REITIR Reitir fasteignafelag hf

Tilnefningarnefnd Reita auglýsir eftir tilnefningum og framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd Reita auglýsir eftir tilnefningum og framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd

Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf. auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundar sem haldinn verður 2. apríl 2025. Jafnframt hvetur tilnefningarnefndin hluthafa til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við nefndina. Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf. var skipuð á aðalfundi 6. mars 2024 og er skipunartími nefndarinnar til eins árs í senn. Hlutverk nefndarinnar er að undirbúa stjórnarkjör á hluthafafundum.

Nefndina skipa:

Margret G. Flóvenz, endurskoðandi, formaður tilnefningarnefndar;

Hilmar G. Hjaltason, sérfræðingur í mannauðsmálum;

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, ráðgjafi.

Starfsreglur tilnefningarnefndar má sjá

Framboðsfrestur

Almennur framboðsfrestur til stjórnar samkvæmt samþykktum Reita fasteignafélags hf. er sjö dögum fyrir aðalfund. Hyggist fleiri bjóða sig fram til stjórnar en þeir sem tilnefningarnefnd gerir tillögu um skulu þeir tilkynna um framboð sitt a.m.k. sjö sólarhringum fyrir aðalfund. Form framboðs til stjórnar er meðfylgjandi sem viðhengi. 

Umfjöllun tilnefningarnefndar

Í því skyni að fá umfjöllun tilnefningarnefndar um tilnefningar og framboð til stjórnar skal erindi berast nefndinni eigi síðar en 19. febrúar 2025. Er áhugasömum bent á að fylla út neðangreint form til umfjöllunar tilnefningarnefndar og senda nefndinni.

Form til umfjöllunar tilnefningarnefndar er meðfylgjandi sem viðhengi. 

Farið verður með allar persónuupplýsingar sem tilnefningarnefnd berast sem trúnaðarmál sé þess óskað. Tillaga nefndarinnar um val á stjórnarmönnum verður birt samhliða boðun aðalfundar eða í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund. Önnur framboð verða birt sex sólarhringum fyrir aðalfund. Einstaklingur sem nefndin gerir ekki tillögu um sem stjórnarmann í félaginu getur ávallt gefið kost á sér í stjórnina með því að skila inn formi framboðs til stjórnar innan hins almenna framboðsfrests, þ.e. sjö sólarhringum fyrir aðalfund.

Netfang nefndarinnar er

Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf.

Viðhengi



EN
13/01/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 29

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 29 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. júlí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. júlí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti14/7/2510:0470.000114,0...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 27 og 28

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 27 og 28 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. júlí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. júlí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 27. viku voru engin viðskipti. Í 28. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 900...

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru 4.200.000 hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlun...

 PRESS RELEASE

REITIR: Kaup á Hlíðasmára 5-7 í Kópavogi - öllum fyrirvörum aflétt

REITIR: Kaup á Hlíðasmára 5-7 í Kópavogi - öllum fyrirvörum aflétt Með vísan til fyrri tilkynningar um kaup Reita á félaginu L1100 ehf., sem nálgast má , tilkynnist að öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur verið aflétt.  Eins og fram hefur komið í fyrri tilkynningu þá hefur kaupsamningur verið undirritaður og mun afhending fara fram 1. ágúst nk. Fasteignin er við Hlíðarsmára 5-7 í Kópavogi og er um 3.900 fm. að stærð. Samhliða kaupunum hefur verið gerður leigusamningur til langs tíma um rekstur hótelsins við Flóra hotels sem rekur einnig Reykjavík Residence, Tower Suites og tvö hótel undir...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 26 - Lok endurkaupaáætluna...

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 26 - Lok endurkaupaáætlunar Í 26. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 517.004 eigin hluti að kaupverði 56.461.938 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:        DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti23/6/2510:13100.000108,5010.850.0003.782.99623/6/2515:14100.000108,5010.850.0003.882.99624/6/2510:28100.000110,0011.000.0003.982.99624/6/2513:48100.000109,5010.950.0004.082.99625/6/2514:14117.004109,5012.811.9384.200.000      Samtals 517.004 56.461.9384.200.000                     Endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch