REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 25. október 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. október 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 25. október 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 43. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 950.000 eigin hluti að kaupverði 77.375.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 26.10.2021 | 10:31 | 250.000 | 80,500 | 20.125.000 | 4.087.968 |
| 26.10.2021 | 14:27 | 200.000 | 80,000 | 16.000.000 | 4.287.968 |
| 27.10.2021 | 11:52 | 250.000 | 82,500 | 20.625.000 | 4.537.968 |
| 28.10.2021 | 10:33 | 250.000 | 82,500 | 20.625.000 | 4.787.968 |
| 950.000 | 77.375.000 | 4.787.968 |
Reitir hafa nú keypt samtals 950.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 15,83% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 77.375.000 kr. sem samsvarar 15,48% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 4.787.968 eigin hluti, eða um 0,62% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á
