REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Aðalfundur 10. mars 2020

REITIR: Aðalfundur 10. mars 2020

Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, þriðjudaginn 10. mars 2020 í Þingsal 2 á Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík.

Drög að dagskrá fundarins:

  • Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári
  • Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar
  • Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar frálgsins á síðastliðnu starfsári
  • Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund:

    a. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum

    b. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum.

    c. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.

    d. Tillaga um breytingu á 6. gr. samþykkta félagsins varðandi vísun til verðbréfamiðstöðvar.

    e. Tillaga um breytingar á starfsreglum tilnefningarnefndar

    f. Tillaga um skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd
  • Kosning stjórnarmanna félagsins
  • Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
  • Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár
  • Önnur mál, löglega upp borin

Hjálagt er fundarboð, tillögur stjórnar og skýrsla tilnefningarnefndar.

Ársskýrsla Reita 2019 hefur verið gefin út og er hún aðgengileg .

Viðhengi

EN
17/02/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Ársuppgjör 2025

REITIR: Ársuppgjör 2025 Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2025. Afkoma félagsins var í góðu samræmi við útgefnar horfur og ársuppgjörið ber vitni um kröftugan vöxt tekna og rekstrarhagnaðar á árinu.   Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 12.112 m. kr. og jókst um 1.140 m. kr. eða 10,4%. Tekjur ársins 2025 námu 18.215 m. kr. sem er aukning um 10,8% frá fyrra ári. Raunvöxtur tekna milli ára er 6,3% og er til kominn vegna verðlagsbreytinga, nýfjárfestinga og heilbrigðs vaxtar innan eignasafnsins. Félagið fjárfesti fyrir 14,7 ma....

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru 11.977.000 hlutir (1,72%) í eigu félagsins við upphaf endurkau...

 PRESS RELEASE

REITIR: Kynningarfundur vegna birtingar á ársuppgjöri 2025

REITIR: Kynningarfundur vegna birtingar á ársuppgjöri 2025 Reitir munu birta ársuppgjör vegna ársins 2025 eftir lokun markaða mánudaginn 16. febrúar næstkomandi. Af því tilefni er fjárfestum og markaðsaðilum boðið til fundar, þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 þriðjudaginn 17. febrúar nk. á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á slóðinni:  Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar til stjórnenda á netfangið .  Upplýsingar veitir Einar ...

 PRESS RELEASE

REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR150534

REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR150534 Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í skuldabréfaflokkunum REITIR150534. REITIR150534 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2034 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti. Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.300 m.kr. á ávöxtunar...

 PRESS RELEASE

Tilnefningarnefnd Reita auglýsir eftir tilnefningum og framboðum til s...

Tilnefningarnefnd Reita auglýsir eftir tilnefningum og framboðum til stjórnar TilnefningarnefndTilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf. auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundar sem haldinn verður 25. mars 2026. Jafnframt hvetur tilnefningarnefndin hluthafa til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við nefndina. Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf. var skipuð á aðalfundi 2. apríl 2025 og er skipunartími nefndarinnar til eins árs í senn. Hlutverk nefndarinnar er að undirbúa stjórnarkjör á hluthafafundum. Nefndina skipa: Auður Ósk Þórisdóttir...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch