Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um 20. júní sl. er nú lokið.
Í 41. viku 2022 keypti Síminn hf. 1.731.194 eigin hluti að kaupverði 19.562.492 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
10.10.2022 | 10:04 | 1.500.000 | 11,30 | 16.950.000 | 221.713.702 |
11.10.2022 | 09:34 | 231.194 | 11,30 | 2.612.492 | 221.944.896 |
1.731.194 | 19.562.492 | 221.944.896 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 20. júní 2022. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.000 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2023, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.
Síminn átti 220.213.702 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 221.944.896 eða sem nemur 3,04% af útgefnum hlutum í félaginu.
Síminn hefur keypt samtals 88.831.194 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,22% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 999.999.992 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi .
