REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024

REITIR: Uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024

Samhliða birtingu árshlutauppgjörs fyrsta fjórðungs ársins 2024 kynna Reitir nýja stefnu sem stjórn og stjórnendur hafa markað og hefur í för með sér aukinn vaxtarhraða félagsins á næstu fimm árum.



Ný stefna um vöxt á næstu fimm árum

Ný stefna Reita leggur ríkari áherslu á þróunarverkefni með sjálfbærni í forgrunni og fjárfestingu í fjölbreyttari eignaflokkum þar sem sérstaklega verður horft til samfélagslegra innviða og eignaflokka þar sem þörfin er brýn.

Stefnt er að því að auka virði heildareigna í 300 milljarða innan fimm ára en alls hafa verið sett fram átta mælanleg markmið sem styðja við stefnuna og falla að áherslu á drifkraft og þekkingu, sjálfbærni, framúrskarandi rekstur, vöxt og arðsemi.

„Ný stefna Reita mun leiða okkur áfram á þeirri vegferð að auka vöxt með meiri áherslu á fasteignaþróun og fjárfestingu í nýjum eignarflokkum. Við viljum vera leiðandi afl í samfélaginu þegar kemur að uppbyggingu margvíslegra innviða. Fasteignir eru mikilvægur hluti af innviðum í samfélaginu og það er gríðarlega spennandi uppbyggingar- og umbreytingarskeið í gangi á höfuðborgarsvæðinu og í raun um allt land. Við ætlum að sækja þau miklu tækifæri sem það býður okkur og auka til muna slagkraft fyrirtækisins í nýsköpun og frjórri hugsun í verkefnum sem leika mikilvæg hlutverk í gangverki samfélagsins. Grunnurinn er auðvitað sú mikla reynsla og sterka staða sem Reitir hafa.“  segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.



Drög að deiliskipulagi fyrsta áfanga íbúðauppbyggingar á Kringlusvæðinu kynnt

Reitir kynntu nýtt borgarhverfi við Kringluna á fundi Reykjavíkurborgar í Sambíóunum Kringlunni síðdegis í gær þann 14. maí. Á sama tíma var opnuð sýning á þessum drögum að deiliskipulagstillögu fyrir almenning á jarðhæð í göngugötu Kringlunnar.

Um er að ræða drög að deiliskipulagstillögu 1. áfanga Kringlusvæðis, sem nær til lóðanna Kringlan 1-3 og Kringlan 5. Reykjavíkurborg hefur lagt fram í skipulagslýsingu áætlun um að deiliskipulagstillaga verði samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði og í borgarráði í október n.k.

Í fyrsta áfanga uppbyggingar á Kringlusvæðinu er reiknað með um 450 íbúðum auk menningarhúss og 420 bílastæða í kjallara. Skipulagið er undir áhrifum reykvískrar byggingarhefðar með fjölbreyttum húsformum og gróðursælum svæðum. Hluti Morgunblaðsprentsmiðjunnar verður endurnýjaður og fær hlutverk menningarhúss. Skjólgóð og sólrík götu- og torgrými tengjast aðaltorginu sem verður á hlýlegri gönguleið úr Hamrahlíð í Kringluna. Svæðið nýtur góðs af mikilli nálægð við úrval verslana og veitingastaða, þjónustu og menningu og er skipulagt út frá viðmiðum BREEAM Communities vistvottunarkerfisins.

„Kringlureiturinn er mikilvægt verkefni fyrir þróun borgarinnar og við erum afar stolt af okkar þætti þar enda er hann gott dæmi um hvernig vönduð uppbygging hugsuð til langs tíma getur stutt við framtíðarkröfur borgarinnar en um leið haft jákvæð áhrif fyrir þá íbúa og starfsemi sem fyrir er. Við lítum á þetta sem langhlaup en ekki spretthlaup og þetta markar því nýjan kafla í sögu Reita.“ segir Guðni.

Nánari upplýsingar um fyrirhugaða þróun á Kringlusvæðinu má finna á .



Árshlutauppgjör fyrsta ársfjórðungs 2024

Lykiltölur rekstrar3M 20243M 2023
Leigutekjur3.9213.619
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna1.0841.013
Stjórnunarkostnaður1222198
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu12.6152.408
Matsbreyting fjárfestingareigna3.3672.508
Rekstrarhagnaður5.9084,916
Hrein fjármagnsgjöld2.6113.425
Heildarhagnaður2.5361.138
Hagnaður á hlut3,5 kr.1,5 kr.
   
Lykiltölur efnahags31.3.202431.12.2023
Fjárfestingareignir195.709189.971
Handbært og bundið fé1.2821.408
Heildareignir198.769193.381
Eigið fé60.36660.273
Vaxtaberandi skuldir112.845108.432
Eiginfjárhlutfall30,4%31,2%
Skuldsetningarhlutfall59,5%58,9%
   
Lykilhlutföll3M 20243M 2023
Nýtingarhlutfall (tekjuvegið)94,5%96,1%
Arðsemi eigna 15,9%6,0%
Rekstrarhagnaðarhlutfall 163,0%64,0%
Rekstrarkostnaðarhlutfall26,1%26,9%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall 15,4%5,3%

1 Án einskiptiskostnaðar

Fjárhæðir eru í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

Hlutföll í rekstrarreikningi eru reiknuð sem hlutfall heildartekna.



Horfur ársins

Horfur ársins 2024 eru óbreyttar, gert er ráð fyrir tekjum á bilinu 15.900 - 16.100 m.kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu verði á bilinu 10.900 - 11.100 m.kr.

Forsendur matsins eru um 6% hækkun verðlags milli ára, að nýtingarhlutfall ársins 2024 verði sambærilegt við nýtingu ársins 2023 og að fasteignagjöld verði lægri að raunvirði.

Reitir leita stöðugt nýrra sóknarfær og stefna á áframhaldandi fjárfestingar í takti við nýja stefnu.



Nánari upplýsingar og kynningarfundur

Reitir bjóða fjárfestum og markaðsaðilum á kynningarfund þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið.

Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 á morgun, fimmtudaginn 16. maí, á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum er jafnframt streymt í gegnum netið á slóðinni .

Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið .

Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita .

 

Um Reiti fasteignafélag

Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. Vöxtur Reita byggir á þróun og fjárfestingu í borgarinnviðum sem styðja við sjálfbært samfélag. 

Innan eignasafns Reita eru um 460 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis sem hýsir fjölbreytta atvinnustarfsemi og ríkisstofnanir. Gagnkvæmur ávinningur Reita, samstarfsaðila og samfélags er lykilþáttur í starfsemi Reita. 

Fyrirtækið er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir. 

 

Nánari upplýsingar

Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í netfanginu eða í síma 575 9000 og 624 0000 eða Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri í netfanginu eða í síma 575 9000 og 699 4416.





Viðhengi



EN
15/05/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Aðalfundur 25. mars 2026

REITIR: Aðalfundur 25. mars 2026 Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, miðvikudaginn 25. mars 2026 í fundarsal H og I á Hilton Reykjavík Nordica Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Drög að dagskrá fundarins: Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári.Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári.Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund: Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfumTillaga um lækkun hlutafjár til jöfnun...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 9. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 533.000 eigin hluti að kaupverði 69....

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 8. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 490.000 eigin hluti að kaupverði 63....

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru 11.977.000 hlutir (1,72%) í eigu félagsins við upphaf endurkau...

 PRESS RELEASE

REITIR: Ársuppgjör 2025

REITIR: Ársuppgjör 2025 Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2025. Afkoma félagsins var í góðu samræmi við útgefnar horfur og ársuppgjörið ber vitni um kröftugan vöxt tekna og rekstrarhagnaðar á árinu.   Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 12.112 m. kr. og jókst um 1.140 m. kr. eða 10,4%. Tekjur ársins 2025 námu 18.215 m. kr. sem er aukning um 10,8% frá fyrra ári. Raunvöxtur tekna milli ára er 6,3% og er til kominn vegna verðlagsbreytinga, nýfjárfestinga og heilbrigðs vaxtar innan eignasafnsins. Félagið fjárfesti fyrir 14,7 ma....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch