REITIR: Niðurstöður aðalfundar þann 8. mars 2023
Miðvikudaginn 8. mars 2023 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á Hotel Reykjavík Natura. Fundurinn hófst kl. 15.00.
Tillögur þær sem lágu fyrir fundinum má finna á vefsíðu félagsins:
1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár
Aðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins 2022.
2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári
Tillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 1,89 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í félaginu vegna rekstrarársins 2022 var samþykkt. Arðgreiðsludagur verður þann 31. mars 2023, 9. mars 2023 er arðleysisdagur og 10. mars 2023 verður arðsréttindadagur.
3. Heimild til kaupa á eigin bréfum
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um heimild til kaupa á eigin bréfum.
4. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum
Tillaga um lækkun hlutafjár úr 763.138.233 kr. í 745.638.233 kr. og tilheyrandi breyting á 4. gr. samþykkta félagsins var samþykkt.
5. Starfskjarastefna félagsins
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytta starfskjarastefnu félagsins.
6. Skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd
Aðalfundur staðfesti skipun Margretar Flóvenz, Berglindar Óskar Guðmundsdóttur og Hilmars G. Hjaltasonar í tilnefningarnefnd félagsins.
7. Kjör stjórnarmanna félagsins
Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér til setu í stjórn félagsins og voru þau sjálfkjörin: Elín Árnadóttir, Guðmundur Kristján Jónsson, Gréta María Grétarsdóttir, Kristinn Albertsson og Þórarinn V. Þórarinsson.
8. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
Aðalfundur samþykkti að Ernst & Young ehf. yrði endurskoðunarfélag félagsins.
9. Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár
Aðalfundur félagsins samþykkti að mánaðarleg stjórnarlaun fyrir komandi starfsár skuli vera 400.000 kr. fyrir stjórnarmenn en laun stjórnarformanns verði tvöföld stjórnarlaun. Þóknun til formanns endurskoðunarnefndar verður 155.000 kr. á mánuði og til annarra nefndarmanna 90.000 kr. á mánuði. Þóknun nefndarmanna í öðrum undirnefndum verður 45.000 kr. á mánuði. Fyrir störf í tilnefningarnefnd fær hvor nefndarmaður greiddar 800.000 kr. fyrir starfsárið, en formaður nefndarinnar fær greiddar 1.200.000 kr. fyrir starfsárið. Greiðslur til endurskoðenda félagsins skulu vera samkvæmt reikningi.
10. Önnur mál
Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl. 15.48.
