REITIR Reitir fasteignafelag hf

Tilnefningarnefnd Reita auglýsir eftir tilnefningum og framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd Reita auglýsir eftir tilnefningum og framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd

Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf. auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundar sem haldinn verður 8. mars 2023. Jafnframt hvetur tilnefningarnefndin hluthafa til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við nefndina.

Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf. var skipuð á aðalfundi 11. mars 2022 og er skipunartími nefndarinnar til eins árs í senn. Hlutverk nefndarinnar er að undirbúa stjórnarkjör á hluthafafundum.

Nefndina skipa:

Margret G. Flóvenz, endurskoðandi, formaður tilnefningarnefndar;

Hilmar G. Hjaltason, sérfræðingur í mannauðsmálum;

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, ráðgjafi.

Starfsreglur tilnefningarnefndar má sjá .

Framboðsfrestur

Almennur framboðsfrestur til stjórnar samkvæmt samþykktum Reita fasteignafélags hf. er sjö dögum fyrir aðalfund. Hyggist fleiri bjóða sig fram til stjórnar en þeir sem tilnefningarnefnd gerir tillögu um skulu þeir tilkynna um framboð sitt a.m.k. sjö sólarhringum fyrir aðalfund.

Form framboðs til stjórnar má finna .

Umfjöllun tilnefningarnefndar

Í því skyni að fá umfjöllun tilnefningarnefndar um tilnefningar og framboð til stjórnar skal erindi berast nefndinni eigi síðar en 31. janúar 2023. Er áhugasömum bent á að fylla út neðangreint form til umfjöllunar tilnefningarnefndar og senda nefndinni.

Form til umfjöllunar tilnefningarnefndar má finna .

Farið verður með allar persónuupplýsingar sem tilnefningarnefnd berast sem trúnaðarmál. Tillaga nefndarinnar um val á stjórnarmönnum verður birt samhliða boðun aðalfundar eða í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund. Önnur framboð verða birt sex sólarhringum fyrir aðalfund. Einstaklingur sem nefndin gerir ekki tillögu um sem stjórnarmann í félaginu getur ávallt gefið kost á sér í stjórnina með því að skila inn formi framboðs til stjórnar innan hins almenna framboðsfrests, þ.e. sjö sólarhringum fyrir aðalfund.

Netfang nefndarinnar er 

Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf.



EN
27/12/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 40

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 40 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 40. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 295.000 eigin hluti að kaupver...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 39

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 39 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 39. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 220.000 eigin hluti að kaupver...

 PRESS RELEASE

REITIR: Verksamningur við Þarfaþing hf. undirritaður um Kringlureit

REITIR: Verksamningur við Þarfaþing hf. undirritaður um Kringlureit Reitir fasteignafélag hf., fyrir hönd Reita - þróunar ehf. og Reita atvinnuhúsnæðis ehf., og Þarfaþing hf. hafa skrifað samning um alverktöku vegna byggingar fyrsta áfanga Kringlureits.  Samningsfjárhæð verksins nemur rúmum 10 milljörðum króna. Fjöldi íbúða verður í kringum 170. Ráðgert er að framkvæmdir muni taka um fjögur ár. Aðilar skrifuðu undir viljayfirlýsingu þann 21. ágúst sl. þar sem lýst var yfir sameiginlegum vilja til að ganga til samninga um samstarf vegna uppbyggingar íbúðarhúsnæðis með bílageymslu á Kringlur...

Reitir Fasteignafelag Hf: 1 director

A director at Reitir Fasteignafelag Hf bought 50,000 shares at 113.000ISK and the significance rating of the trade was 54/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

REITIR: Viðskipti fruminnherja

REITIR: Viðskipti fruminnherja Sjá meðfylgjandi tilkynningu um viðskipti fruminnherja. Attachment

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch