Síminn hf. - Uppgjör 1. ársfjórðungs 2020 verður birt eftir lokun markaðar 28. apríl 2020
Rafrænn kynningarfundur verður haldinn 29. apríl kl. 8:30
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2020 eftir lokun markaðar þann 28. apríl næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl 2020. Fundurinn hefst kl. 8:30. Fundurinn verður eingöngu rafrænn og munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: