SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Síminn selur Mílu til Ardian

Síminn hf. - Síminn selur Mílu til Ardian

Þann 18. október sl. gekk Síminn hf. („Síminn“) til einkaviðræðna við Ardian France SA („Ardian“) um sölu á öllum eignarhlut í fjarskiptafélaginu Mílu ehf. („Míla“). Þeim viðræðum lauk þann 23. október með undirritun kaupsamnings á 100% hlutafjár í Mílu. Salan er háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Virði viðskiptanna (e. Enterprise value) er 78 milljarðar króna, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum Mílu sem kaupandinn yfirtekur. Samkvæmt kaupsamningi fær Síminn greitt á efndadegi um 44 milljarða króna í reiðufé og 15 milljarða króna í formi skuldabréfs sem Síminn veitir kaupanda til þriggja ára. Áætlaður söluhagnaður er rúmlega 46 milljarðar króna að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna.

Ljóst er að sala Mílu mun hafa umtalsverð áhrif á efnahagsreikning Símans þar sem lausafjárstaða verður sterk og geta til innri og ytri vaxtar verður umtalsverð. Stjórn og framkvæmdastjórn Símans munu vinna að tillögu um ráðstöfun söluandvirðisins sem verður kynnt hluthöfum gangi viðskiptin eftir.

Ardian hefur boðið íslenskum lífeyrissjóðum að taka þátt í kaupunum og getur eignarhlutur þeirra orðið allt að 20%. Slíkt samstarf getur verið með beinni þátttöku eða í gegnum innlenda fjárfestingarsjóði.

Míla er heildsölufyrirtæki á fjarskiptamarkaði og felst kjarnastarfsemi Mílu í að byggja upp og reka innviði fjarskipta á landsvísu. Hlutverk Mílu er að selja lausnir sínar í heildsölu til fyrirtækja og stofnana sem stunda fjarskiptastarfsemi. Sérhæfing félagsins felst meðal annars í rekstri og ráðgjöf vegna uppbyggingar fjarskiptakerfa og aðstöðuleigu í tækjarýmum og möstrum. Kerfi Mílu eru grunnur að fjölþættri fjarskiptaþjónustu um allt land.

Að kaupunum loknum hyggst Ardian hraða fjárfestingarverkefnum Mílu. Sérstök áhersla verður lögð á að leggja ljósleiðara í sveitarfélögum á landsbyggðinni, sem mun auka samkeppnishæfni minni sveitarfélaga, og byggja framúrskarandi 5G farsímakerfi á Íslandi með tæknibúnaði frá sænska framleiðandanum Ericsson.

Salan á Mílu er í samræmi við stefnu Símans um að aðgreina mismunandi viðskiptamódel samstæðunnar og skapa grunn að aukinni samkeppni í stafrænu umhverfi landsins. Síminn verður eftir söluna öflugt og sveigjanlegt félag sem mun öðlast aukið athafnafrelsi en fyrr og lúta léttari reglustýringu af hálfu hins opinbera. Með sölunni losnar um samkeppnisleg áhrif sem eftirlitsstofnanir hafa haft áhyggjur af vegna eignarhalds Símans á Mílu.

Orri Hauksson, forstjóri Símans:

„Við fögnum komu reynslumikils fjárfestis á borð við Ardian í íslenska fjarskiptageirann. Orðspor og þekking Ardian á uppbyggingu og langtíma rekstri á afburða innviðum víða um heim fyllir okkur trausti á bjartri og öruggri framtíð þessara grundvallarinnviða á Íslandi. Þetta á sérstaklega við um landsbyggðina. Ardian hefur metnaðarfull áform um að hraða ljósleiðaravæðingu og 5G þjónustu um land allt. Við eigum í viðræðum við stjórnvöld um að koma á fót virkum samráðsvettvangi, þar sem hægt er að deila upplýsingum og leggja grunn að uppbyggilegu samstarfi um ýmsa mikilvæga innviði landsins, stýringu þeirra í íslenskri lögsögu og þjóðaröryggi þeim tengdum.“

Ardian er reynslumikill langtíma fjárfestir í grunninnviðum og er eitt stærsta sjóðsstýringafyrirtæki Evrópu. Félagið var stofnað árið 1996 af Dominique Senequier, er með höfuðstöðvar í París, Frakklandi og skrifstofur á átta öðrum stöðum í Vestur-Evrópu. Um 800 manns vinna hjá Ardian sem er með andvirði um 114 milljarða bandaríkjadala í stýringu. Meðal fjárfesta í Ardian eru ríkisstofnanir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög og stofnanafjárfestar.

Innviðadeild Ardian, Ardian Infrastructure, hefur undanfarið lagt aukna áherslu á fjárfestingar í stafrænum innviðum, auk orku- og samgönguinnviða, en félagið er reynslumikið í rekstri mikilvægra innviða í fjölda landa.

Dr. Daniel von der Schulenberg, framkvæmdastjóri og yfirmaður Ardian Infrastructure fyrir Þýskaland, Benelux löndin og Norður-Evrópu:

„Við erum þakklát fyrir það tækifæri að fjárfesta á Íslandi og hlökkum til að vinna náið með innlendum samstarfsaðilum okkar. Norðurlöndin eru kjarnasvæði fyrir Ardian innviðateymið. Þar eru sterk grunngildi, vel menntað starfsfólk og sterkir innviðir sem gerir svæðið sérstaklega áhugavert. Míla er langtímafjárfesting og vettvangur til vaxtar fyrir okkur. Við hyggjumst fjárfesta jafnt og þétt í sterkari útbreiðslu fjarskiptainnviða og hlökkum til að veita áfram hágæða þjónustu og tengingar. Við munum vinna náið með stjórnunarteymi Mílu að uppbyggingu enn framsæknara fjarskiptafyrirtækis. Við hlökkum einnig til samstarfs við Símann sem mikilvægs framtíðar viðskiptavinar og íslensku lífeyrissjóðina sem meðeigenda okkar í Mílu.“

Seðlabanki Íslands á í sérstökum tilvikum tvíhlíða viðskipti (kaup og sölu) framhjá markaðinum við viðskiptavaka á gjaldeyrismarkaði (Arion banka, Íslandsbanka, Landsbankann). Þá er um að ræða viðskipti af stærðargráðu sem mögulega valda tímabundnum flæðisfrávikum eða óvenjulegum skammtímahreyfingum á gengi krónunnar, ef þeim yrði beint inn á gjaldeyrismarkaðinn. Ef af kaupunum verður munu Síminn og Ardian vinna með Seðlabanka Íslands að framgangi viðskiptanna þegar þar að kemur þannig að sem minnst áhrif verði á gjaldeyrismarkaði.

Jón Ríkharð Kristjánsson, framkvæmdastjóri Mílu:

„Um leið og þetta er mikil viðurkenning fyrir það starf sem unnið hefur verið hjá Mílu undanfarin ár eru þetta feikilega spennandi tímamót fyrir félagið. Stjórnvöld hafa lengi haft þá stefnu að ljúka þurfi háhraðanetstengingu um allt land en á sama tíma sagt óleyst hvernig það verði gert. Míla hefur lýst því yfir að félagið hyggist gera það. Um 13.000 staðföng í bæjum og þorpum á landsbyggðinni eru án ljósleiðaratenginga. Það er stefna nýrra eigenda Mílu að hraða uppbyggingu til þessara staða. Ljósleiðaravæðing er eitt stærsta byggðamál Íslands og Ardian hefur fjármuni og Míla þekkingu sem þarf til að láta verkin tala í þessum efnum. Uppbygging 5G farsímanets er annað umfangsmikið verkefni sem farið er af stað auk þess sem fjarskiptaöryggi er stórt atriði sem þarf að tryggja. Það er því mjög gleðilegt að fá svona fjársterkan aðila í þessi mikilvægu verkefni. Míla sem sjálfstætt fyrirtæki með öfluga eigendur mun verða enn sterkari en áður og fullbúið til að takast á við þessar áskoranir sem framundan eru í að efla enn frekar íslenska fjarskiptainnviði.“

Ráðgjafar Símans í viðskiptunum voru Lazard & Co., Íslandsbanki, LOGOS og Kearney. Nánar verður gerð grein fyrir viðskiptunum á uppgjörsfundi Símans miðvikudaginn 27. október nk.

Nánari upplýsingar veita Orri Hauksson ( ), 855-4040, og Óskar Hauksson, ( ), 899-6169.



EN
23/10/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

Siminn Hf: 1 director

A director at Siminn Hf bought 700,000 shares at 14.100ISK and the significance rating of the trade was 57/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two years clearly sh...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda Sjá meðfylgjandi viðhengi í tengslum við viðskipti stjórnanda hjá Símanum hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins til aðalfundar, starfskjarastefna ásamt skýrslum tilnefningarnefndar og starfskjaranefndar. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins . Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Results for the fourth quarter of 2025 and for the year 2...

Síminn hf. - Results for the fourth quarter of 2025 and for the year 2025 Financial highlights Q4 2025 Revenue in Q4 2025 amounted to ISK 7,336m, compared with ISK 7,431m in the corresponding quarter of 2024, representing a decrease of 1.3%. Revenue from telecommunications and television services declined by ISK 206m, or 3.7%, year-on-year. Advertising revenue amounted to ISK 798m, compared with ISK 821m in the corresponding quarter last year, a decrease of 2.8%. It should be noted that parliamentary elections took place in the corresponding quarter of 2024.EBITDA in Q4 2025 amounted to IS...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 og ársins 2025

Síminn hf. - Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 og ársins 2025 Helstu niðurstöður úr rekstri á 4F 2025 Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2025 námu 7.336 m.kr. samanborið við 7.431 m.kr. á sama tímabili 2024 og lækkuðu um 1,3%. Tekjur af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu lækkuðu um 206 m.kr. eða 3,7% milli tímabila. Tekjur af auglýsingamiðlun námu 798 m.kr. samanborið við 821 m.kr. á sama tíma í fyrra sem samsvarar lækkun um 2,8%, en líta verður til þess að kosningar til Alþingis fóru fram á samanburðarfjórðungnum 2024.Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.916 m.kr. ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch