REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Útboð á skuldabréfum 20. maí 2021

REITIR: Útboð á skuldabréfum 20. maí 2021

Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 20. maí næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR150523 og REITIR150527, sem báðir eru veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.

REITIR150523 er óverðtryggður flokkur sem ber 3,05% fasta ársvexti og hefur einn gjalddaga höfuðstóls 15. maí 2023. Áður hafa verið seld skuldabréf í flokknum að nafnvirði 4.600 m.kr.

REITIR150527 er verðtryggður flokkur sem ber 1,4% fasta ársvexti og hefur lokagjalddaga 15. maí 2032 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Áður hafa verið seld skuldabréf í flokknum að nafnvirði 1.210 m.kr.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er í hverjum flokki. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 27. maí 2021.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. a- og b-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: , sími: 669 4416.

Matei Manolescu, Markaðir,  Fossar markaðir, netfang: , sími: 522 4008.



EN
14/05/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 9. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 533.000 eigin hluti að kaupverði 69....

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 8. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 490.000 eigin hluti að kaupverði 63....

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru 11.977.000 hlutir (1,72%) í eigu félagsins við upphaf endurkau...

 PRESS RELEASE

REITIR: Ársuppgjör 2025

REITIR: Ársuppgjör 2025 Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2025. Afkoma félagsins var í góðu samræmi við útgefnar horfur og ársuppgjörið ber vitni um kröftugan vöxt tekna og rekstrarhagnaðar á árinu.   Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 12.112 m. kr. og jókst um 1.140 m. kr. eða 10,4%. Tekjur ársins 2025 námu 18.215 m. kr. sem er aukning um 10,8% frá fyrra ári. Raunvöxtur tekna milli ára er 6,3% og er til kominn vegna verðlagsbreytinga, nýfjárfestinga og heilbrigðs vaxtar innan eignasafnsins. Félagið fjárfesti fyrir 14,7 ma....

 PRESS RELEASE

REITIR: Kynningarfundur vegna birtingar á ársuppgjöri 2025

REITIR: Kynningarfundur vegna birtingar á ársuppgjöri 2025 Reitir munu birta ársuppgjör vegna ársins 2025 eftir lokun markaða mánudaginn 16. febrúar næstkomandi. Af því tilefni er fjárfestum og markaðsaðilum boðið til fundar, þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 þriðjudaginn 17. febrúar nk. á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á slóðinni:  Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar til stjórnenda á netfangið .  Upplýsingar veitir Einar ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch