REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Fjárfest fyrir 3,4 ma.kr. í verslunar-, iðnaðar- og dagdvalarhúsnæði

REITIR: Fjárfest fyrir 3,4 ma.kr. í verslunar-, iðnaðar- og dagdvalarhúsnæði

Kaup á Njarðarvöllum 4 í Reykjanesbæ og Lónsbraut 1 í Hafnarfirði

Reitir og Kjölur fasteignir hafa undirritað samkomulag um kaup Reita á fasteignum að Njarðarvöllum 4 í Reykjanesbæ og Lónsbraut 1 í Hafnarfirði.

Húsið að Njarðarvöllum 4 var byggt 2008 og er 2.338 fm. að stærð. Fasteignin hýsir Nesvelli dagvöl aldraðra í Reykjanesbæ. Leigusamningur er við Reykjanesbæ til 2038.

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita:

„Kaup húsnæðis dagdvalarinnar á Nesvöllum markar fyrsta skrefið í vaxtarvegferð Reita innan nýrra samfélagslegra mikilvægra eignaflokka. Sem stærsta fasteignafélag landsins á sviði atvinnuhúsnæðis búa Reitir yfir gífurlegri reynslu og þekkingu á rekstri og viðhaldi húsnæðis. Við lítum á það sem okkar hlutverk og ábyrgð að beina okkar kröftum til uppbyggingar og eflingar þeirra samfélagslegu innviða sem samfélagið kallar á hverju sinni. Við stefnum á frekari fjárfestingar í eignum sem svara breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar og horfum sér í lagi til hjúkrunarheimila og lífsgæðakjarna í þeim efnum."

Lónsbraut 1 Hafnarfirði var byggð 2011 og er 1.725 fm. að stærð. Fasteignin hýsir fiskvinnslu Hólmaskers ehf. sem er dótturfélag Vinnslustöðvarinnar. Leigusamningur er til 2033.

Heildarvirði þessara tveggja fasteigna er 2.200 m.kr. og verða kaupin fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé. Leigutekjur á ársgrunni nema rúmlega 160 m.kr. Kaupin leiða til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 145 m.kr. á ársgrundvelli.

Áætlað er að afhending eignanna eigi sér stað eigi síðar en 1. ágúst n.k. Afhending mun fara fram þegar fyrirvörum um viðskiptin hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður hefðbundinna áreiðanleikakannana, afléttingu forkaupsréttar að Lónsbraut 1 og samþykki stjórnar Reita fasteignafélags hf. fyrir kaupunum.

Kaup Reita á ÞEJ fasteignum ehf.

Reitir hafa einnig gengið frá kaupum á ÞEJ fasteignum ehf., félagi sem á tæplega 3.100 fm. verslunarhúsnæðis við Fákafen 11, Faxafen 12, Skólavörðustíg 10, Laugaveg 32 og Laugaveg 86-94. Húsnæðið hýsir ýmsa leigutaka, þ. á m. veitingastaðinn Saffran.

Heildarvirði er 1.150 m.kr. og eru kaupin að fullu fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé. Leigutekjur á ársgrunni nema rúmlega 110 m.kr. Kaupin leiða til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 85 m.kr. á ársgrundvelli. Afhending eignanna fór fram síðastliðin mánaðamót.

Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 og á  og Kristófer Þór Pálsson, framkv.stj. Fjárfestinga og greiningar í síma 659 1700 og á .

Um Reiti fasteignafélag

Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. Innan eignasafns Reita eru um 460 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis í rekstri auk 700 íbúða og 140 þúsund fermetra atvinnuhúsnæðis í þróun.

Við leggjum áherslu á sjálfbæra uppbyggingu innviða og langtíma leigusambönd þar sem  sameiginlegur ávinningur leigutaka, okkar og samfélagsins eru lykilatriði. Fyrirtækið er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir. 





EN
06/06/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru 4.200.000 hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlun...

 PRESS RELEASE

REITIR: Kaup á Hlíðasmára 5-7 í Kópavogi - öllum fyrirvörum aflétt

REITIR: Kaup á Hlíðasmára 5-7 í Kópavogi - öllum fyrirvörum aflétt Með vísan til fyrri tilkynningar um kaup Reita á félaginu L1100 ehf., sem nálgast má , tilkynnist að öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur verið aflétt.  Eins og fram hefur komið í fyrri tilkynningu þá hefur kaupsamningur verið undirritaður og mun afhending fara fram 1. ágúst nk. Fasteignin er við Hlíðarsmára 5-7 í Kópavogi og er um 3.900 fm. að stærð. Samhliða kaupunum hefur verið gerður leigusamningur til langs tíma um rekstur hótelsins við Flóra hotels sem rekur einnig Reykjavík Residence, Tower Suites og tvö hótel undir...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 26 - Lok endurkaupaáætluna...

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 26 - Lok endurkaupaáætlunar Í 26. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 517.004 eigin hluti að kaupverði 56.461.938 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:        DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti23/6/2510:13100.000108,5010.850.0003.782.99623/6/2515:14100.000108,5010.850.0003.882.99624/6/2510:28100.000110,0011.000.0003.982.99624/6/2513:48100.000109,5010.950.0004.082.99625/6/2514:14117.004109,5012.811.9384.200.000      Samtals 517.004 56.461.9384.200.000                     Endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 25

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 25 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 15. maí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 16. maí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.                    Í 25. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 975.000 e...

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - Kjölur fjárfestingarfélag ehf. og GJ Invest ehf.

REITIR: Flöggun - Kjölur fjárfestingarfélag ehf. og GJ Invest ehf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Kili fjárfestingarfélagi ehf. og GJ Invest ehf., þar sem farið er yfir 5% eignarhlut í Reitum í kjölfar lækkunar á hlutafé.   Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch