REITIR: Framkvæmd endurkaupa í viku 7
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 30. janúar 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. janúar 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 7. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 750.000 eigin hluti að kaupverði 64.612.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
13/2/23 | 10:25 | 150.000 | 86,75 | 13.012.500 | 12.090.000 |
14/2/23 | 09:40 | 150.000 | 86,50 | 12.975.000 | 12.240.000 |
14/2/23 | 14:38 | 150.000 | 86,50 | 12.975.000 | 12.390.000 |
17/2/23 | 14:50 | 300.000 | 85,50 | 25.650.000 | 12.690.000 |
Samtals | 750.000 | 64.612.500 | 12.690.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 1.690.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 28,2% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 145.960.000 kr. sem samsvarar 26,5% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 19.190.000 eigin hluti, eða um 2,51% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á .
