda Regin að nýta andmælarétt sinn samkvæmt stjórnsýslulögum og stuðla að því að rétt ákvörðun verði tekin í málinu. Skjalið felur í sér frummat Samkeppniseftirlitsins en felur ekki í sér bindandi stjórnvaldsákvörðun og kann að taka breytingum eftir því sem rannsókninni vindur fram. Í skjalinu er frumniðurstöðu eftirlitsins lýst en hún er sú að samruninn hindri virka samkeppni og verði að óbreyttu ekki samþykktur án íhlutunar.

Greining á frumniðurstöðum stendur yfir og hefur Reginn frest til 21. febrúar 2024 til að skila inn athugasemdum, óska eftir sáttaviðræðum og leggja fram tillögur að mögulegum skilyrðum til Samkeppniseftirlitsins. Reginn mun á næstu dögum eiga viðræður við eftirlitið vegna andmælaskjalsins.  

Nánari upplýsingar veitir:

Halldór Benjamín Þorbergsson– Forstjóri Regins –  - s.  821-0001



EN
08/02/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reginn hf

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: The Icelandic Competition Authority Approves Heimar’s Acqu...

Heimar hf.: The Icelandic Competition Authority Approves Heimar’s Acquisition of Gróska Reference is made to the notification from Heimar hf. (“Heimar” or “the company”), dated 23 April 2025, regarding the company’s acquisition of all shares in Gróska ehf. and Gróðurhúsið ehf. The notice stated that the acquisition was subject to customary conditions, including approval by the Icelandic Competition Authority. The Icelandic Competition Authority has now confirmed that it sees no grounds for intervention or further investigation regarding the transaction. Accordingly, the condition related t...

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Samkeppniseftirlitið heimilar kaup Heima á Grósku

Heimar hf.: Samkeppniseftirlitið heimilar kaup Heima á Grósku Vísað er til tilkynningar Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“), dags. 23. apríl 2025, um kaup félagsins á öllu hlutafé Grósku ehf. og Gróðurhússins ehf. Í tilkynningunni kom fram að kaupin væru háð hefðbundnum fyrirvörum, m.a. samþykki Samkeppniseftirlitsins.   Samkeppniseftirlitið hefur nú tilkynnt um að það telji hvorki forsendur til íhlutunar né frekari rannsóknar vegna kaupanna. Fyrirvaranum um samþykki Samkeppniseftirlitsins hefur því verið aflétt. Unnið er að frágangi viðskiptanna og má gera ráð fyrir því að afhending 258 mi...

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Major Shareholder Announcement - Eignarhaldsfélagið Mata h...

Heimar hf.: Major Shareholder Announcement - Eignarhaldsfélagið Mata hf. Enclosed is a major shareholder announcement from Eignarhaldsfélagið Mata hf.    Attachment

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Flöggun - Eignarhaldsfélagið Mata hf.

Heimar hf.: Flöggun - Eignarhaldsfélagið Mata hf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Eignarhaldsfélaginu Mata hf. þar sem farið er undir 5% eignarhlut í Heimum hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Regular Notification of Share Buybacks in Accordance with ...

Heimar hf.: Regular Notification of Share Buybacks in Accordance with the Buyback Program The buyback under the buyback program, which was announced on April 8 2024, has now been completed. In week 20, Heimar hf. (“Heimar”) purchased 2,950,000 own shares at a total purchase price of 109,310,000 ISK, as follows: Date Time Shares Purchased Transaction Price (Rate) Purchase Price (ISK) 13.5.2025   10:45 1,000,000   36.8 36,800,000 15.5.2025    10.56 1,000,000   36.6 36,600,000 16.5.2025    11:50 950,000   37.8 35,910,000 Total...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch