SIMINN Siminn HF

Síminn hf. – Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Síminn hf. – Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 13. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 247.500.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2026, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar hefur stjórn Símans hf. tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin hlutum. Endurkaupin nú munu að hámarki nema 500 milljónum króna að kaupverði.

ACRO verðbréf hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 1.495.678 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í febrúar 2025. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast á morgun, þriðjudaginn 18. mars 2025.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.



EN
17/03/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Uppgjör 2. ársfjórðungs 2025 verður birt eftir lokun mark...

Síminn hf. - Uppgjör 2. ársfjórðungs 2025 verður birt eftir lokun markaðar 19. ágúst Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung 2025 þriðjudaginn 19. ágúst næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 20. ágúst í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir. Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt á  og...

 PRESS RELEASE

Óskar Hauksson lætur af störfum hjá Símanum

Óskar Hauksson lætur af störfum hjá Símanum Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. Óskar hefur starfað hjá Símanum frá árinu 2005, en sem fjármálastjóri frá 2011. Hann mun láta af störfum þann 1. október næstkomandi og verður forstjóra innan handar þar til ráðið hefur verið í starfið. María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans: “Fjármál Símans hafa verið í traustum höndum Óskars í rúmlega fjórtán ár. Eins og fjárfestar þekkja hefur sá tími einkennst af stöðugleika, ábyrgð og vel ígrunduðum ákvörðunum í rekstrinum.  Ég vil þakka Óskari fyrir...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi v...

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í 32. viku 2025 keypti Síminn hf. 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 53.800.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti5.8.202514:221.000.00013,5013.500.00092.342.4626.8.202510:091.000.00013,5013.500.00093.342.4627.8.202510:391.000.00013,4013.400.00094.342.4628.8.202509:591.000.00013,4013.400.00095.342.462  4.000.000 53.800.00095.342.462 Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi v...

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í 31. viku 2025 keypti Síminn hf. 5.000.000 eigin hluti að kaupverði 67.900.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti28.7.202514:571.000.00013,6013.600.00087.342.46229.7.202513:261.000.00013,6013.600.00088.342.46230.7.202510:241.000.00013,6013.600.00089.342.46231.7.202512:071.000.00013,6013.600.00090.342.4621.8.202509:511.000.00013,5013.500.00091.342.462  5.000.000 67.900.00091.342.462 Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáæ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi v...

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í 30. viku 2025 keypti Síminn hf. 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 54.600.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti22.7.202513:571.000.00013,7513.750.00083.342.46223.7.202510:161.000.00013,6513.650.00084.342.46224.7.202513:531.000.00013,6013.600.00085.342.46225.7.202513:441.000.00013,6013.600.00086.342.462  4.000.000 54.600.00086.342.462 Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Ísla...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch