REITIR: Endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar á aðalfundi 8. mars 2023
Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn miðvikudaginn 8. mars 2023 kl. 15.00 í þingsal 2 á Hotel Reykjavik Natura, Nauthólsvegi 52.
Engar breytingar hafa orðið frá áður birtri dagskrá og tillögum sem lagðar verða fyrir fundinn, en þær má sjá .
Eftirtaldir aðilar hafa boðið sig fram til setu í stjórn félagsins:
Elín Árnadóttir
Gréta María Grétarsdóttir
Guðmundur Kristján Jónsson
Kristinn Albertsson
Þórarinn V. Þórarinsson
Framboðsfrestur er nú runninn út samkvæmt samþykktum félagsins og hafa frekari framboð ekki borist. Þar sem stjórn félagsins skal skipuð fimm einstaklingum er ljóst að framangreindir aðilar eru sjálfkjörnir til setu í stjórn félagsins á aðalfundinum án sérstakrar atkvæðagreiðslu. Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar sem sjá má .
Hluthafar og umboðsmenn þeirra geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 14.30 á aðalfundardag.
Þeir hluthafar sem þess óska geta forskráð sig á aðalfundinn og munu atkvæðaseðlar þeirra þá vera tilbúnir er mætt er á fundinn og afhentir gegn framvísun umboðs (ef við á) og skilríkja.
Forskráning fer fram með því að senda eftirtaldar upplýsingar á netfangið fyrir kl. 12.00 á aðalfundardegi:
Kennitala hluthafa
Nafn þess sem mætir
Kennitala þess sem mætir
Skannað eintak af umboði (ef við á), en að auki þarf að mæta með frumrit þess á fundinn.
